Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Menning

Ris og fall Krumma

Innlent

Móðir á Íslandi í laga­legri sjálf­heldu vegna föður sem eng­inn finnur

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Kóka­ín­farm­ur­inn komst ekki lengra en til Kefla­víkur

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Fólk

Fjórar ástæður fyrir því að þú færð auð­veld­lega mar­bletti

Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Heimur

Dán­ar­or­sök leik­ar­ans Anthony Clark komin fram

Innlent

Fluttur ælandi með sjúkra­bíl

Sjálfstæðismenn í hár saman vegna Katrínar: „Vinstrisnúningur þinn og kossaflens við kommana“

Katrín Jakobsdóttir,
Katrín Jak­obs­dóttir, Mynd: Róbert Reynisson

Harðar deilur hafa risið á milli Sjálf­stæð­is­manna vegna stuðn­ings ráða­manna þar við Katrínu Jak­obs­dóttur for­seta­fram­bjóð­anda. Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son, pró­fessor á eft­ir­launum, styður Katrínu opin­ber­lega. Hann hnjóð­aði í Baldur Þór­halls­son, pró­fessor og for­seta­fram­bjóð­anda, á Facebook-síðu Jóns Kristins Snæhólm, stjórn­mála­fræð­ings og eins af stuðn­ings­mönnum Baldurs, í færslu sem lýsti því að hunda­skítur hefði verið skil­inn eftir við dyr kosn­inga­skrif­stofu Baldurs.

Ég man hvað ég kaus

„Baldur er nú ekki alltaf tals­maður hinna útskúf­uðu. Þegar hann var deild­ar­for­seti stjórn­mála­fræði­deildar, hélt hann sam­kvæmi heima hjá sér á kostnað deild­ar­innar, sem hann bauð öllum kenn­urum í stjórn­mála­fræði í nema mér, þótt hann vissi vel, að ég væri á land­inu.

Baldur Þór­halls­son.

Ég get ekki sagt, að ég hafi tekið það nærri mér, enda völ á ýmsum öðrum sam­kvæmum í Reykja­vík, svo að ekki sé minnst á ró og næði heima hjá sér með góðri bók. En Baldur hélt þetta sam­kvæmi á kostnað deild­ar­innar, og þá er það ekki einka­sam­kvæmi. Þetta var því í senn útskúfun og mis­notkun á opin­beru fé. Ég hef hins vegar ekki nennt að gera þetta að neinu máli, enda skil ég alveg, að mér sé útskúfað. Mér hefur ekki tek­ist að vera fyrir neðan öfund­ina.

Hannes Hólm­steinn

Ég man hins vegar, hvað ég kaus í Icesave-mál­inu, en ég var eini kenn­ar­inn í stjórn­mála­fræði­deild, held ég, sem kaus með Íslandi og á móti Bret­landi,“ skrif­aði Hannes Hólm­steinn.

Þú sængar við allt …

Jón Kristinn lét flokks­bróður sinn ekki eiga neitt inni hjá sér og rifj­aði upp að Katrín hefði reynt að koma Geir Haarde, þáver­andi for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í fang­elsi með því að ákæra hann fyrir Lands­dómi.

„Þú verður að jafna þig á þessu boði sem þér var ekki boðið í en ég er þess full­viss að kok­teilpartý og snittuát þar sem sér­valdir söll­uðu á sig í boði skatt­greið­enda hafa verið haldin með þinni nær­veru nógu oft. Katrín Jakobs er vel til þess fallin að verða næsti for­seti þó að mitt mat sé að Baldur sé henni fremri. Það sem vekur furðu okkar sem hafa stutt þig og varið í gegnum tíð­ina er vinstri­snún­ingur þinn og kossaflens við kommanna. Þú sængar við allt það sem við höfum barist á móti. Snittur eru ekki til þess fallnar að selja sál sína. Reyndu svo að útskýra þennan stuðn­ing þinn við vin okkar Geir H. Haarde,“ skrif­aði Jón Kristinn sem er einn helsti stuðn­ings­maður Guðlaugs þ. Þórð­ar­sonar umhverf­is­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

1
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Auglýsingar um borgina og á samfélagsmiðlum hvöttu fólk til að taka þátt
Minning

Guðjón Þórð­ar­son er fall­inn frá

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum

Innlent

Innlent

Morg­un­blaðið aftur gagn­rýnt fyrir mynda­notkun við frétt

Gauti B. Eggertsson gagnrýnir að fánar Palestínu og hinsegin fólks hafi fylgt frétt um ofbeldi gegn stúlkum í Reykjanesbæ.
Innlent

Ung­lingur stakk mann í síð­una og réðst á annan með járn­röri

Innlent

Trufl­anir hjá Microsoft hafa áhrif á starf­semi MAST

Innlent

Nýtt trú­fé­lag skráð á Íslandi

Innlent

Reykja­vík breytt­ist í risa­stórt bíla­stæði

Innlent

Gunnar Smári segir frá sárs­auka­fullum dögum og svefn­lausum nóttum