Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Grunur um skemmdarverk eftir alvarlegt lestarslys í Frakklandi

44 slösuðust þegar lest fór út af sporinu, þar af ein kona alvarlega

Mynd af vettvangi
Mynd af vett­vangi Mynd: GUILLAUME SALIGOT / AFP

Frönsk lögreglu­yfirvöld rannsaka hvort skemmdar­verk hafi valdið því að farþega­lest fór út af sporinu í norð­vesturhluta Frakk­lands í gærkvöldi. Alls slösuðust 44 í slysinu, þar af ein 18 ára kona alvarlega.

Samkvæmt heimildum AFP fannst brot úr járn­brautar­teini á lestar­teinunum og beinist rann­sóknin því einkum að því hvort um vísvitandi verknað hafi verið að ræða.

Lestin var á leið milli borganna Rouen og Caen í Normandí þegar hún fór út af sporinu um klukkan 19:45 að staðar­tíma. Um borð voru 186 farþegar.

Yfirvöld virkjuðu umfangs­mikla viðbragðs­áætlun vegna slyssins. Um 130 slökkviliðs­menn, fimm heilbrigðis­teymi og 80 neyðar­bifreiðar voru send á vettvang.

Sébastien Gallois, saksóknari í Rouen, staðfesti að 44 hefðu slasast. Áfengis- og fíkniefna­próf lestar­stjórans reyndust neikvæð.

Lestar­umferð um svæðið hefur verið stöðvuð og rafmagn tekið af teinunum á meðan rannsókn og björgunar­aðgerðir standa yfir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Asninn Hope í Georgíu hefur fengið staðfest heimsmet frá Guinness
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs