Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Menning

Ris og fall Krumma

Innlent

Móðir á Íslandi í laga­legri sjálf­heldu vegna föður sem eng­inn finnur

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Kóka­ín­farm­ur­inn komst ekki lengra en til Kefla­víkur

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Fólk

Fjórar ástæður fyrir því að þú færð auð­veld­lega mar­bletti

Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Heimur

Dán­ar­or­sök leik­ar­ans Anthony Clark komin fram

Innlent

Fluttur ælandi með sjúkra­bíl

Frosti segir viðbrögð Ingibjargar dapurleg: „Þau velja frekar að dylgja áfram um mig“

Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir gefur lítið fyrir gagnrýni Frosta
Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir gefur lítið fyrir gagn­rýni Frosta

Fjöl­miðla­mað­ur­inn Frosti Logason segir við­brögð Ingi­bjargar Daggar Kjart­ans­dóttur, rit­stjóra Heim­ild­ar­innar, við gagn­rýni hans á umfjöllun Heim­ild­ar­innar vera dap­ur­leg en Frosti var ósáttur með hvernig blaðið tækl­aði umfjöllun um ásökun Eddu Pét­urs­dóttur, fyrr­ver­andi kær­ustu Frosta, um and­legt ofbeldi og hót­anir í hennar garð frá Frosta.

SJÁ NÁNAR: Ingi­björg segir fleiri konur hafa lýst óvið­eig­andi sam­skiptum við Frosta: „Það er ofsa­lega ljótt“

Í við­tali við Vísi segir Frosti meðal ann­ars að Margrét Mart­eins­dóttir, blaða­maður Heim­ild­ar­innar, hafi brotið siða­reglur og hann hafi ekki fengið að segja frá sinni hlið en Ingi­björg vís­aði gagn­rýni Frosta á bug í Facebook-færslu stuttu eftir að við­talið við Frosta birt­ist á Vísi.

Frosti hefur nú svarað Ingi­björgu á Facebook-síðu sinni.

„Það er ótrú­lega dap­ur­legt að sjá við­brögð Ingi­bjargar Daggar, rit­stjóra Heim­ild­ar­innar við við­tali við mig í Einka­líf­inu á Vísi. Ein­hverjir kynnu að spyrja sig hvort það sé ekki full­kom­lega eðli­legt að ein­hliða yfir­lýs­ing, eins og hún kallar það, komi frá manni í öðrum miðli en þeim sem neitar að greina frá hinni hlið máls – og er þar af leið­andi sjálfur með ein­hliða umfjöllun. Það má þó segja að það sé gott fyrir almenn­ing að til séu miðlar sem séu reiðu­búnir að greina frá fleiri en einni hlið máls, eins og Visir.is og Brotkast.is Heim­ildin er ekki þar á meðal,“ skrifar Frosti um málið.

„Fag­mennskan er ekki meiri en svo að þau velja frekar að dylgja áfram um mig til að klóra yfir þá stað­reynd að þau hafi ekki leyft mér að segja mína hlið þegar á mig voru bornar þungar sakir í þeirra miðli. Fleiri slúð­ur­sögur rétt­læta varla það að leyfa ekki ásök­uðum manni að bera hönd fyrir höfuð sér. Þetta er enn eitt dæmið um það ofbeldi sem ég hef verið að tala um, ofbeldi og kúg­unar aktí­visma. Það er óneit­an­lega sér­stakt að fólkið sem lætur hæst um að aðrir eigi að betra sig og bæta sé svona algjör­lega ófært um að líta í eig­inn barm. En auð­vitað hentar það ekki narra­tíf­inu sem þau vilja halda á lofti. Fag­mennskan hefur því vikið fyrir póli­tík. Það sést einna best á því að Heim­ildin telur lógík í því að ef nógu mikið af slúðri sé borið út um ein­hvern þá eigi við­kom­andi ekki að fá að svara fyrir sig á vett­vangi þeirra fjöl­miðla sem breiði út slúðrið. Það er ekki lógískt að mínu mati,“ skrifar Frosti svo að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

1
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Auglýsingar um borgina og á samfélagsmiðlum hvöttu fólk til að taka þátt
Minning

Guðjón Þórð­ar­son er fall­inn frá

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum

Innlent

Innlent

Morg­un­blaðið aftur gagn­rýnt fyrir mynda­notkun við frétt

Gauti B. Eggertsson gagnrýnir að fánar Palestínu og hinsegin fólks hafi fylgt frétt um ofbeldi gegn stúlkum í Reykjanesbæ.
Innlent

Ung­lingur stakk mann í síð­una og réðst á annan með járn­röri

Innlent

Trufl­anir hjá Microsoft hafa áhrif á starf­semi MAST

Innlent

Nýtt trú­fé­lag skráð á Íslandi

Innlent

Reykja­vík breytt­ist í risa­stórt bíla­stæði

Innlent

Gunnar Smári segir frá sárs­auka­fullum dögum og svefn­lausum nóttum