Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Borgarstjórnartíð Jóns Gnarr eitt best heppnaða listaverk Íslandssögunnar

Rit­stjóri Nútímans, Atli Fannar Bjarka­son, segir Jón Gnarr vera einn merkasta lista­mann sam­tím­ans.

Borgarstjórnartíð Jóns Gnarr eitt best heppnaða listaverk Íslandssögunnar
|Atli Fannar

Atli Fannar Bjarka­son, sem er lands­mönnum að góðu kunnur sem rit­stjóri Nútímans og sjón­varps­maður á RÚV, hefur frá því hann man eftir sér verið áhuga­samur um listir og menn­ingu. Einkum og sér í lagi dæg­ur­menn­ingu. Aðspurður hvaða list hafi haft mik­ils­háttar áhrif á hann í gegnum tíð­ina stendur ekki á svör­unum.

„Jón er einn merkasti lista­maður sam­tím­ans. Hann hefur breytt lífi svo margra … Jón er ótrú­legur og hefur haft gríð­ar­leg áhrif á líf mitt,“ segir Atli Fannar.

Simpsons

„Ég væri annar maður í dag ef ég hefði ekki byrjað að horfa á Simpsons sem barn. Ég ólst upp við fyrst 13 ser­í­urnar. Á sumrin dvaldi ég hjá mömmu minni á Sauð­ár­króki og í stað­inn fyrir að fara út að leika mér dró ég fyrir inni í stofu og horfði á Simpsons allan dag­inn. Hún tók upp hvern ein­asta þátt þannig að ég sá alltaf þætti sem ég hafði misst af um vet­ur­inn. Amma, sem bjó á neðri hæð­inni, var að verða brjáluð á þessu – vildi að ég hjálp­aði til í garð­inum.“

Laddi

„Ég hlust­aði ekki á annað en Ladda þegar ég var barn. Átti allar vín­yl­plöt­urnar. Kunni öll lögin og söng þau heima í stofu. Upp­á­halds­lagið mitt var Skúli Ósk­ars­son sem fjallar um sam­nefndan kraft­lyft­inga­mann og fræki­legt afrek hans. Ég söng það og lék þegar Skúli var að setja heims­met í rétt­stöðu­lyftu við mikla kát­inu fólks sem taldi eflaust niður hvenær ég yrði lagður inn.“

Þungarokk

„Þegar ég heyrði í fyrsta skipti lag með banda­rísku þung­arokk­hljóm­sveit­inni Pantera breytt­ist líf mitt. Næstu ár hlust­aði ég varla á annað. Ekki nóg með það, ég hugs­aði ekki um annað og tal­aði varla um annað. Ég skildi ekki að krakk­arnir í bekknum mínum fúlsuð við trylltu þung­arokki frá suð­ur­ríkjum Banda ríkj­anna í tímum þegar við máttum hlusta á tón­list. Pantera lit­aði svo tón­list­arsmekk minn næstu­árin. Stór­kost­legir tímar.“

„Ég skildi ekki að krakk­arnir í bekknum mínum fúlsuð við trylltu þung­arokki frá suð­ur­ríkjum Banda ríkj­anna í tímum þegar við máttum hlusta á tón­list.“

Jón Gnarr

„Jón er einn merkasti lista­maður sam­tím­ans. Hann hefur breytt lífi svo margra. Fóst­bræður stand­ast enn tím­ans tönn, Tvíhöfði er goð­sögn, skrýtna tíma­bilið þar sem hann skrif­aði bara um kaþ­ólska trú í Frétta­blaðið kemur mér enn úr jafn­vægi, Ég var einu sinni nörd hefur ekki enn verið toppað, aug­lýs­ing­arnar sem hann bjó til lifa enn í minn­ing­unni, Lýður Oddsson er eft­ir­minni­leg­asta per­sóna íslenskrar aug­lýs­inga­sögu, tíð hans sem borg­ar­stjóri er eitt best heppn­aða lista­verk Íslands­sög­unnar og ára­mótaskaupið hans var geggjað. Jón er ótrú­legur og hefur haft gríð­ar­leg áhrif á líf mitt.“

Texti / Roald Eyvinds­son
Aðalmynd/ Stilla úr Mín Reykja­vík.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina