Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hressandi hjólaferð um San Francisco

San Francisco er heill­andi borg sem hefur upp á margt að bjóða.

Hressandi hjólaferð um San Francisco

Vegna vinda sem blása frá Kyrra­haf­inu er veðrið milt allt árið um kring með svölum, nær úrkomu­lausum sumrum og hlýjum vetrum. Þrátt fyrir hæð­ótt lands­lag borg­ar­innar er til­valið að skoða hana á hjóli. Mannlíf fór nýlega í slíka ferð og sá stóran hluta borg­ar­innar á tólf tímum.

Í Alamo Square Park

Hjóla­leigur eru víðs­vegar um borg­ina og við völdum leigu við hlið­ina hót­el­inu okkar í mið­borg San Francisco, skammt frá Union Square, mekka versl­unar í borg­inni, sem heitir Blazing Saddles Bike Rentals and Tours. Þar var vel tekið á móti okkur, farið yfir helstu örygg­is­at­riði og hjóla­búnað. Hægt var að velja ferð með leið­sögn eða fara á eigin vegum. Við ætl­uðum á eigin vegum en vorum með nokkuð mót­aðar skoð­anir á hvað við vildum sjá. Í ljós kom að þau voru með merkt kort sem hent­aði okkur alger­lega, enda voru lang­anir okkar ekki mjög exó­tískar, bara allt þetta vin­sælasta í borg­inni. Einnig fengum við skrif­aðar upp­lýs­ingar um leið­ina. Mik­il­vægt er að hafa í huga að ekki er ætl­ast til að hjólað sé á gang­stéttum, hjóla þarf á göt­unni. Á mörgum stöðum eru hins vegar sér­hjóla­akreinar, græn­merktar.

Litríkar lafðir
Við byrj­uðum á að hjóla áleiðis í Golden Gate Park og okkar fyrsti við­komu­staður var Alamo Square Park sem er fal­legt grænt svæði sem liggur hátt uppi og þaðan er gott útsýni til dæmis yfir háhýsi mið­borg­ar­innar. Við eina hlið garðs­ins eru hin frægu hús Painted Ladies, röð vikt­or­ískra húsa við Steiner Street í fal­legum mis­mun­andi litum. Það er dásam­legt að setj­ast niður í þessum garði, virða fyrir sér útsýnið og jafn­vel fá sér smá­vegis nesti.

Andi hippa­menn­ing­ar­innar svífur yfir hverf­inu Haight-Ashbury.

Hippa­lífið
Næst lá leiðin í gegnum hippa­hverfið Haight-Ashbury sem er nefnt eftir gatna­mótum stræt­anna Haight og Ashbury. Andi hippa­menn­ing­ar­innar frá því á sjö­unda ára­tugnum svífur yfir og þarna eru margar skemmti­legar smá­versl­anir, veit­inga­staðir, grúví kaffi­hús og skraut­leg vegg­lista­verk. Nauð­syn­legt er að taka sjálfs­mynd við götu­skiltið á gatna­mótum Haight og Ashbury. Ég veit ekk­ert út af hverju, allir hinir krakk­arnir eru bara að gera það.

Garður gullna hliðs­ins
Þá komum við í Golden Gate Park sem er risa­stór almenn­ings­garður og nær frá hippa­hverf­inu út að strönd Kyrra­hafs­ins. Vel er hægt að verja heilum degi þarna, svo margt er hægt að skoða. Við hjól­uðum hægt í gegn og nutum þess sem varð á vegi okkar. Það má alveg mæla með Japanska tegarð­inum, göngu á Strawberry Hill og að skoða Stow Lake svo eitt­hvað sé nefnt. Einnig höfum við heyrt góða hluti um söfnin deYoung og California Academy of Sciences þó að við höfum ekki gefið okkur tíma til að stoppa þar í þess­ari ferð.

Seal Rocks-eyja­klas­inn séður frá Cliff House.

Svalur Kyrra­hafs­blær
Magnað er að koma út úr garð­inum og fá Kyrra­hafið í fangið, vind­ur­inn og kæl­ingin sem tók á móti okkur minnti stór­lega á íslenska veðr­áttu. Það hefur senni­lega oft verið meira líf á strönd­inni en þennan dag enda gera íbúar borg­ar­innar senni­lega aðeins meiri kröfur en við Íslend­ingar þegar kemur að hita­tölum á strönd­inni. Okkur fannst hins vegar gott að finna fyrir svölu sjáv­ar­loft­inu og hjól­uðum með fram sjónum í átt að Cliff House. Þar er vin­sælt veit­inga­hús og flottur útsýnis­pallur yfir Seal Rocks-eyja­kla­s­ann og Sutro Baths, rústir stórrar almenn­ings­sund­laugar með salt­vatni, sem opnuð var 1896 en brann árið 1966.

Strekk­ings­vindur er oft­ast þvert á Golden Gate-brúnna.

Brúin ógur­lega
Þegar þangað var komið byrj­aði gleðin upp í móti fyrir alvöru. Til að kom­ast að Golden Gate-brúnni sem var okkar næsti áfanga­staður þurftum við að hjóla upp og niður nokkrar hæðir og lærin fengu sann­ar­lega að finna fyrir því. Frá China beach er glæsi­legt útsýni yfir brúna frægu og farið að stytt­ast í að við kæmum að þess­ari heims­frægu smíð. Við brúna er helj­ar­innar þjón­ustu­mið­stöð og vel haldið utan um ferða­menn. Við stopp­uðum þar í stutta stund áður en við héldum yfir brúna og tókum auð­vitað nokkrar myndir. Þar sem klukkan var orðin 16 þurftum við að hjóla á vest­ari hluta brú­ar­innar og þá er aust­ari hlut­inn aðeins opinn göngu­fólki. Fyrri part dags­ins er aust­ari hlut­inn opinn bæði gang­andi og hjólandi veg­far­endum. Strekk­ings­vindur var á brúnni og á stundum alls ekki auð­velt að hjóla en mikið var þetta skemmti­leg upp­lifun. Við stopp­uðum nokkrum sinnum til að taka myndir við lít­inn fögnuð atvinnu­hjól­reiða­fólks sem skamm­aði okkur fyrir að stoppa á „hræði­legum stöðum“. Við reyndum því að láta lítið fyrir okkur fara.

Alcatraz séð frá Piar 39.

Strand­bær og veð­ur­blíða
Hinum megin við fló­ann var eins og að koma inn í nýtt lofts­lag, við komumst fljót­lega í var fyrir vind­inum og nutum blíð­unnar á norð­ur­bakk­anum. Ferðinni var heitið í bæinn Sausa­lito sem er afar fal­legur og þaðan er gott útsýni yfir að San Francisco. Við fengum okkur að borða á frá­bærum litlum pizzastað við strönd­ina, stað sem heitir Venice Gourmet Delicatessen & Pizzeria. Hjóla­leigan hafði í upp­hafi látið okkur hafa miða í ferju sem tók okkur aftur til San Francisco sem rukkað er fyrir í lok ferðar ef mið­arnir eru not­aðir. Við ákváðum að nýta okkur mið­ana og tókum ferj­una aftur á aust­ur­bakk­ann.

Sæljón flat­maga við Piar 39.

Ferju­ferð og fal­legar bryggjur
Á leið­inni fórum við fram hjá hinni frægu Alcatraz-eyju og komum í land við bryggj­una við Ferry Building Marketplace. Þarna var klukkan orðin 19 en við ákváðum samt að skoða höfn­ina. Við hjól­uðum að hinni frægu Pier 39 þar sem mikið er um að vera og við sáum meðal ann­ars sæljónin flat­maga. Við end­uðum bryggjurúnt­inn í Fis­hermans Wharf og sáum í hendi okkar að þaðan er frekar stutt að krækl­óttu göt­unni á Lombard Street. Á kort­inu sást hins vegar ekki hversu miklar hæðir við þurftum að klífa til að kom­ast þangað en við létum okkur samt hafa það og hjól­uðum sigri hrós­andi niður þessa frægu götu í ljósa­skipt­unum. Klukkan 22 vorum við komnar aftur að hót­el­inu og skil­uðum hjól­unum eftir tólf tíma vel heppn­aða reisu og áttum skilið að enda þennan dag á Cheesecake Factory sem er við Union Square.

WOW air flýgur til San Francisco allt árið um kring. Verð frá 14.499 kr. aðra leið með sköttum.

Texti og myndir / Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni