Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Út fyrir miðborg Dublin

Sjar­mer­andi og auð­veldar dags­ferðir á fal­lega áfanga­staði rétt fyrir utan Dublin.

Út fyrir miðborg Dublin

Dublin hefur lengi verið vin­sæll áfanga­staður íslenskra ferða­langa og margir heim­sækja hana oftar en einu sinni. Enda ekki furða þar sem borgin er fal­leg og býður upp á ýmsa skemmti­lega afþr­ey­ingu, lif­andi tón­list og áhuga­verð söfn. Írar eru þekktir fyrir gest­risni sína og vina­lega fram­komu. Auðvelt er að ferð­ast um borg­ina og nýta má almenn­ings­sam­göngur til að ferð­ast til þorpa og bæja sem liggja rétt fyrir utan Dublin og það er vel þess virði að stökkva upp í lest, njóta útsýn­is­ins og sjá meira en bara mið­borg­ina.
Í Dublin eru tvö lest­ar­kerfi, ann­ars vegar létt­lestin LUAS sem nýlega hefur verið lengd og má taka víðs­vegar um borg­ina. Hins­vegar er það gamla DART-lestin sem tengir úthverfi og þorp sem finna má við strand­lengju borg­ar­innar. DART-lestin býður upp á fal­legt útsýni, er nota­leg leið til að ferð­ast á milli staða og er ekki mjög dýr far­ar­kostur.

HOWTH
Howth (sjá mynd) var eitt sinn lítið sjáv­ar­þorp þar sem íbúar byggðu afkomu sína á fisk­veiðum og að tak­mörk­uðu leyti á land­bún­aði. Í dag er Howth rík­mann­legt úthverfi Dublin-borgar og laðar að sér gesti sem koma þangað í göngu­ferðir eða til að spóka sig á hafn­ar­svæð­inu. Finna má fal­legar göngu­leiðir á nes­inu og ég mæli sér­stak­lega með að ganga með fram kletta­belti Howth en þar má stundum sjá hug­aða unga Íra stinga sér í sjó­inn frá klett­unum. Howth er þekkt fyrir fisk og franskar (fish and chips) og þar eru Beshoff Bros fræg­astir en einnig má finna veit­inga­staði við höfn­ina þar sem setj­ast má niður og fá sér drykk og góða sjáv­ar­rétti. Vinsælt er að fá sér eitt glas af Guinness og ferskar ostrur.

Norðan við mið­borg Dublin er Malahide sem er fal­legt gam­alt þorp en er nú hluti af borg­inni sjálfri.

MALAHIDE
Norðan við mið­borg Dublin er Malahide sem er fal­legt gam­alt þorp en er nú hluti af borg­inni sjálfri. Svæðið á sér langa sögu og vitað er að vík­ingar áttu aðsetur þar á 8. öld. Líkt og í Howth var mikil hafn­ar­starf­semi á staðnum og um tíma var fram­leitt salt í Malahide. Síðar meir varð þorpið vin­sælt meðal auð­ugra Dublin­ar­búa sem byggðu sér glæsi­leg hús sem setja mik­inn svip á hverfið. Eitt aðal­að­drátt­ar­afl Malahide er kastal­inn og nán­asta umhverfi hans. Hægt er að skoða kast­al­ann með leið­sögu­manni gegn gjaldi. Hjá kast­al­anum er lít­ill en snotur grasa­garður sem gaman er að heim­sækja og þar rétt hjá er risa­stór og flottur leik­völlur sem ætti að slá í gegn hjá þeim sem ferð­ast með börn. Innan lóða­marka kast­al­ans má finna sæl­kera­búð­ina Avoca þar sem kaupa má hress­ingu, kaffi og vistir fyrir laut­ar­ferð í garð­inum.

Gray­sto­nes liggur við enda DART-lest­ar­lín­unnar og þaðan má ganga vel þekkta göngu­leið yfir í bæinn Bray, eða öfugt.

GRAYSTONES OG BRAY
Sunnan Dublin liggja bæirnir Gray­sto­nes og Bray. Lest­ar­leið­inni þangað er oft lýst sem einni fal­leg­ustu sam­göngu­leið á Írlandi og býður upp á mik­il­feng­legt útsýni út á sjó og með fram kletta­beltum strand­lengj­unnar. Gray­sto­nes liggur við enda DART-lest­ar­lín­unnar og þaðan má ganga vel þekkta göngu­leið yfir í bæinn Bray, eða öfugt. Báðir bæirnir bjóða upp á ýmsa góða veit­inga­staði þar sem svala má þorsta og hungri eftir göngu­ferð dags­ins.

WOW air flýgur til Dublin allt árið um kring. Verð frá 6.499 kr. aðra leið með sköttum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni