Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Harpa Lind Harðardóttir og Stefán Gíslason eiga geggjað flott parhús í Garðabæ

Harpa Lind Harðardóttir og Stefán Gíslason eiga geggjað flott parhús í Garðabæ

Akra­hverfið í Garðbæ er nýlegt hverfi og þar eru enn þá ný hús að rísa. För okkar er heitið í veg­legt par­hús við Byggakur þar sem Harpa Lind Harð­ar­dóttir og Stefán Gíslason, fyrr­ver­andi knatt­spyrnu­maður, búa ásamt þremur sonum sínum en hjónin eiga hús­gagna­versl­un­ina Willamia á Garða­torgi.

„Sigurður Hall­gríms­son arki­tekt teikn­aði húsið sem er 276 fer­metra par­hús á tveimur hæðum. Upp­haf­lega skipu­lagið gerði ráð fyrir svefn­her­bergjum á báðum hæðum en við vildum hafa öll svefn­her­bergin á efri hæð­inni og breyttum því hönn­un­inni og létum teikna húsið að innan upp eftir okkar óskum. Við vildum til dæmis geta gengið líka beint inn í bíl­skúr­inn því við eigum þrjá stráka, á aldr­inum fimm til átján ára, sem eru allir í fót­bolta og vildum hafa bað­her­bergi með sturtu og þvotta­hús þar inni þannig að þegar þessir tveir eldri koma heim af æfingum geta þeir farið þar inn þar, sett æfinga­fötin beint í óhreina tauið og farið í sturtu. Fót­bolta­dótið kemur því ekki hér inn,“ segir Harpa ánægð að fá ekki illa lykt­andi fót­bolta­skó og íþróttafatnað inn í hús.

Hafa búið í fjórum löndum

Stefán er hand­lag­inn og Harpa er lærður inn­an­húss­hönn­uður sem kemur sér vel því fjöl­skyldan hefur flutt mjög oft og búið í fjórum löndum á fimmtán árum.

„Í hvert skipti sem við flytjum skipti ég um stíl. Þegar við bjuggum í Danmörku var stíll­inn mjög skand­in­av­ískur og í Belgíu þar sem við bjuggum síð­ast vorum við með allar inn­rétt­ingar hvítar, hvíta veggi og rosa­lega ljóst parket, ég þurfti nán­ast að vera með sól­gler­augu inni því það var svo bjart,“ segir hún og hlær.

„Smekk­ur­inn hjá okkur hefur stöðugt verið að breyt­ast með tím­anum og svo er eig­in­lega til vand­ræða að eiga hús­gagna­verslun því maður er alltaf að sjá eitt­hvað nýtt og spenn­andi sem er freist­andi að fara með heim,“ segir hún í léttum tón og bætir við að þau séu mjög ánægð með heim­ilið eins og það er núna.

„Mér finnst miklu meira kósí að hafa heim­ilið aðeins dekkra, ekki allt hvítt, það er nota­legra. Við viljum heldur ekki vera með of mikið af hús­gögnum og dóti, okkur finnst þetta pass­legt svona. Mitt áhuga­svið liggur svo­lítið í þessu, mér finnst líka gaman að breyta og að hafa heim­ilið ekki alltaf eins, núna heillar mig að blanda saman ólíkum efnum eins og flaueli og svo gróf­ari áferð. Ég er eig­in­lega alltaf að breyta og færa til hluti og heill­ast alltaf af ein­hverju nýju,“ segir Harpa Lind bros­andi.

Í júlí­blaði Húsa og híbýla sem er fáan­legt í versl­unum til 26. júlí má sjá fleiri myndir úr þessa fal­lega par­húsi.

Myndir / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni