Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Litríkur bóhemstíll hjá eiganda Akkúrat

Sigrún Guðný Mark­ús­dóttir er eig­andi hönn­un­ar­versl­un­ar­innar Akkúrat en hún hefur verið við­loð­andi versl­un­ar­brans­ann í mörg herr­ans ár. Við heyrðum í Sigrúnu og fengum að kíkja til hennar í morg­un­kaffi á Kvist­hag­ann þar sem hún býr í skemmti­legri ris­í­búð ásamt dætrum sínum tveimur; Aniku og Salvöru.

Litríkur bóhemstíll hjá eiganda Akkúrat
Ljós­myndin af stúlkunni með rett­una er frægt plötu­umslag plöt­unnar Greeen Mind og heldur Sigrún mikið upp á hana. Jólatréð er úr Garð­heimum.

Sigrún var með jóla­lög á fón­inum þegar við mættum og litlar jólakúlur lágu á borð­stofu­borð­inu til­búnar að skreyta jóla­tréð sem stóð nett og pent í stof­unni, örugg­lega minnsta jóla­hrísla sem við höfum myndað fyrir Hús og híbýli en samt svo ógur­lega sjar­mer­andi hrísla.

Sigrún hlær þegar við játum að hafa aldrei séð svona smátt jóla­tré og seg­ist bara vera mjög nægju­söm í líf­inu. Hún játar að vera svo­lít­ill hippi í sér og kaupir sér sjaldan eitt­hvað nýtt nema það heilli hana alveg upp úr skónum. Hún á því hluti og hús­gögn sem hafa fylgt henni lengi.

„Ég er til dæmis alltaf á leið­inni að fá mér nýtt sófa­borð en svo þykir mér svo ógur­lega vænt um þetta að ég læt ekki verða af því. Þetta borð er frá Fil­ipps­eyjum og allt ein­hvern veg­inn snúið og skakkt en það er bara svo mikil sál í því.“

En hvar kaupir hún þá helst hús­gögn og annað fyrir heim­ilið? „Ég keypti mikið af því sem ég á á flóa­mörk­uðum í Danmörku. Við bjuggum fyrst á Nørrebro í Kaup­manna­höfn og þar í kring er svo mikið af alls konar mörk­uðum og við gátum bara gengið heim með hús­gögnin. Einu sinni keyptum við meira að segja sófa og rog­uð­umst heim með hann fót­gang­andi,“ segir hún hlæj­andi.

Ég er til dæmis alltaf á leið­inni að fá mér nýtt sófa­borð en svo þykir mér svo ógur­lega vænt um þetta að ég læt ekki verða af því.
Styttuna af stráknum og hund­inum keypti Sigrún í Rauða­kross­búð­inni á sínum tíma.

Vesturbærinn að verða nafli alheimsins

„Ég er úr Mosó en ég fór til­tölu­lega ung að heiman og fór þá að leigja á Berg­staða­stræti og svo á Lokastíg og bjó alltaf í mið­bænum á þessum árum. Svo fluttum við, ég og minn fyrr­ver­andi, til Dan­merkur í nokkur ár og þegar við vorum að flytja heim til Íslands aftur þurftum við að taka ákvörðun um hvar við vildum búa. Þar sem margt af okkar fólki bjó hér í Vest­ur­bænum lá bein­ast við að flytja hingað. For­eldrar mínir búa að vísu enn þá í Mosó og mér finnst æðis­legt að koma þangað; dal­ur­inn er ynd­is­legur og bær­inn líka. Okkur lang­aði samt meira að búa hérna.“

Hvað finnst þér best við Vest­ur­bæ­inn?

„Þetta er svo­lítið eins og lít­ill bær inni í borg, eins og til dæmis Fred­riks­berg í Danmörku, þar sem ég bjó en þar er sér­borg­ar­stjóri og bær­inn svo­lítið bara eins og komm­úna inni í borg­inni. Hér er allt sem ég þarfn­ast; ég fer mjög mikið í sund í Vest­ur­bæj­ar­laug­ina og rækt­ina út á Nesi, stelp­urnar mínar eru í KR í íþróttum og svo er örstutt að ganga í mið­bæ­inn. Brauð og co er svo við hlið­ina á Kaffi Vest þannig að Vest­ur­bær­inn er bara að verða nafli alheims­ins,“ segir hún og hlær.

Tinna­myndin lit­ríka var keypt í barna­deild­inni í Hagkaup fyrir alda­mótin en hún er sér­lega skemmti­leg og lit­rík.

Ferðamennirnir hrifnir af íslenskri hönnun

Sigrún hefur verið við­loð­andi versl­un­ar­brans­ann í mörg ár, hún byrj­aði sem inn­kaupa- og versl­un­ar­stjóri hjá NTC fyrir 27 árum. Hún var seinna vöru­merkja- og útflutn­ings­stjóri hjá Cintamani og í fram­hald­inu fram­kvæmda­stjóri Schintilla.

Mynd / Hákon Davíð

En hvað varð til þess að hún ákvað að opna eigin verslun?

„Ég átti fyrir mörgum árum versl­un­ina Flauel á Lauga­vegi með Báru í Aftur og það blund­aði í mér að fara út í eitt­hvað sjálf aftur. Svo kom tæki­færið þegar Hönn­un­ar­mið­stöð bauð út plássið í Aðal­stræti 2, þá ákvað ég að hella mér út í þetta, búa til „concept“ og fá strák­ana í hönn­un­ar­stúd­íó­inu Döðlum til liðs við mig og úr þeirri sam­vinnu og hug­mynda­vinnu varð hönn­un­ar­versl­unin Akkúrat til.

Hug­myndin er að bjóða upp á rjómann af íslenskri hönnun og íslenskri list. Svo erum við með um það bil 30% nor­ræn merki sem passa inn í „conceptið“ Akkúrat,“ útskýrir hún.

En hvernig gengur að reka hönn­un­ar­verslun í mið­bænum, stað­setn­ingin hlýtur að trekkja að ferða­menn? „Við erum frá­bær­lega stað­sett og það er mikil traffík af ferða­mönnum en Íslend­ing­unum fer fjölg­andi með mán­uði hverjum. Ferða­menn­irnir eru mjög hrifnir af fata­lín­unni frá Döðlum sem heitir By Döðlur, kertin frá íslensku hönn­uð­unum eru líka mjög vin­sæl og eig­in­lega allt bara.

Það er mikil traffík af ferða­mönnum en Íslend­ing­unum fer fjölg­andi með mán­uði hverjum.

Svo er danska merkið Nomess Copenhagen mjög vin­sælt. Íslend­ingar eru mjög hrifnir af því og við ætlum að bæta við stærri vörum frá þeim en Nomess setti fyrstu vör­unar á markað fyrir tíu árum og vöru­línan er nú orðin mjög breið og spenn­andi.“

Litríkur bóhemstíll

Borð­stofu­borðið fékk Sigrún upp­haf­lega lánað hjá vina­fólki sínu, Sigga Hall og Svölu. Sigrúnu grunar að borðið sé eftir sama hönnuð og þann sem hann­aði gamla sjú­skaða stól­inn í stof­unni. Brúna verkið á veggnum er eftir Unni Guðnýju Gunn­ars­dóttur.

Hvernig myndir þú lýsa þínum stíl?

„Ég myndi ekki segja að hann væri mjög skand­in­av­ískur, kannski örlítið, ég myndi frekar segja bóhemstíll og mikið af litum, ég hef alltaf verið mjög lit­rík þegar kemur að heim­il­inu. Ég er svo­lítið „fiftís“ og list frá þeim tíma heillar mig; Art Deco finnst mér rosa­lega flott. Ég held að ég verði að segja að upp­á­halds­lit­ur­inn minn sé bleikur, í bland við her­manna­grænan í fata­vali. Þessir tveir litir eru mín upp­á­halds­lita­sam­setn­ing,“ segir hún og við verðum líka að for­vitn­ast hvaða íslensku hönn­uðir séu í upp­á­haldi hjá henni.

Ég er svo­lítið „fiftís“ og list frá þeim tíma heillar mig.

„Döðlur, bara í öllu sem þeir eru að hanna og gera. Þeir Daníel og Hörður sem eru Döðlu-teymið eru báðir ótrú­lega færir í sínu fagi,“ svarar hún án umhugs­unar.

Langar í Lítið, sætt sixtíshús við sjóinn

Bakkinn undir aðventu­skreyt­ing­unni er eftir Dögg design.

Þú hefur búið í mið­bænum, Mosó, Danmörku og núna ertu í Vest­ur­bænum, hvar og hvernig væri drauma­húsið þitt? „Það væri lítið, flott, six­tís­hús við sjó­inn í Reykja­vík og litli sum­ar­bú­stað­ur­inn sem ég ætla að byggja sem verður úr end­ur­nýttum efnum,“ segir hún hugsi.

Í ris­her­berg­inu er motta frá Area Art. Rúm­teppið fal­lega er frá U SEE STUDIO og fæst í hönn­un­ar­versl­un­inni Yppsilon sem er stað­sett beint fyrir ofan Akkúrat

En hvað með ára­móta­heit?

„Ég strengi oft ára­móta­heit og skrifa þá niður mark­mið mín fyrir nýtt ár, en ég geri það líka stundum á afmæl­is­dag­inn minn og set svo mið­ann í krukku eða eitt­hvað sem ég geymi og ekki má opna fyrr en að ári liðnu. Þá sér maður svo vel hvar maður er staddur í líf­inu og þar sem ég man aldrei hvað ég skrif­aði er ég alltaf mjög spennt að skoða það. Mér finnst gott að gera þetta stundum,“ svarar hún hress og fær sér kaffi­bolla.

Myndir / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni