Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

VOGUE FYRIR HEIMILIÐ

Þekking, reynsla og per­sónu­leg þjón­usta í fyr­ir­rúmi.

VOGUE FYRIR HEIMILIÐ
2. tbl. 2017, Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir, kynn­ing, Kynn­ing­ar­síða, Mannlíf, Vogue, vörur, ML1711069276
„Góð dýna skiptir gríða­lega miklu máli þar sem við eyðum um það bil einum þriðja hluta ævinnar í svefn og hver vill ekki hvíl­ast vel og eigan glaðan dag fram undan,“ segir versl­un­ar­stjór­inn Kolbrún Birna Hall­dórs­dóttir.

„Vogue fyrir heim­ilið sam­anstendur af gam­al­grónum traustum fyr­ir­tækjum en þekk­ing og reynsla er eitt­hvað sem við búum að og leggjum mikið kapp í að þjón­usta kúnn­ann sem best,“ segir Kolbrún Birna Hall­dórs­dóttir versl­un­ar­stjóri.

„Við bjóðum upp á vefn­að­ar­vöru, glugga­tjöld, hús­gögn og rúm. Einnig bjóðum við upp á fal­lega gjafa­vöru. Vogue fyrir heim­il­ilið hefur lagt áherslu á íslenska fram­leiðslu og hönnun.Við bjóðum upp á íslenskt heilsu­rúm og dýnur í miklu úrvali. Einnig fram­leiðum við svefn­sófa og fram­leiðum og saumum glugga­tjöld.“

HEILSUDÝNA KLÆÐSKERASNIÐIN FYRIR HVERN OG EINN

Vogue, áður Lystadún-Snæland, er búið að þróa og hanna heilsu­dýnu til margra ára í hæsta gæða­flokki sem kall­ast MEDILINE. Mediline-línan er heilsu­dýna sem er klæð­skera­sniðin fyrir hvern og einn. Hver við­skipta­vinur fær sinn stífleika og er lagt mikið upp úr því að mæla hann og meta hvaða dýna hentar honum. Hægt er að hafa mis­mun­andi stífleika í sömu dýn­unni þannig að hver og einn fær dýnu sem hentar honum.

Mediline-heislu­dýnan er til í mörgum stífleikum og í mis­mund­andi útgáfum svo sem svæða­skipt pokagorma­dýna, svæða- og lag­skipt svamp­dýna eða svæða­skipt latex­dýna. Á þennan hátt getur Vogue boðið upp á eitt mesta úrval lands­ins af heilsu­dýnum.

„Vogue fyrir heim­il­ilið hefur lagt áherslu á íslenska fram­leiðslu og hönnun.Við bjóðum upp á íslenskt heilsu­rúm og dýnur í miklu úrvali. Einnig fram­leiðum við svefn­sófa og fram­leiðum og saumum glugga­tjöld.“

„Sjúkra­þjálf­ari kemur til okkar alla fimmtu­daga milli klukkan 16-18 til að aðstoða fólk við val á dýnum, einnig erum við með frá­bært starfs­fólk með mikla reynslu og kunn­áttu á sínu sviði,“ segir Kolbrún Dóra og er afar ánægð með að geta boðið við­skipta­vinum upp á úrvals­þjón­ustu.

„Góð dýna skiptir gríða­lega miklu máli þar sem við eyðum um það bil einum þriðja hluta ævinnar í svefn og hver vill ekki hvíl­ast vel og eigan glaðan dag fram undan.“

VAL UM ÁKLÆÐI FYRIR RÚM OG HÖFUÐGAFL

„Útlitið skipir líka máli og getur fólk valið um marga mögu­leika á áklæðum fyrir rúmið sitt og höfða­gafl hvort heldur sem er úr taui eða leð­ur­líki. Þá bjóðum við fólki einnig upp á sér­saum á púðum, ábreiður og aðrar lausnir sem henta og passa við rúmið þeirra. Þar sem hönnun, þróun og fram­leiðsla er hér á landi náum við að hafa afhend­ing­ar­tím­ann 3-5 daga frá pöntun.“

Að sögn Kol­brúnar skiptir útlitið líka máli og getur fólk valið um marga mögu­leika á áklæðum fyrir rúmið sitt og höfða­gafl hvort heldur sem er úr taui eða leð­ur­líki.

ORRI, NENNASTÓLLINN, LOKI OG HRÚGÖLD

Vogue fyrir heim­ilið er búið að end­ur­hanna hinar ýmsu vörur sem Lystadún-Snæland bauð upp á. Hver man ekki eftir svamp­hest­inum sem nú ber nafnið Orri og er til í þremur stærðum, Nenna stóll­inn er líka kom­inn í nýjan bún­ing. Þessi hönnun kom fyrst á markað 1968 og verður því fimm­tíu ára á næsta ári en þessar vörur njóta mik­illa vin­sælda enn í dag. Þá hefur svefn­stóll­inn sem er einnig hönnun frá Snæland fengið nýtt útlit og nafnið Loki. Hann hefur fengið frá­bærar mót­tökur. Hrúgöld eru klassík frá Snæland og hafa alltaf verið vin­sæl í jóla­gjöf. Ekki skemmir að hægt er að hanna allar þessar vörur í nán­ast ótelj­andi litum þannig að hægt er að finna lit og áklæði sem passa inn á heim­ili hvers og eins.

Hver man ekki eftir svamp­hest­inum sem nú ber nafnið Orri og er til í þremur stærðum.

SÆDÍSIN SÉRHÖNNUÐ FYRIR SJÓMANNINN

„Þá má ekki gleyma að við bjóðum upp á allar gerðir stuðn­ings­púða og höfum sinnt sjúkra­stofn­unum okkar í meir en 65 ár með þær vörur. Ein­stak­lingar geta keypt þær beint hjá okkur líka. Þá er Sædísin okkar heilsu­dýna sem er sér­hönnuð fyrir sjó­mann­inn og er nán­ast í hverju skipi okkar Íslend­inga í dag. Við erum stolt af allri þeirri fram­leiðslu sem fer fram í hús­inu.“

„Sjúkra­þjálf­ari kemur til okkar alla fimmtu­daga milli klukkan 16-18 til að aðstoða fólk við val á dýnum, einnig erum við með frá­bært starfs­fólk með mikla reynslu og kunn­áttu á sínu sviði,“ segir Kolbrún.

Umsjón / Sjöfn Þórð­ar­dóttir
Myndir / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

VOGUE FYRIR HEIMILIÐ
SÍÐMÚLA 30
108 REYKJAVÍK

SÍMI: 553 3500
WWW.VOGUE.IS

VOGUE FYRIR HEIMILIÐ
HOFSBÓT 4
600 AKUREYRI
SÍMI: 462 3504
WWW.VOGUE.IS

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur