Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Fótboltabækur Drápu skora hátt

Fót­boltist­arnir, Fót­bolta­spurn­ingar og Allt um fót­bolta­heim­inn.

Útgefandinn
Útgef­and­inn Ásmundur kampa­kátur með fót­bolta­bæk­urnar frá Drápu. Mynd: Aðsend

Fréttir af sölu barna- og ung­linga­bóka hafa verið jákvæðar und­an­farnar vikur, og ekki veitir af sé litið til umræðu um læsi barna og ung­linga. Það má færa rök fyrir því að bækur fyrir þessa hópa séu mik­il­væg­ustu bækur sem koma út. Und­an­farin ár hafa börn og ung­lingar fengið sífellt færri bækur í jóla­gjöf en það er þá kannski að breyt­ast.

Fjöldi bóka um fót­bolta hefur sjaldan verið meiri en nú í ár og það gæti verið hluti af skýr­ing­unni á sölu­aukn­ingu bóka fyrir börn og ung­linga. Bóka­út­gáfan Drápa hefur verið dug­leg við að gefa út fót­bolta­bækur og í ár gefur Drápa út þrjár bækur þar sem fót­bolt­inn er í aðal­hlut­verki.

Fótboltaspurningar

„Við erum með þrjár ólíkar bækur sem byggj­ast á hinum fal­lega leik,“ segir Ásmundur Helgason, annar eig­andi Drápu. „Við erum með eina spurn­inga­bók eftir sjálfan Illuga Jök­uls­son sem heitir ein­fald­lega Fót­bolta­spurn­ingar Illuga Jök­uls­sonar. Þessi er númer tvö í röð­inni, sú fyrri koma út fyrir ári síðan. Illugi stillir bók­inni upp í 15 kafla sem inni­halda 15 spurn­ingar hver. Spurn­ing­arnar eru ótrú­lega fjöl­breyttar. Hann spyr um bolt­ann hér heima, fer líka víða um heim, og spyr bæði um kvenna- og karla­bolt­ann. Leik­vellir, bún­ingar, stuðn­ings­menn, gælu­nöfn, HM, EM, Meist­ara­deildin, Íslands­mótið og allt hitt – ég efast um að nokkur maður geti vitað öll svörin. Og þó að maður standi á gati þá er bókin stór­skemmti­leg og mjög fróð­leg. Ég sjálfur veit tals­vert meira en ég gerði áður en ég las bók­ina.“

Fót­boltist­arnir

„Fót­boltist­arnir er bóka­flokkur sem við fáum frá Spáni. Nýjasta bókin heitir Ráðgátan um stolnu stytt­una. Bækurnar eru um krakk­ana í Skóg­ar­gerði. Í byrjun hverrar bókar eru þau að fara að spila úrslita­leik en svo kemur eitt­hvað uppá, það skap­ast eitt­hvað vanda­mál (eða ráð­gáta) utan­vallar sem þau þurfa að leysa. Og þá reynir á sam­taka­mátt­inn. Þau leysa málið og svo klár­ast leik­ur­inn í lok bókar. Stundum vinna þau en stundum tapa þau við­kom­andi leik. Þessi bóka­flokkur er ógn­ar­vin­sæll á Spáni og hafa gert höf­und­inn að vin­sælasta barna­bóka­höf­undi Spánar.“

Allt um fót­bolta

„Síðasta bókin um fót­bolta sem við erum með fjallar hrein­lega um allt um fót­bolt­ann. Enda heitir hún Allt um fót­bolta­heim­inn. Hér er farið yfir allar heims­álf­urnar, fræg­ustu liðin, bestu fót­bolta­kon­urnar og -karlan, og svo fram­vegis og fram­vegis. Þessi bók kemur líka frá Spáni og við ákváðum að gefa hana út þar sem hún afar aðgengi­leg fyrir unga les­endur. Stuttir textar og ríku­lega mynd­skreytt.“

„Af hverju fót­bolta­bækur spyrðu? Kannski vegna þess að við höfum góða reynslu af því að gefa út bækur um fót­bolta og við finnum það að t.d. ömmur og afar velja fót­bolta­bækur gjarnan sem jóla­gjafir. Það spilar kannski líka inní að ég er hald­inn fót­bolta­dellu á háu stigi. Lifi Þróttur!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Vefur Félagsins Ísland-Palestína liggur niðri eftir árásina og óvíst er hvort hægt verði að endurheimta hann.
Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur