Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Tilkynning: Nýtt og breytt Mannlíf

Sam­ein­aða útgáfu­fé­lagið tekur yfir útgáf­una.

Tilkynning: Nýtt og breytt Mannlíf
Lógó Mannlífs Nýverið var eldra lógó Mannlífs frá níunda og tíunda ára­tugnum end­ur­vakið í nýrri hönnun. Mynd: Mannlíf

Á fjör­tíu ára sögu hefur Mannlíf tekið á sig mis­mun­andi birt­ing­ar­myndir. Nú er tekin við önnur end­ur­nýjun þegar Sam­ein­aða útgáfu­fé­lagið hefur fengið sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins til að taka form­lega við rekstri mið­ils­ins.

Síðustu vikur hefur end­ur­mótun Mannlífs verið yfir­stand­andi með fyr­ir­vara um sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Mannlíf verður áfram áhuga­drif­inn frétta­mið­ill með þann til­gang að veita merk­ing­ar­bæra inn­sýn í mál­efni sam­fé­lags­ins og reynslu­heim fólks, án áhrifa hags­muna- og stjórn­mála­afla.

Áhuga­verðar og beittar fréttir verða birtar úr ýmsum efn­is­flokkum, meðal ann­ars pen­inga, póli­tík, heims­málin, atburði inn­an­lands og stór sam­fé­lags­mál. Unnið verður að því að end­ur­vekja efn­is­þætti sem tengdir hafa verið tíma­rit­inu Mannlífi í gegnum tíð­ina, svo sem úttektir, nær­myndir og Mann­lífs­við­töl. Áfram verður því gef­inn gaumur sem ger­ist bak­við tjöldin í stjórn­málum, við­skiptum og menn­ingu í stíl kass­ískra slúð­ur­dálka dag­blaða og tíma­rita.

Afmark­aður hluti af efni Mannlífs verður í fram­hald­inu ein­göngu opinn áskrif­endum sem tíma­rits­efni. Þar er um að ræða tíma­frek­ari blaða­mennsku sem ekki verður fjár­mögnuð með aug­lýs­inga­tekjum af flett­ingum einum saman. Nægt fram­boð verður þó af opnum dag­legum fréttum. Lesendum, sem þannig líst á, verður síðan gefið tæki­færi til að styrkja mið­il­inn.

Gefið út af Sameinaða útgáfufélaginu

Yfir­takan kemur í kjöl­far þess að tveir af 23 eig­endum Sam­ein­aða útgáfu­fé­lag­ins sam­þykktu að afhenda félag­inu Mannlíf og tengdar eignir án end­ur­gjalds, úr félag­inu Sól­ar­túni ehf, til þess að stuðla að fram­gangi og þróun fjöl­mið­ils­ins, sem stofn­aður var árið 1984.

Til­gangur Sam­eig­in­lega útgáfu­fé­lags­ins með yfir­tök­unni er að styðja fjöl­breytta fjöl­miðlun á Íslandi í krafti sam­legð­ar­á­hrifa, með það að augna­miði að sem flestir Íslend­ingar hafi aðgang að fag­legri og heið­ar­legri blaða­mennsku, á for­sendum almanna­hags­muna frekar en sér­hags­muna. Vegna sér­reglna um fjöl­miðla var yfir­takan til­kynnt til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, en í öðrum geirum er við­mið um þriggja millj­arða veltu sam­runa­að­ila. Þetta fyr­ir­komu­lagið kemur til vegna lýð­ræð­is­legs hlut­verks fjöl­miðla og til að vinna gegn sam­þjöppun valds.

Stuðlað að fjölbreytni og fjölræði

Mat Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins og Fjöl­miðla­nefndar var að yfir­taka Sam­ein­aða útgáfu­fé­lags­ins á miðl­inum Mannlífi og tengdum eignum hefði ekki nei­kvæð áhrif.

Í mati Fjöl­miðla­nefndar kom fram að sam­run­inn hefði ekki í för með sér „sam­þjöppun á fjöl­miðla­mark­aði sem áhrif hafi á fjöl­ræði“ og tekur Sam­keppn­is­eft­ir­litið undir það í ákvörðun sinni.

„Mik­il­vægt sé að á íslenskum mark­aði séu öfl­ugir og sjálf­stæðir fjöl­miðlar sem miðla fjöl­breyttu efni“
Fjöl­miðla­nefnd

Í ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins segir að „Fjöl­miðla­nefnd sé lögum sam­kvæmt ætlað að stuðla að fjöl­breytni og fjöl­ræði á íslenskum fjöl­miðla­mark­aði. Mik­il­vægt sé að á íslenskum mark­aði séu öfl­ugir og sjálf­stæðir fjöl­miðlar sem miðla fjöl­breyttu efni, þar sem ólíkum sjón­ar­miðum sé haldið á lofti. Að sama skapi sé mik­il­vægt að lands­mönnum standi til boða vandað frétta­efni á íslensku þar sem leit­ast sé við að greina íslenskt sam­fé­lag og setja inn­lendar og erlendar fréttir í sam­hengi fyrir almenn­ing hér á landi.“

Á þeim grunni er yfir­takan sam­þykkt án frek­ari athug­unar. „Með vísan til alls fram­an­greinds er það nið­ur­staða Fjöl­miðla­nefndar að kaup SÚ á stærstum hluta fjöl­miðla­rekst­urs Sól­ar­túns hafi hvorki skað­leg áhrif á fjöl­ræði né fjöl­breytni í fjöl­miðlun á þeim mörk­uðum sem við­kom­andi fjöl­miðla­veitur starfa á,“ segir í ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Ákvörðun hluthafa og stjórnar

Ákvörðun um yfir­töku á Mannlífi tók stjórn Sam­ein­aða útgáfu­fé­lags­ins, að fengnu umboði hlut­hafa­fundar félags­ins 20. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Heimild til yfir­tök­unnar var síðan stað­fest af hlut­höfum félags­ins 20. febr­úar eftir að drög að samn­ingi um yfir­tök­una voru send á alla hlut­hafa félags­ins. Eina skuld­bind­ing félags­ins í samn­ingnum er yfir­taka kjara­samn­ings­bund­inna rétt­inda blaða­manna og hefð­bund­ins rekstr­ar­kostn­aðar. Kaupverð var skil­greint ein króna, en sem fyrr segir eru báðir fyrr­ver­andi eig­endur Mannlífs hlut­hafar í Sam­ein­aða útgáfu­fé­lag­inu.

Nýr vefur Mannlífs var opn­aður í febr­úar. Hönnuður vefs­ins er Jón Ingi Stef­áns­son, hönn­un­ar­stjóri og einn af stofn­endum Sam­ein­aða útgáfu­fé­lags­ins. Í nýrri hönnun er eldra merki Mannlífs end­ur­vakið. Björgvin Ólafsson mynd­list­ar­maður hann­aði lógóið árið 1987 og prýddi það for­síður tíma­rits­ins Mannlífs til 1998.

Með rit­stjórn Mannlífs fyrst um sinn fer Jón Trausti Reyn­is­son, sem sömu­leiðis er einn af stofn­endum útgáfu­fé­lags­ins og er fram­kvæmda­stjóri þess.

Valddreifing í samþykktum útgáfunnar

Sam­ein­aða útgáfu­fé­lagið er í dreifðu eign­ar­haldi, þar sem vald­dreif­ing í sam­þykktum er ætlað að hindra yfir­tökur og áhrif fjár­sterkra hags­muna­að­ila. Félagið gefur einnig út Heim­ild­ina, Vís­bend­ingu, Heim­il­is­blaðið og ensk frétta­bréf. Rit­stjórnir og rit­stjórn­ar­stefnur miðla félags­ins eru aðskildar.

Aug­lýs­inga­sala fyrir Mannlíf fer í gegnum Birt­inga­söl­una.

Ein­stak­lingum og lög­að­ilum er boðið að styðja við fjöl­breytni íslenskrar fjöl­miðl­unar með áskrifta- eða aug­lýs­inga­kaupum.

Fyr­ir­vari um hags­muni: Í til­kynn­ing­unni er fjallað um mál­efni Mannlífs og útgáfu­fé­lags þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur