Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Felix svarar 10 spurningum

„Fjöl­skyldur á Íslandi eru mis­mun­andi eins og alls­staðar“

Felix svarar 10 spurningum
Felix á Galapa­gos eyjum 2010 ásamt risa­skjald­böku

Felix Bergsson, lands­þekkti leik­ar­inn, söngv­ar­inn, útvarps- og sjón­varps­mað­ur­inn, og nú rit­höf­und­ur­inn, er búinn að senda frá sér bók og er orð­inn fullur þátt­tak­andi í jóla­bóka­flóð­inu, með Ævintýri Freyju og Frikka – Drottn­ingin af Galapa­gos.

Nú er ansi langt liðið frá því að fyrsta bókin þín, Ævin­týrið um Auga­stein kom út. Hvernig er til­finn­ingin að vera kom­inn á kaf í jóla­bóka­flóðið? 

Já, það er rétt, Ævin­týrið um Auga­stein kom út árið 2003 svo árin hafa sann­ar­lega liðið. Mér finnst samt ekki eins og ég hafi farið neitt. Ég er alltaf að reyna að koma ein­hverju skemmti­legu á fram­færi um jólin hvort sem það eru útvarps eða sjón­varps­þættir, leik­sýn­ingar eða tón­leikar! Ég elska aðdrag­anda jól­anna og hvað allir verða kátir og til í að gleðja sína nán­ustu. Börnin eru svo spennt og það er svo gaman að hafa eitt­hvað í hand­rað­anum til að kæta þau. Nú er það þessi ævin­týra­saga um Freyju og Frikka og það er bara dásam­leg til­finn­ing.

Vill vekja forvitni barna

Hvernig kvikn­aði hug­myndin að Freyju og Frikka og þess­ari ferð þeirra
til Galapa­gos? Og af hverju vald­irðu einmitt Galapa­gos sem sögu­svið – hvað heill­aði þig þar? Það er ekki eins og Íslend­ingar séu þar dag­legir gestir.

Mig lang­aði strax frá byrjun að skrifa klass­ískar ævin­týra­sögur fyrir börn, svona svipað og ég las sem barn. Bækur eins og Fimm fræknu eða Dul­ar­fullu bæk­urnar ja eða Frank og Jói, ævin­týri þar sem krakk­arnir kom­ast á snoðir um eitt­hvað mis­jafnt og verða svo sjálf að leysa málin. Að auki vildi ég fara með þau á fjar­læga og spenn­andi staði sem gætu vakið for­vitni les­and­ans. Ég hef ferð­ast víða um heim með Baldri mínum og stundum hafa börnin okkar komið með svo það voru hæg heima­tökin að byrja á ævin­týra­staðnum Galapa­gos í Suður Ameríku. Þangað fórum við árið 2010. Það er varla hægt að finna meira heill­andi sögu­svið með öllu því magn­aða dýra­lífi sem þar er, fólki alls­staðar að úr heim­inum, sigl­ingu í litlum bátum, sund­ferðum með risa­skjald­bökum og hákörlum og ótrú­legri sögu af lífs­bar­áttu og dýra­lífi sem nær margar aldir aftur í tím­ann. Þetta var eins og að vera með risa­stóran konfekt­kassa og fá bara að velja sér nokkra mola! Það var erfitt val! Og þegar sagan var komin til mín þá gekk þetta hratt fyrir sig.

Felix heldur betur ánægður með fyrsta ein­takið af bók­inni

Tit­ill­inn Drottn­ing af Galapa­gos – hver eða hvað er „drottn­ingin“ í
þess­ari sögu, án þess að spilla fyrir les­endum?

Haha! Þarna kom erfið spurn­ing sko! Ég held að hver Drottn­ingin af Galapa­gos sé verði bara að vera leynda­mál sem þeir einir vita sem hafa lesið bók­ina. Það eina sem ég vil gefa upp er að Drottn­ingin er EKKI mann­eskja. Nú vona ég að þið séuð orðin spennt!

Felix á fullu í jóla­bóka­flóð­inu, hér staddur á bás Drápu á Bóka­há­tíð í Hörpu sem fór fram á dög­unumLjósm. Arnþór Birk­is­son

Var krefj­andi að skrifa þessa bók – hver er fer­ill­inn við það að skrifa heila bók? Við kannski spyrjum þar sem hálf þjóðin virð­ist ganga með bók í mag­anum.

Mér finnst alltaf mest krefj­andi að finna nógu skemmti­legan og spenn­andi sögu­þráð. Ég tek mér yfir­leitt langan tíma í að búa til beina­grind að sög­unni og sjá hana fyrir mér allt til enda. Þegar vel tekst til er það líka mest gef­andi! Þegar það er komið er ég yfir­leitt frekar fljótur að skrifa sjálfan text­ann og setja kjöt á beinin. Stundum breyt­ist eitt­hvað þegar ég er að skrifa en þá fer ég aftur í beina­grind­ina og bæti því inn þar fyrst til að sjá hvort það eyði­leggi annað sem ég var búinn að ákveða. Það er sko mikil vinna að skrifa heila bók! 

Felix ásamt móður sinni Ingi­björgu S. Guð­munds­dóttur í útgáfu­hófi bók­ar­innar

Ertu þegar far­inn að sjá fyrir þér fram­hald eða fleiri ævin­týri með
Freyju og Frikka?

Já, ég er eig­in­lega kom­inn af stað með nýja sögu sem verður æsispenn­andi og ger­ist bæði í Norður-Afríku og Foss­vog­inum. Ég von­ast til að koma henni út á næsta ári. Ég hef skrifað fjórar sögur um þessa skemmti­legu tví­bura en bara ein þeirra, Drottn­ingin af Galapa­gos, er komin á bók, hinar eru á Storytel. Vonandi verða þær líka gefnar út í bók á ein­hverjum tíma­punkti. 

Fjölskylda er bara fjölskylda

Freyja og Frikki eiga tvo pabba – hvers vegna fannst þér mik­il­vægt að
spegla þessa fjöl­skyldu­gerð? Hvernig hafa börn og for­eldrar brugð­ist við þess­ari fram­setn­ingu fjöl­skyld­unnar?

Fjöl­skyldur á Íslandi eru mis­mun­andi eins og alls­staðar og mig lang­aði að skrifa um veru­leika krakka sem eiga svona fjöl­skyldu. Þannig er líf margra krakka á Íslandi í dag. Hins­vegar er það ekk­ert aðal­at­riði í þessum sögum, athyglin er fyrst og fremst á Freyju og Frikka og ævin­týr­unum sem þau lenda í. Ég hef ekki fengið nein sér­stök við­brögð á það hvernig fjöl­skyldan er sam­an­sett. Það er frekar að krakkar tali um að pabbi Axel eða pabbi Njörður minni sig á pabba sinn. Það að þeir séu par skiptir þau engu máli. Fjöl­skylda er bara fjöl­skylda og stundum er það æðis­legt og stundum er það pín­legt. Þannig er bara lífið. 

Leið­sögu­maður útskýrir hvernig skjald­bök­urnar verpa eggjum sínum í sand­inn á Galapa­gos eyjum

Finnst þér íslenskar barna­bækur vera orðnar opn­ari fyrir fjöl­breyti­leika í fjöl­skyldu­mynstrum? Hvernig geta t.d. barna­bók­menntir hjálpað börnum að skilja og sam­þykkja ólíkar fjöl­skyldur?

Það er engin spurn­ing að íslenskar barna­bók­menntir eru alltaf að spegla það sam­fé­lag sem þær spretta upp úr. Nú er mikið verið að ræða mál­efni sem hafa ekki verið svo mikið upp á borðum áður, t.d. mál­efni inn­flytj­enda eða mál­efni hinsegin fólks. Þetta end­ur­spegl­ast auð­vitað sem betur fer í barna­bókum nútím­ans og hjálpar krökkum án efa að skilja betur heim­inn í kringum sig. Margar frá­bærar barna­bækur hafa komið út und­an­farin ár og þar má finna per­sónur af öllum stærðum og gerðum. Þetta er mik­il­vægt fyrir alla og hjálpar okkur að sýna hvert öðru mildi. Við erum ekki öll eins og höfum aldrei verið það.

Hafa fengið mjög jákvæð viðbrögð

Hvaða skila­boð eða gildi viltu helst að börn taki með sér úr bók­inni?

Fyrst og fremst vil ég skemmta þeim. Ég vil vekja for­vitni þeirra um að skoða heim­inn og kynn­ast annarri menn­ingu. Ég vil líka fá þau til að hugsa um nátt­úr­una og hvernig við þurfum að vernda hana öll sem eitt. Mig langar líka til að vald­efla þau og hvetja þau til að leggja frá sér sím­ann og upp­lifa heim­inn, lesa og skrifa og kannski halda dag­bók.

Hvaða við­brögð frá les­endum hafa komið þér mest á óvart?

Úff, það er erfið spurn­ing. Kannski hefur komið mér mest á óvart hvað þau virð­ast fíla bók­ina vel og á Storytel hrönn­uð­ust fimm stjörnu dóm­arnir inn. Svo er líka svo gaman hvað krakk­arnir virð­ast ekki fá nóg af Frikka og Freyju og hrein­lega krefja mig um nýja bók. Það er ægi­lega skemmti­legt og gef­andi að skrifa fyrir slíka les­endur. Ég má líka til með að nefna mynd­irnar í bók­inni. Ég hef unnið með Kára Gunn­ars­syni að öðrum verk­efnum og hann var mitt fyrsta val þegar velja þurfti teikn­ara fyrir bók­ina. Og við höfum fengið mjög jákvæðar við­tökur við mynd­unum.

Ertu far­inn að titla þig sem rit­höf­und? 

Já, auð­vitað. Ég nota alla titla sem ég get! Í síma­skránni er ég leik­ari en svo er ég líka ýmis­legt annað. Ég hef verið að skrifa í ára­tugi, aðal­lega fyrir sjón­varp og leik­svið. Ég er alveg pott­þétt rit­höf­undur líka. 

Kári Gunn­ars­son teikn­aði mynd­irnar í bók­inni
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur