Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

„Eins einmanalegt og maður leyfir því að vera“

Skúli Sig­urðs­son kom eins og storm­sveipur inn í íslenska bók­mennta­heim­inn

„Eins einmanalegt og maður leyfir því að vera“
Skúli í Wadi Rum Skammt frá landa­mærum Jórdaníu og Sádi-Arabíu (2019) Mynd: Ragnar T. Ragnarsson

Ragnarök undir jökli eftir Skúla Sig­urðs­son kom út á dög­unum og er það fjórða bók Skúla. Það má segja að hann hafi komið eins og storm­sveipur inn í íslenska bók­mennta­heim­inn þegar fyrsta bók hans, Stóri bróðir, hlaut Blóð­dropann sem besta bók árs­ins 2022. Næsta bók hans, Maðurinn frá São Paulo, kom ári síðar og hlaut til­nefn­ingu til Blóð­dropans.

Í nýju bók­inni, Ragnarök undir jökli, snýr Skúli sér aftur að sögu­sviði Stóra bróð­urs þótt ekki sé um eig­in­legt fram­hald að ræða. Tekið var hús á Skúla. 

Af hverju í ósköp­unum tók starfs­maður Sam­ein­uðu þjóð­anna upp á því að skrifa glæpa­sögur? 

Þessi til­tekni starfs­maður Sam­ein­uðu þjóð­anna hafði líka reynt fyrir sér, stundum með ágætum árangri, sem lög­fræð­ingur, blaða­maður, bar­þjónn, hljóm­sveita­hundur, upp­vask­ari, leið­sögu­maður og ferða­langur þannig að þetta var kannski bara enn ein til­raunin sem svo gekk óvænt svona vel upp.

Ég var búsettur í Amman, höf­uð­borg Jórdaníu, þegar ég vann fyrir SÞ, fjarri ætt­ingjum og vinum og byrj­aði að fikta við skrifin í frí­stundum. Það fór hratt og örugg­lega úr bönd­unum og út úr því kom fyrsta bókin, Stóri bróðir. Ég lenti bara í þessu.

Fyrsta bókin, eins og þú segir, var Stóri bróðir, sem vann Blóð­dropann sem besta glæpa­saga árs­ins. Er það ekki rétt hún sé í vinnslu fyrir sjón­varp? 

Jú, fram­leiðslu­fyr­ir­tækið Act 4, sem nýlega sendi frá sér Reykja­vik Fusion, er að gera sjón­varps­s­eríu eftir henni.

Ólafur Darri er að þróa og skrifa þetta með ein­vala­liði, Anítu Briem, Önnu Gunndísi Guð­munds­dóttur og Teiti Magn­úss­syni. Þýska sjón­varpið, eða ZDF Studios, er að vinna þetta með þeim og tökur eiga að hefj­ast á næsta ári. Að mér skilst, ég vona að ég sé ekki að tala af mér.

Verulega spenn­andi verk­efni, mér líst virki­lega vel á þetta hjá þeim.

Skúli í Amman, Jórdaníu (2019)

Ragnarök undir jökli, bókin sem þú varst að senda frá þér. Hvað getur þú sagt okkur um hana? 

Eftir að hafa farið um víðan völl í annarri og þriðju bók­inni, frá Auschwitz til Buenos Aires í Maðurinn frá São Paulo og lands­horna á milli í Kosta ríka í Slóð sporð­drek­ans, lang­aði mig að skrifa alveg íslenska sögu, á Íslandi, um Íslend­inga, á slettu­lausu íslensku máli. Ásatrú, jökl­arnir, sand­arnir, bjartar nætur, Völuspá og það sem ég kalla vík­inga­klám, skrúfa þetta allt upp í ell­efu.

Sagan er önnur bókin í Kroníkuser­í­unni, sjálf­stætt fram­hald af Stóra bróður, og fjallar í stuttu máli um Magneu Ísaks­dóttur, blaða­konu, og heim­sókn hennar í höf­uð­vígi umdeilds ása­trú­ar­söfn­uðar undir Tind­fjalla­jökli. Hún flæk­ist í háleitar áætl­anir alls­herj­ar­goð­ans sem telur sig og safn­að­ar­börnin ofsótt, hann ætlar að snúa sig undan hæl íslenskra yfir­valda.

Þetta er sam­tíma­saga um völd og firr­ingu og það hvernig blind trú á ein­staka menn getur leitt okkur í gönur. Eins og hún er einmitt að leiða heilu þjóð­irnar í gönur þessa dag­ana. Ég vil helst ekki gefa meira upp en þetta fer allt meira og minna í skrúf­una, svo úr ösk­unni í eld­inn og loks alveg í hundana. 

Eins ég segi, allt skrúfað upp í ell­efu.

Er þetta þá ekki hefð­bundin glæpa­saga þar sem morð­gáta er rann­sökuð?

Það er morð þarna í blá­byrjun og nokkur þegar á líður og jú, tvö til við­bótar í for­tíð­inni, en þetta er ekki saga um illa út leikið lík sem finnst í skurði á íslenskum sudda­degi og drykk­felldur lög­reglu­maður þræðir elli­heim­ilin í leit að svörum. Glæp­ur­inn er ekki að baki heldur yfir­stand­andi, Magnea er ekki að rann­saka hann heldur lendir í honum svo þetta er frekar þriller en morð­gáta eða glæpa­saga.

Skúli ásamt Elínu G. Ragn­ars­dóttir og Ásmundi Helga­syni, útgef­endum hans hjá Drápu

Magnea var auka­per­sóna í Stóra bróður en er aðal­per­sóna hér?

Já, hún var svo að segja aðal­auka­per­sónan í Stóra bróður, kollegi og kærasta Emils, blaða­manns­ins þar, en mér fannst fara betur á að hafa konu í brennid­epli þess­arar sögu, meðal ann­ars til móts við þrúg­andi karl­mennsku alls­herj­ar­goð­ans. Og ég hélt alltaf dálítið upp á Magneu sem per­sónu.

Emil fær aðeins að vera með og nokkrar auka­per­sónur úr Stóra snúa aftur, helst Stefán, lög­reglu­stjóri á Suð­ur­landi, og Yngvar Renfield, blaða­maður Morg­un­dags­ins, sem brá líka fyrir í mýflugu­mynd í Slóð sporð­drek­ans.

Ein af per­sónum Stóra bróður og sér­stak­lega Maðurinn frá Sao Paulo var Héðinn Vern­harðs­son rann­sókn­ar­lög­reglu­maður. Eigum við von á að sjá hann aftur?

Héðinn er kom­inn á eft­ir­laun, bless­aður, og mér fannst hann ekki eiga erindi í Ragnarök undir jökli en jú, ég sé fyrir mér að taka ein­hvern tím­ann upp þráð­inn þar sem ég skildi við hann í lok Maðurinn frá São Paulo árið 1977.

Verður það fimmta bókin?

Nei, sú fimmta verður þriðja bókin í Kroníkuser­í­unni sem enn sem komið er telur lítil 600 orð í rit­vél­inni. Emil og Magnea munu snúa aftur og kannski bregður Héðni gamla fyrir en sjötta bókin gæti orðið önnur sagan um hann sér­stak­lega, undir lok átt­unda ára­tug­ar­ins. En það er fram­tíð­ar­músík.

Skúli eyddi nokkrum mán­uðum í Valla­dolid við að skrifa Ragnarök undir jökli (2025)

Að skrif­unum sjálfum og Ragnarök undir jökli, hvernig er und­ir­bún­ingi háttað hjá þér þegar þú leggur af stað í bók? Þá er ég kannski ekki síst að spá í sál­ræna þætt­inum, líðan og hugs­anir sögu­per­sóna.

Bækurnar mínar hafa allar byrjað sem “hvað ef?” spurn­ing og svo undið upp á sig, eins og snjó­bolti sem maður ýtir niður bratta hlíð. Ég veit nokkurn veg­inn hvert ég er að fara, ég er með sum aðal­at­riðin á hreinu en sé svo hvert sagan leiðir mig.

Hvað varðar sál­ar­líf og hug­renn­ingar per­sóna leggst maður í ein­hverja rann­sókn­ar­vinnu en þján­ingin, ótt­inn og illskan - og jú, gleðin og hug­rekkið - eru sammann­leg og maður setur sig í spor fólks og leggur út af því. Maður kynn­ist sínum per­sónum og veit hvernig þær hugsa og bregð­ast við, ræðir svo kannski við fólk til að skerpa á. Ég lagði til dæmis upp úr því að spyrja systur mína og vin­konu út í það hvernig Magneu, sem konu, myndi vegna í þeim aðstæðum sem upp koma í sög­unni. Ég er reyndar rétt far­inn að treysta mér til þess að skrifa konur en mér skilst á mér fróð­ari mönnum, eða konum öllu heldur, að þetta sé í lagi.

En hvernig er það, er rit­höf­und­ar­starfið ekki ansi ein­mana­leg vinna? 

Ég er auð­vitað alltaf einn á kaffi­stof­unni þannig að ég þarf að leggja mig sér­stak­lega eftir félags­skap vina og ætt­ingja til að bæta upp fyrir það. Það er hætt við því að maður missi vitið ef maður gætir ekki að sam­veru með fólk­inu sínu, þó mér komi ágæt­lega saman við sjálfan mig.

Síð­ast­liðið vor og fram á haust fór ég reyndar ein­sam­all í sjálf­skip­aða útlegð til Valla­dolid á Spáni að skrifa megnið af Ragnarök undir jökli og sinna öðrum verk­efnum. Því fylgdi tölu­verð ein­vera en það var til­gang­ur­inn, ég vildi frið fyrir hvers­deg­inum til að vinna sög­una.

Samt er maður aldrei alveg einn. Rakarinn minn, Portú­gali sem hlustar á Mammút, og spænsk kona hans urðu góðir vinir mínir. Svo æfði ég spænsk­una dálítið í mat­vöru­búð­inni og á kaffi­hús­inu þar sem ég vann hvað mest, ég varð mál­kunn­ugur starfs­fólk­inu þar og þau græj­uðu uno de los míos um leið og ég birt­ist í dyr­unum, reyndar ekki merki­legri pöntun en tvö­faldur americano.

Ég tók dálítið frí líka þarna á Spáni, kíkti til Madrídar með mexíkóskri vin­konu minni, fór í göngu í Cañón del Río Lobos-þjóð­garð­inum, heim­sótti Salamanca og vín­ekru kunn­ingja­fólks í þorp­inu Villatu­elda. Þannig að það var nóg að gera og í raun ekki ein­mana­legt þótt ég hafi þurft að hafa meira fyrir því að fá minn skammt af mann­legum sam­skiptum en heima.

Ætli starf rit­höf­und­ar­ins sé ekki eins ein­mana­legt og maður leyfir því að vera.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur