Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ráðstefna tileinkuð ungum konum í atvinnulífinu

Félag Ungra athafna­kvenna í sam­starfi við Alvotech stendur fyrir ráð­stefnu í Hörpu 10. mars. Ráð­stefnan er til­einkuð ungum konum í atvinnu­líf­inu og nefn­ist hún UAK dag­ur­inn.

Ráðstefna tileinkuð ungum konum í atvinnulífinu

Fram undan er spenn­andi ráð­stefna í Hörpu þar sem félagið leit­ast við að skapa vett­vang fyrir konur til að fræð­ast og efla hver aðra, fylla þátt­tak­endur eld­móði og fá til liðs við sig áhrifa­fólk, ráð­herra og erlenda gesti. Mark­miðið er að gera stjórn­endum fyr­ir­tækja, stjórn­mála­mönnum og ungu fólki í atvinnu­líf­inu á Íslandi grein fyrir kröftum vel mennt­aðra og reynslu­mik­illa kvenna ásamt mik­il­vægi þess að hlustað sé á kröfur þessa öfl­uga hóps hvað varðar atvinnu­tæki­færi.

Hér má sjá dag­skrána sem er hin glæsi­leg­asta og von er á öfl­ugum og fjöl­breytum hóp fyr­ir­mynda öðrum til eft­ir­breytni.
UAK dag­ur­inn 2018 – Ráð­stefna til­einkuð ungum konum í atvinnu­líf­inu

10.00 Afhend­ing ráð­stefnu­gagna
10.30 Sigyn Jóns­dóttir, for­maður Ungra athafna­kvenna
10.40 Eliza Reid for­seta­frú setur UAK dag­inn 2018
11.00 Panel: Störf fram­tíð­ar­innar
Umræðum stýrir Fanney Birna Jóns­dóttir

Gestir verða Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, Ægir Már Þórisson, Stefanía G. Hall­dórs­dóttir og Ari Kristinn Jónsson.

11.45 Hádeg­is­matur
12.30 Leynig­estur
13.00 Laura Korn­hauser
13.30 Panel: Umræðan um áhrifa­miklar konur
Umræðum stýrir Björg Magn­ús­dóttir
Gestir verða Rannveig Rist, Salvör Nordal og fleiri.

14.15 Kaffihlé
14.45 Alda Karen Hjalta­lín
15.15 Halla Tóm­as­dóttir

Panel: Störf framtíðarinnar

· Hvar og hvernig er AI þróað? Hverjir eru að því? Hvaða fyr­ir­tæki? Hvernig eru teymin sam­an­sett, t.d. kynja­hlut­föll?
· Eru konur í minni­hluta í þeim greinum sem verða hvað mest áber­andi í fjórðu iðn­bylt­ing­unni? Ef já, hvað er hægt að gera? Eru stjórn­völd, mennta­stofn­anir og fyr­ir­tækin í land­inu að und­ir­búa sig fyrir fjórðu iðn­bylt­ing­una? Hvernig?
Gestir verða full­trúar atvinnu­lífs­ins, stjórn­valda og háskóla­sam­fé­lags­ins.

Panel: Umræðan um áhrifamiklar konur

· Fyr­ir­finnst tvö­falt sið­gæði gagn­vart konum í almennri umræðu Íslend­inga um áhuga­verða ein­stak­linga?
· Gerum við meiri kröfur til útlits, fram­komu og vinnu­bragða kvenna? Er orð­ræðan um áhrifa­miklar konur harka­legri en orð­ræðan um karla í sam­bæri­legum störfum?
· Fá konur, sem eru áber­andi vegna vinnu sinnar, verri útreið í fjöl­miðlum og athuga­semda­kerfum netheima vegna mis­taka sinna?
· Finnst konum þær þurfa að vanda sig meira í starfi og með það sem þær tjá sig um opin­ber­lega vegna ótta við að vera dæmdar harka­legar en karlar?
· Ef já, af hverju? Og hvernig breytum við þessu?

Gestir verða konur sem hafa verið áber­andi í stjórn­málum eða stjórn­endur stórra fyr­ir­tækja sem hafa leitt erfið verk­efni eða þurft að taka erf­iðar ákvarð­anir. Einnig farið í gegnum krefj­andi tíma­bil á sínum starfs­ferli, þurft að svara fyrir sína vinnu og mögu­lega upp­lifað ósann­gjörn við­horf og athuga­semdir í sinn garð.

*SÉRSTAKUR GESTUR RÁÐSTEFNUNNAR ER LAURA KORNHAUSER

Sér­stakur gestur er Laura Korna­hauser.

Laura er for­seti og fram­kvæmda­stjóri Stratyfy sem spáir fyrir um og greinir gögn til að efla hina sönnu sér­fræð­inga fyr­ir­tækja – fólkið sem stýrir þeim til að taka upp­lýst­ari ákvarð­anir til að bæta fyr­ir­tækið. Hún tók þátt í að stofna Stratyfy árið 2016 ásamt þremur verk­fræð­ingum. Fyrir stofnun Stratyfy var Laura fram­kvæmda­stjóri hjá JPMorgan og vann við að selja flóknar afleiddar vörur til stórra kúnna. Á tólf árum hjá JPMorgan varð Laura sér­fræð­ingur í að sjá um flókin sam­bönd við kúnna, bera kennsl á vöru­tæki­færi og að þróa ný boð til að koma til móts við aukna eft­ir­spurn kúnna. Hún upp­lifði þá óhag­kvæmni þeirra vara sem not­aðar voru, sér­stak­lega þeirra sem not­aðar voru til að fylgja þróun í umhverfi reglu­gerðar. Eftir að hafa skapað ýmis ferli, tæki og tól til að hjálpa við að bæta árangur við­skipta, vissi hún að það þyrfti að vera til betri lausn og hún ætl­aði að finna hana.

Mynd efst: Stjórn UAK, talið frá vinstri: Helena Rós Sturlu­dóttir sam­skipta­stjóri, Elísabet Erlends­dóttir við­skipta­stjóri, Andrea Gunn­ars­dóttir við­burða­stjóri, Sigyn Jóns­dóttir for­maður og Anna Berglind Jóns­dóttir. Á mynd­ina vantar Ásbjörgu Ein­ars­dóttur fjár­mála­stjóra.

Stúdíó Birt­ingur í sam­starfi við Félag ungra athafna­kvenna.
Umsjón / Sjöfn Þórð­ar­dóttir
Myndir / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur