Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Dreymir um að eignast litla eyju í Karíbahafinu og hengirúm fest í tvö pálmatré

Dreymir um að eignast litla eyju í Karíbahafinu og hengirúm fest í tvö pálmatré

Ásdís Ósk Vals­dóttir er lög­giltur fast­eigna­sali og eig­andi Húsa­skjóls fast­eigna­sölu. Hún býr með þremur börnum sínum í Linda­hverfi, þeim Axel Vali Þór­is­syni, 22 ára; Viktori Loga Þór­is­syni, 16 ára og Sigrúnu Tinnu Þór­is­dóttur, 9 ára.

Hvað heillar þig mest við starfið?

„Það er fjöl­breyti­leik­inn, það eru alltaf ný og spenn­andi verk­efni á hverjum degi. Ég er búin að vera fast­eigna­sali í fimmtán ár og get ekki hugsað mér annað starf, að fá að vinna svona náið með fólki og í gegnum starfið hef ég eign­ast marga af mínum bestu vinum. Þetta er gíf­ur­lega lif­andi starf og alltaf nýjar áskor­anir.“

Getur þú lýst hefðbundnum vinnudegi hjá þér?

„Ég vakna klukkan fimm á morgn­ana, byrja á góðri morg­un­göngu og fer svo ann­að­hvort í rækt­ina eða hlusta á fyr­ir­lestra tengda vinn­unni, vek krakk­ana þegar þeir eru hjá mér og fæ mér góða ommel­ettu og er mætt í vinnu um klukkan átta.  Það er oft erfitt að skipu­leggja dag­inn en ég miða við að svara póstum og klára papp­írs­vinnu að morgni og seinni part­ur­inn fer síðan í að sýna eignir, skoða eignir og fylgja eftir málum.  Það er auð­velt að drekkja sér í vinnu og fyrir nokkrum árum tók ég þá ákvörðun að hætta að vinna á kvöldin og um helgar og eiga meiri tíma með krökk­unum og njóta lífs­ins.“

Hvað er það sem þér finnst gera heimili að heimili?

„Fólk gerir heim­ili að heim­ili.“

Getur þú líst þínum stíl?

„Suðrænn og lit­ríkur. Ég ferð­að­ist mikið um Suður-Ameríku á mínum yngri árum og bjó eitt ár í Hondúras, það er til dæmis ekki hægt að vera fúll og dansa salsa á sama tíma, mæli með því að prófa það.“

Áttu þinn uppáhaldsarkitekt?

„Í raun og veru ekki, ég hef mjög gaman af að skoða mis­mun­andi bygg­ing­ar­stíl, sér­stak­lega þegar ég er erlendis, held að upp­á­halds­bær­inn minn hafi verið á Chiloe-eyju rétt fyrir utan Puerto Montt í Chile þar sem öll húsin voru timb­ur­hús, mjög lit­rík og sum pínu­lítið skökk og sjar­mer­andi en ég hef líka mjög gaman af því að kíkja í opin hús glæsi­villna í Beverly Hills, heim­ur­inn bíður upp á svo mik­inn fjöl­breyti­leika og svo erfitt að gera upp á milli.“

Áttu þinn uppáhaldshönnuð?

„Börnin mín, elska þegar þau voru að koma með lista­verk úr leik­skóla og skóla, sem búið var að pakka inn af mik­illi ást og leggja allt í gjöf­ina og umbúð­irnar.“

Hvað hefur þig alltaf dreymt um að eignast en ekki eignast hingað til?

„Litla eyju í Karí­ba­haf­inu þar sem ég get sett gott hengi­rúm á milli tveggja pálmatrjáa.“

Uppáhaldsliturinn þinn?

„Sterkir og hressir litir, eins og rautt og fjólu­blátt, það eru flestir litir til í mínum fata­skáp, vantar helst svartan.“

Hvar líður þér best?

„Heima með krökk­unum mínum eða á góðri strönd með bók að hlusta á sjáv­ar­n­ið­inn.“

Nú er sumarið komið og margir huga að garðinum, er eitthvað sem þig langar að eignast í garðinn?

„Ég væri nú alveg til í góða tjörn í garð­inn og tvö pálma­tré til að hengja suð­ur­am­er­íska hengi­rúmið mitt á.“

Svalasti veitingastaðurinn á Íslandi í dag?

„Ég elska Bryggj­una Brugghús; góður matur, skemmti­leg þjón­usta og djass­kvöldin þeirra eru frá­bær.“

Er einhver byggingarstíll sem heillar þig meira enn annar?

„Í raun og veru ekki, ég hef rosa­lega gaman af fjöl­breyti­leika lífs­ins, ég ferð­ast mjög mikið og nýt þess að skoða hvað heim­ur­inn hefur upp á margt fal­legt og skemmti­legt að bjóða.“

Að lifa lífinu lifandi er að …

… vera í núinu og njóta.

Mynd / Aldís Páls­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur