Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Aukin eftirspurn eftir vönduðu handverki og tímalausri hönnun

Hjónin Ágústa Magn­ús­dóttir og Gústav Jóhanns­son kynt­ust í Danmörku þar sem þau stofn­uðu fyr­ir­tæki sitt AGUSTAV sem sér­hæfir sig í fram­leiðslu hús­gagna með umhverf­is­sjón­ar­mið að leið­ar­ljósi.

Aukin eftirspurn eftir vönduðu handverki og tímalausri hönnun
AGUSTAV sem sér­hæfir sig í fram­leiðslu hús­gagna með umhverf­is­sjón­ar­mið að leið­ar­ljósi.

Frá Danmörku fluttu þau til Ítalíu þar sem fyr­ir­tækið blómstr­aði en þegar börn­unum fór að fjölga fluttu þau heim til Íslands, héldu áfram að þróa fram­leiðslu sína og stefna nú ótrauð að Banda­ríkja­mark­aði.

„Við stofn­uðum fyr­ir­tækið 2011 í Danmörku, fluttum það svo milli landa og komum heim 2014,“ útskýrir Ágústa. „Gústav er hús­gagna­smiður og saman hönnum við öll hús­gögn AGUSTAV.
Ég vinn svo að mark­aðs­hlið­inni á meðan Gústav sér um verk­stæðið.“

Húsgögn AGUSTAV hafa tölu­verða sér­stöðu einkum hvað varðar áhersl­una á umhverf­is­væna fram­leiðslu, um hvað snýst það?

„Það skiptir okkur miklu máli að fram­leiða vöru með það að leið­ar­ljósi að hún end­ist,“ segir Ágústa. „Við eigum svo­lítið erfitt með þá þróun að hús­gögn séu að miklu leyti til orðin einnota og að þeim sé skipt út þegar næsti bæk­lingur kemur út, þannig að við reynum að fram­leiða hús­gögn sem end­ast og hafa hátt end­ur­sölu­gildi, vilji maður losa sig við þau. Þar að auki nýtum við allan efni­við sem við fáum inn á verk­stæðið alveg í þaula og erum komin með línu sem er bara byggð á afgöngum sem falla til á verk­stæð­inu. Svo gróð­ur­setjum við tré fyrir hverja vöru sem við seljum, ýmist í regn­skógum Brasilíu eða hér á Íslandi.“

„Það skiptir okkur miklu máli að fram­leiða vöru með það að leið­ar­ljósi að hún end­ist.“
„Bóka­snagi sem við smíð­uðum þá var fyrsta varan sem við komum út með og við­tök­urnar voru vonum framar.“

Ágústa og Gústav sér­smíða líka hús­gögn eftir óskum við­skipta­vina, ýmist í sam­starfi við inn­an­húss­arki­tekta og arki­tekta, eða í beinu sam­starfi við við­skipta­vin­ina, en þau ein­skorða sig þó ekki við það.

„Í vor opn­uðum við sýn­ing­ar­rými á Funa­höfða 3 í Reykja­vík þannig að nú er loks­ins hægt að koma til okkar og skoða hús­gögn, fá að prófa þau eða fá lánuð heim til að sjá hvernig þau passa inn í rýmið á heim­il­inu. Það er inn­an­gengt úr sýn­ing­ar­rým­inu inn á verk­stæðið svo fólk getur líka kynnt sér hvernig varan er búin til og hvaðan efni­við­ur­inn kemur.“

Sér­smíð­uðu allt í fyrstu íbúð­ina
Ágústa og Gústav kynnt­ust þegar þau bjuggu bæði í Danmörku og eiga nú tvö börn, þriggja og sex ára, og það þriðja er á leið­inni. Ágústa segir að aug­ljós­lega séu þau of ung til að taka þátt í vinn­unni enn sem komið er, en það standi von­andi til bóta. En hvaðan kom hug­myndin að fyr­ir­tæk­inu?

„Strax og við kynnt­umst byrj­uðum við að inn­rétta heim­ilið okkar og þar sem íbúðin sem við bjuggum í á þeim tíma var dálítið und­ar­lega löguð end­uðum við á því að sér­smíða allt inn í hana,“ segir Ágústa og hlær. „Bóka­snagi sem við smíð­uðum þá var fyrsta varan sem við komum út með og við­tök­urnar voru vonum framar þannig að þetta vatt mjög hratt upp á sig og varð að þessu fyr­ir­tæki sem það er í dag.“

Ísland opnaði ný tækifæri

Hjónin Ágústa Magn­ús­dóttir og Gústav Jóhanns­son

Árið 2013 ákváðu þau Gústav og Ágústa að hætta að vinna ann­ars staðar, flytja til Ítalíu og beina öllum sínum kröftum að upp­bygg­ingu fyr­ir­tæk­is­ins. Það var kom­inn tími til að víkka sjón­deild­ar­hring­inn og Ítalía hent­aði vel því sem þau voru að gera á þeim tíma, að sögn Ágústu, og þau leigðu sér hús uppi í fjöllum á Norður-Ítalíu þar sem pláss var fyrir verk­stæðið í kjall­ar­anum og fyr­ir­tækið hélt áfram að blómstra. Þar komust þau líka í beina teng­inu við við­inn og komust nær upp­runa efni­við­ar­ins sem þau nota. En hvernig datt þeim í hug að flytja aftur heim til Íslands?

„Það kom til af því að ég átti von á barni númer tvö og á Ítalíu, alla vega þarna sem við vorum, var litla aðstoð að fá við barnapössun,“ útskýrir Ágústa. „Elsta barnið var þá tveggja og hálfs og við höfðum engin önnur úrræði en að hafa hana með okkur við vinn­una. Ég sá fyrir mér að hafa lít­inn tíma til að sinna vinn­unni þegar komið væri annað barn og við ákváðum að koma heim þar sem tengsla­netið okkar er, ömmur og afar og ætt­ingjar, dag­heim­il­is­pláss og svo fram­vegis. Það var algjört lán í óláni að við skyldum enda hér aftur því hér hafa opn­ast mörg tæki­færi sem voru okkur lokuð áður.“

Eru ein­hverjar nýj­ungar fram undan hjá fyr­ir­tæk­inu?

„Það er alltaf eitt­hvað,“ segir Ágústa leynd­ar­dóms­full. „Við erum alltaf með ein­hverjar nýjar vörur í koll­inum sem líta dags­ins ljós þegar þeirra tími kemur. Svo fórum við núna í maí á sýn­ingu í New York þar sem við sýndum vör­urnar okkar og það gekk alveg rosa­lega vel. Við hlutum svo styrk úr Hönn­un­ar­sjóði til mark­aðs­setn­ingar í Banda­ríkj­unum sem hjálpar virki­lega til við að halda fókus á þann markað það sem eftir er árs. Við fengum mjög góð við­brögð og mik­inn áhuga og erum núna að vinna í því að greiða okkur leið inn á þann markað. Við erum bara mjög spennt fyrir því og höldum ótrauð áfram okkar stefnu.“

Myndir / Aldís Páls­dóttir og úr safni AGUSTAV

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur