Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

LC2-stóllinn einna flottastur

Snorri Björn Sturlu­son er lög­giltur fast­eigna­sali hjá Domusnova fast­eigna­sölu og starfar einnig sem sjálf­stæður lög­maður. Hann er 37 ára gam­all, barn­laus og býr í Sala­hverf­inu í Kópavogi.

LC2-stóllinn einna flottastur
Snorri Björn Sturlu­son seg­ist fyrir þó nokkru hafa tekið ákvörðun um að vinna ekki um helgar en hafi því miður ekki getað staðið við hana.

Hvað heillar þig mest við starfið? „Fjöl­breyti­leik­inn og frelsið er klár­lega það sem heillar mest við starfið og hefur gert alla tíð síðan ég byrj­aði að selja fast­eignir árið 2005. Ég er alltaf að fást við ný verk­efni, nýjar áskor­anir, hitta nýtt fólk og vinna með nýjar fast­eignir sem kemur í veg fyrir að ég staðni í starfi eða hrein­lega leið­ist. Þetta er lif­andi starf sem getur verið erfitt á köflum en á móti mjög gef­andi.“

Getur þú lýst hefð­bundnum vinnu­degi hjá þér? „Vinnu­dag­ur­inn byrjar oft­ast á milli kl. 8 og 9 morgn­ana og endar á milli kl. 18 og 19. Hluta dags­ins eyði ég á skrif­stof­unni en svo er ég mikið á ferð­inni að hitta fólk og skoða og sýna fast­eignir. Þá er algengt að ég verji tíma á kvöldin í að svara tölvu­póstum og klára ýmis verk­efni. Fyrir þó nokkru tók ég ákvörðun um að vinna ekki um helgar en hef því miður ekki getað staðið við hana. Þá er yfir­leitt ró og næði á skrif­stof­unni og ég kem miklu í verk.“

Hvað er það sem þér finnst gera heim­ili að heim­ili? „Fólkið sem býr þar og þeirra per­sónu­legu munir. Það er til dæmis gaman að sjá mikið af myndum af fjöl­skyldu­með­limum eða ætt­ingjum, fal­leg mál­verk eða hús­gögn sem segja ein­hverja sögu. Ekki bara allt svart og hvítt eða úr IKEA þó að það sé auð­vitað frá­bær verslun sem ég fer oft í. Ég þarf aðeins að taka mig á hvað varðar þetta atriði og gera meira kósí heima hjá mér.“

Getur þú líst þínum stíl? „Hann er klár­lega mínimal­ískur, það er að segja að ég vil ekki hafa mikið drasl eða óþarfa dót í kringum mig. Það þvælist bara fyrir og safnar ryki. Ég vil hafa reglu á hlut­unum og gæði umfram magn. Ég hef verið hrif­inn af skand­in­av­ískri hönnun, ljósum og léttum tónum en hef und­an­farið hrif­ist meira af dekkri og hlý­legri litum.“

Áttu þinn upp­á­halds­arki­tekt? ,,Ég get ekki sagt það og er það aðal­lega vegna þess að ég hef ekki kynnt mér arki­tekta eða arki­tektúr nægi­lega mikið. Ég er þó mjög hrif­inn af hús­inu að Bakka­flöt 1 í Garðabæ (húsið í mynd­inni Eiðurinn eftir Baltasars Kormák) en það teikn­aði Högna Sig­urð­ar­dóttir arki­tekt. Þá er ég hrif­inn af því sem Hanna Stína og Rut Kára hafa verið að gera í inn­an­húss­arki­tektúr.“

Áttu þinn upp­á­halds­hönnuð? „Það hús­gagn sem mér finnst einna flott­ast er LC2-stóll­inn frá árinu 1928 frá ítalska hönn­un­ar­hús­inu Cassina en stól­inn hönn­uðu Le Corbusier, Pierre Jeann­eret og Charlotte Perriand. Ég væri til í svo­leiðis stóla og sófa í betri stof­una. Í svörtu að sjálf­sögðu.“

Hvað hefur þig alltaf dreymt um að eign­ast en ekki eign­ast hingað til? „Stórt er spurt. Ég var voða­lega mik­ill bíla­kall þegar ég var yngri og alltaf hrif­inn af Range Rover. Ég væri til í nýjan svo­leiðis.“

Upp­á­halds­lit­ur­inn þinn? „Svartur.“

Hvar líður þér best? „Mér líður yfir­leitt best innan um góða vini og fjöl­skyldu. Ég tel mig vera hepp­inn með fólkið í kringum mig og hef gaman að verja tíma með því. Þá er heldur ekki slæmt að liggja á sól­ar­strönd í 30 gráðu hita með einn kaldan í hendi eða spila golf á fal­legum golf­velli í góðum félags­skap.“

Er eitt­hvað sem þig langar að eign­ast í garð­inn? „Mig langar í sól­pall í garð­inn og ég ætl­aði að láta byggja eitt stykki fyrir mig í sumar. Síðan kom sum­arið ekk­ert og ég eyddi öllum pen­ing­unum í utan­lands­ferðir svo pall­ur­inn verður að bíða þangað til á næsta ári.“

Svalasti veit­inga­stað­ur­inn á Íslandi í dag? „Það eru margir flottir og góðir veit­inga­staðir á Íslandi en í fljótu bragði dettur mér eng­inn staður í hug sem mér finnst afger­andi svalur. Það hafa verið opn­aðir margir spenn­andi staðir und­an­farin ár sem mig langar að prófa en á eftir að láta verða af því. Ég hef hins vegar alltaf gaman af því að fara á Sushi Social, þar er gott and­rúms­loft og góður matur. Þá er Black Box töff pizzastaður og Lebowski Bar með frá­bært þema og góða borg­ara.“

Er ein­hver bygg­ing­ar­stíll sem heillar þig meira enn annar? „Ég er hrif­inn af funkis­stíl, það er að segja ein­földum bygg­ing­ar­stíl, og húsum með mik­illi loft­hæð og stórum gluggum. Þá er ég einnig hrif­inn af fal­legum gömlum og virðu­legum bygg­ingum en því miður er ekki mikið af þeim hér á landi.“

Að lifa líf­inu lif­andi er að … láta draumana sína ræt­ast.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur