Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Haustlínan blanda af mjúkum og skörpum línum

Starfs­fólkið í versl­un­inni Hjá Hrafn­hildi leggur metnað sinn í því að veita við­skipta­vinum sínum topp­þjón­ustu og fjöl­breytt úrval af vand­aðri hágæða vöru á sann­gjörnu verði. Við heim­sóttum versl­un­ina á dög­unum og spjöll­uðum við Ásu Björk Ant­on­í­us­dóttur, eig­anda versl­un­ar­inna, um nýjar vörur í til­efni þess að haustið er mætt í fullum skrúða.

Haustlínan blanda af mjúkum og skörpum línum
Margrét Kára­dóttir versl­un­ar­stjóri og Ása Björk Ant­on­í­us­dóttir, fram­kvæmda­stjóri og eig­andi.

Hvaða vörur eru meðal þeirra vin­sæl­ustu þessa dag­ana hjá ykkur? „Dönsku vör­urnar hafa verið sér­lega vin­sælar und­an­farið ekki síst MOS MOSH, PBO og svo BITTE KAI RAND en versl­unin Hjá Hrafn­hildi hóf að bjóða upp á vörur frá Bitte Kai Rand fyrir tveimur árum við mjög góðar und­ir­tektir og þær vekja mikla hrifn­ingu við­skipta­vina okkar.“

Getur þú sagt okkur hver er hönn­uður þessa vöru­merkis og til­urð­ina? „BITTE KAI RAND er danskur hönn­uður og hefur fatn­aður hennar sterka skírskotun í skand­in­av­íska hönnun. Hún stofn­aði fyr­ir­tækið 1982 og eru vörur hennar nú seldar í yfir 400 versl­unum víðs­vegar um heim­inn. BITTE KAI RAND byrj­aði upp­haf­lega sem prjóna­fyr­ir­tæki og eru peysur hennar aðals­merki, úr efnum á borð við mer­ino- eða kasmírull og silki. Síðan þá hefur fyr­ir­tækið þró­ast og nú sam­anstendur línan af öllu því helsta sem nútíma­konan þarf.“

Versl­unin Hjá Hrafn­hildi var öll end­ur­nýjuð fyrir rúm­lega ári og stækkuð um helm­ing.

Hvers konar fatn­aður er þetta helst? ,,Hér er frá und­ir­kjólum til yfir­hafna. Hönnunin er þekkt fyrir að vera afslöppuð og elegant. Sniðin eru ein­föld en oft með smát­visti og ávallt úr vönd­uðum efnum. Einnig má finna skemmti­lega auka­hluti; slæður, belti, hanska og hatta sem hjálpa til við að ná þess­ari skemmti­legu stemn­ingu sem BITTE er þekkt fyrir. BITTE-konur, eins og við köllum þær, eru konur með stíl og sterkan karakter. Þeim líður vel í eigin skinni og eru óhræddar við að klæð­ast því sem hug­ur­inn girn­ist. Þær vita hvað þær vilja og velja oft að kaupa sér færri en vand­aðri flíkur sem eld­ast vel. BITTE KAI RAND er með sex fata­línur á ári sem sam­an­standa alltaf af vönd­uðum, tíma­lausum grunn­flíkum og ein­hverju spenn­andi sem fangar augað. Það geta verið skemmti­legir litir, fram­úr­stefnu­leg snið eða áhuga­verð og skemmti­leg mynstur á flík­unum. Öll mynstur eru sköpuð inn­an­húss og því engar líkur á að finna sam­bæri­legar flíkur frá öðrum fram­leið­endum.“

„BITTE-konur, eins og við köllum þær, eru konur með stíl og sterkan karakter.“

Haust­línan er að detta í hús hjá ykkur, getur þú sagt okkur aðeins frá henni? „Haust­línan frá BITTE KAI RAND er undir áhrifum frá jörð­inni sjálfri og lita­dýrð nátt­úr­unnar. Haust­línan er blanda af mjúkum og skörpum línum og bland­ast saman stífar skyrtur og stíl­hreinir jakkar, jafn­vel í sterkum litum við létta og róm­an­tíska kjóla og blússur úr silki og mjúkum litum. Það er gaman að segja frá því að ein af haust­lín­unum þeirra heitir Iceland og er Ísland notað sem inn­blástur í þeirri línu. Lita­þemað er blanda af mjalla­hvítu, gráu og skær­bláu sem eru einmitt litir sem íslenskar konur hafa jafnan hrif­ist af. Glitrið í peys­unum tákna snjó­topp­ana á ann­ars nöktum fjallstindum.“
Versl­unin Hjá Hrafn­hildi var öll end­ur­nýjuð fyrir rúm­lega ári og stækkuð um helm­ing. „Það er því sér­stak­lega gaman núna að stilla út nýja fatn­að­inum því hann er algjört augna­konfekt,“ segir Ása Björk og er alsæl með útkom­una.“

Stúdíó Birtíngur í sam­starfi við Hjá Hrafn­hildi. 

Myndir / Unnur Magna

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur