Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Dreymir um lítinn fiskibát með stórri vél

Bárður Hreinn Tryggva­son er sölu­stjóri hjá Gimli fast­eigna­sölu og er tveggja barna faðir. Hann á þau Silju Rún sem er tví­tug og er að ljúka stúd­ents­prófi um ára­mótin og Tryggva Snæ, fimmtán ára nem­anda við Sjá­lands­skóla. Kærasta Bárðar er Lilja Hildur Hann­es­dóttir hjúkr­un­ar­fræð­ingur og er verk­efn­is­stjóri á mennta­sviði Land­spít­al­ans. Hún er einnig með meist­ara­próf í mannauðs­stjórnun. Hildur á þrjú börn, á aldr­inum átta ára, sextán ára og tutt­ugu og fimm ára, og eitt barna­barn. Bárður og Hildur búa hvort í sínu lagi eins og er, bæði í Kópavogi.

Dreymir um lítinn fiskibát með stórri vél
Bárður Tryggva­son, sölu­stjóri hjá Gimli fast­eigna­sölu.

Hvað heillar þig mest við starfið? „Það sem mér finnst skemmti­leg­ast við þessa vinnu eru sam­skipti við fólkið sem stendur í fast­eigna­við­skiptum á hverjum tíma. Í flestum til­vikum er um að ræða stærstu samn­inga þess á lífs­leið­inni. Mestu skuld­bind­ing­arnar sem eru lánin sem það tekur og þá er í flestum til­vikum um að ræða lána­gjörn­ing í fjöru­tíu ár sem er um það bil hálf mannsævi, það segir allt sem segja þarf um hversu stór þessi ákvörðun er að að taka lán og kaupa íbúð. Það er svo gef­andi þegar vel tekst til og allt gengur upp og allir ganga ánægðir og sáttir frá borði. Ég hef alla tíð tekið starfið mikið inn á mig, ef svo má að orði kom­ast. Síðan eru það vinnu­fé­lag­arnir og umhverfið, að geta nýtt keppn­is­skapið sem er mikið hjá mér, að ég ætla og veit að ég hef, þó að ég segi sjálfur frá. En mesta ánægjan eru ánægðir við­skipta­vinir.“

Geturðu lýst hefð­bundnum vinnu­degi hjá þér? „Hefð­bund­inn vinnu­dagur hjá mér er frá klukkan 9.00 – 17.00 á dag­inn og oft lengur, en fyrstu tutt­ugu og fimm árin gæti ég trúað að þetta hafi verið ekki undir 60-70 tímum á viku. Í dag er þetta öðru­vísi, ég fer þrisvar í viku í fót­bolta í hádeg­inu í 1,5 klst, en það hef ég gert síð­ustu tíu árin og eru ómissandi fyrir mig, því að þetta útheimtir oft mikið álag.“

Hvað finnst þér gera heim­ili að heim­ili? „Fallega sam­sett hús­gögn og hlutir sem passa saman og umfram allt eru þægi­leg. Svo ekki sé minnst á fal­lega mynd­list á veggjum. Ég hef safnað að mér fal­legri mynd­list und­an­farin ár og hef komið inn á glæsi­leg heim­ili en það er eitt­hvað sem vantar og það er eitt­hvað fal­legt á vegg­ina. En það er bara mín skoðun.“

Geturðu lýst þínum stíl? „Minn stíll er ein­fald­leik­inn, ekki vera með of mikið af hús­gögnum/hlutum og láta hlut­ina passa saman og mynda fal­legt og nota­legt heim­ili.“

Áttu þinn upp­á­halds­arki­tekt? „Pálmar Krist­munds­son er minn upp­á­halds, hann hefur teiknað fal­leg hús og bygg­ingar sem ég hef hrif­ist af í gegnum tíð­ina.“

Áttu þinn upp­á­halds­hönnuð? „Gæti nefnt Alvar Aalto hinn finnska sem var bæði hús­gagna­hönn­uður og arki­tekt, svo ég nefni nú ein­hvern.“

Hvað hefur þig alltaf dreymt um að eign­ast en ekki eign­ast hingað til? „Það er lít­ill fiski­bátur með stórri vél og kemst hratt, en það er draum­ur­inn ein­hvern tím­ann. Ég er frá Hell­issandi og upp­al­inn þar við sjó­inn. Var á skaki þrjú sumur með mági mínum. En það sem skýrir það er að þegar að þú ert kom­inn út á sjó í góðu veðri, þá hverfur allt sem að heitir stress. Þú ferð að slaka á og gleymir þér.“

Upp­á­halds­lit­ur­inn þinn? „Upp­á­halds­lit­ur­inn minn er brúnn.“

Hvar líður þér best? „Ég held að ég geti sagt að mér líði best með fjöl­skyld­unni og að atast með henni í ein­hverju. Síðan að fara vestur á Snæ­fells­nes á æsku­slóð­irnar í fal­legu veðri. Fara í fót­bolta með sták­unum en ég spila með Luns United í hádeg­inu og Svík­ingum vinum mínum á mánu­dögum. Það er svo margt sem að ég gæti talið upp.“

Hvað heillar þig mest við haustið? Er eitt­hvað sem þú vilt bæta við í garð­inn eða inn á heim­ilið þegar haustið gengur í garð?
„Fallegur dagur að hausti, kaldur og sólin á lofti á sér engan sinn líka, síðan haust­lit­irnir þegar að þeir birt­ast í sínu feg­ursta formi. Vantar heita pott­inn.“

Svalasti veit­inga­stað­ur­inn á Íslandi í dag? „Veit ekki, en gæti nefnt Bautann á Akureyri, alltaf sér­stök stemn­ing að borða þar. Var á Akureyri í mennta­skóla í fjóra vetur.“

Heillar ein­hver bygg­ing­ar­stíll þig meira en annar? „Já, það eru lítil fal­leg ein­býl­is­hús í grónum hverfum eins og hægt er að sjá til dæmis fyrir norðan á Akureyri. Hvaða stíll það er, veit ég ekki.“

Að lifa líf­inu lif­andi er að … „vera með­vit­aður um stað og stund og láta ekk­ert fara í taug­arnar á sér, lífið er svo stutt. Halda síðan vel utan um fjöl­skyld­una og vin­ina, ekk­ert gefur líf­inu meira gildi en það að hafa gott fólk í kringum sig.“

Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur