Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hársnyrting og góður dreitill að hætti villta vestursins

Á Lauga­veg­inum er að finna ein­stak­lega frum­lega og skemmti­lega hár­snyrti­stofu sem hefur vakið athygli fyrir að vera svo miklu meira en hár­snyrti­stofa. Stíllinn á stof­unni minnir óneit­an­lega á villta vestrið og aðkoman heillar.

Hársnyrting og góður dreitill að hætti villta vestursins
Hjónin Jón A. Sveins­son meist­ari í hár­snyrti­iðn, ávallt kall­aður Nonni Quest, og Guðrún Elísabet Ómars­dóttir heild­sali.

Okkur lék for­vitni að vita nánar hvers konar hár­snyrti­stofa Quest – Hair, Beer & Whisky Saloon er og hvað hún hefur upp á að bjóða. Við hittum eig­endur hár­snyrti­stof­unnar marg­brotnu, hjónin Jón A. Sveins­son, meist­ara í hár­snyrti­iðn, og er ávallt kall­aður Nonni Quest, og Guðrúnu Elísa­betu Ómars­dóttur heild­sala, en hún er kölluð Beta, og frædd­ust við frekar um til­urð fyr­ir­tæk­is­ins og hug­mynda­fræð­ina bak við stof­una.

Nonni er fæddur og upp­al­inn í fag­inu og fór að læra háriðn árið 1993 og opn­aði Quest í apríl 1999. Beta var að vinna í snyrti­vöru­geir­anum þar til þau tóku við stofu for­eldra Nonna árið 2007. Hjónin eru að eigin sögn bæði miklir sæl­kerar og njóta þess að ferð­ast, hlusta, skoða, neyta og njóta saman.

Segið okkur aðeins frá hug­mynd­inni bak við Quest – Hair, Beer & Whisky Saloon og til­urð? „Hug­myndin varð bara til og er í raun enn að verða til. Við erum alltaf saman og eig­in­lega alltaf í vinn­unni og stofan í raun sam­eig­in­legt áhuga­mál okkar. Okkur datt í hug að gera bara allt sem okkur finnst skemmti­legt og setja það undir sama þakið.“

Hvernig mynduð þið lýsa hár­snyrti­stof­unni í einni máls­grein? „Góð tón­list, ljúf­fengir drykkir, skemmti­legt fólk og þægi­legt and­rúms­loft.“

Á hár­snyrti­stofan sér fyr­ir­mynd úti í heimi? „Nei, í raun­inni ekki. Það var engin ein stofa sem við höfðum í huga. Þetta bara gerð­ist mjög líf­rænt. Gamlar bækur og bíó­myndir um sögu rak­ar­ans eru okkar helstu fyr­ir­myndir.“

Hár­snyrt­ing og viskíbar er skemmti­leg sam­setn­ing og minnir á villta vestrið. Stofan hlýtur að vera vin­sæl meðal við­skipta­vina og laða þá að. Eru ekki margir fastakúnnar sem njóta þess að láta dekra við sig og fá smá­vegis viskídreitil? „Jú, svo sann­ar­lega. Þetta smellpassar saman. Fólk kemur og nærir sig að innan og utan. Seinniparts­tímar dags­ins eru orðnir ansi fljótir að fyll­ast og menn eru yfir­leitt með tím­ana sína fast­bók­aða langt fram í tím­ann og reyna oft að koma með vinum sínum og halda fundi,“ segir Nonni og brosir.

Við höfum heyrt að þið bjóðið einnig upp á smakk­anir sem hafa notið mik­illa vin­sælla. Frum­leik­inn er við völd og þið hafið verið með ýmsar sam­setn­ingar. Okkur langar að heyra aðeins meira af því. „Við erum sér­legt áhuga­fólk um lífs­ins lystisemdir, til að mynda mat og vín. Við höfum sankað að okkur ynd­is­lega ljúf­fengu og spenn­andi úrvali af viskíi sem okkur fannst við verða að deila með öðrum. Þannig að við settum saman nokkrar smakk­ferðir þar sem við höfum tekið saman, til dæmis nokkur viskí sem okkur finnst lýsa vel þeirri miklu flóru sem bragð­heimur viskís hefur upp á að bjóða. Einnig höfum við verið að para saman viskí og bjór og það kemur ótrú­lega skemmti­lega á óvart. Við höfum stúd­erað aðeins sögu kok­teils­ins og hvernig hugs­an­lega fyrstu viskíkok­teil­arnir hafi smakk­ast.“

Þið hafið boðið upp á fjöl­marga við­burði af ýmsu tagi, getur þú sagt okkur aðeins frá því konsepti? „Við höfum haldið list­sýn­ingar, verið með ljóða­upp­lestur, einkapartí og mikið af tón­leikum. Við erum til dæmis búin að vera Off-Venue á Airwaves þrjú ár í röð og svo fengum við að hýsa tón­leika­röð Sofar Sound í eitt skipti sem var frá­bært. Okkur finnst alveg nauð­syn­legt að brjóta upp dag­legu rútín­una svona endrum og sinnum.“

Hvar getur fólk fylgst með því sem er í boði hjá ykkur að hverju sinni? „Við reynum að vera dug­leg á sam­fé­lags­miðlum, t.d. er www.questsaloon.is síðan okkar á Facebook og þar er hægt að fylgj­ast með og senda okkur fyr­ir­spurnir. Svo erum við á Instagram, VK og Twitter sem #questsaloon eða #nonniquest.“

Einnig er hægt að kaupa ýmsan varn­ing hjá ykkur, ýmis konar hár­snyrti­vörur og fylgi­hluti, ekki satt? „Við erum líka með heild­sölu á hár­litum og hár­efnum frá Goldwell, DENMAN og KMS California sem við seljum á aðrar stofur og einnig til við­skipta­vina okkar. Á barnum/afgreiðsl­unni er skemmti­lega fjöl­breytt flóra af hár­efnum, skegg­vörum, burstum, bjór, viskíi og ýmsu öðru skemmti­legu.“

Myndir / Hákon Davíð Björnsson

Stúdíó Birtíngur í sam­starfi við Mini. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur