Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Leyndardómar súkkulaðiverksmiðjunnar OMNOM

Við litum inn í súkkulaði­verk­smiðj­una OMNOM sem stað­sett er við Hólma­slóð 2 í Reykja­vík í glæsi­legum húsa­kynnum. Þar hittum við stofn­and­ann og einn af eig­end­unum súkkulaði­verk­smiðj­unnar, Kjartan Gíslason, sem bauð okkur í drauma­ferð­ina um verk­smiðj­una þar sem leynd­ar­mál súkkulaðs­ins eru geymd. Súkkulað­i­ilm­ur­inn sem tók á móti okkur var ómót­stæði­legur.

Leyndardómar súkkulaðiverksmiðjunnar OMNOM

Hvernig kvikn­aði áhug­inn á súkkulaði­gerð­inni?
„Omnom-ævin­týrið byrj­aði af ein­skærri for­vitni um hvernig súkkulaði væri gert. Ég reif­aði þessa hug­mynd við æsku­vin minn, Óskar Þórð­ar­son, og saman fórum við að pæla í þessu. Við erum báðir miklir sæl­kerar og finnst gaman að fara út að borða og velta fyrir okkur mat. Við fórum í það að kanna mög­leika á tólum og tækjum til súkkulaði­gerðar og eftir nokkrar mis­góðar til­raunir vorum við komnir með eitt­hvað sem hægt er að kalla súkkulaði. Þetta ferli var svo spenn­andi og skemmti­legt að við vildum fara í fram­leiðslu og fengum til liðs okkur hönnuð sem á heið­ur­inn af hönnun umbúð­anna. Þegar það var til­búið sáum við að við vorum með eitt­hvað sér­stakt í hönd­unum.“

Getur þú sagt okkur aðeins frá til­urð súkkulaði­gerð­ar­innar og fram­kvæmd­inni?
„Við byrj­uðum heima hjá mér að rista og mala baunir og búa til súkkulaði, þangað til við fundum yfir­gefna bens­ín­stöð á Sel­tjarn­ar­nesi. Þar héldum við starf­inu áfram þangað til fyrsta varan okkar var til­búin. Það fóru margar næt­ur­vinnu­stundir og margar kaffi­könnur í að koma fram­leiðsl­unni af stað. Í dag starfa yfir tutt­ugu manns hjá Omnom. Við verðum með okkar eigin verslun og bjóðum upp á súkkulaði­túr á hverjum ein­asta degi. Við finnum fyrir miklum áhuga á Omnom og súkkulað­inu okkar.“

Hvað er erf­ið­ast við að fram­leiða gott súkkulaði?
„Að bíða eftir því að súkkulaði­blanda verði til­búin. Súkkulaði­gerð er tíma­frek og stundum þurfum við að bíða í þrjá daga þar til að upp­skrift er til­búin.“

„Við bjóðum upp á súkkulaði­t­úra á hverjum ein­asta degi. Við finnum fyrir miklum áhuga á hvernig súkkulaði er búið til, eins og í vín­gerð og osta­gerð.“

Hvernig fer vöru­þró­unin fram?
„Ég fæ að leika mér í til­rauna­eld­hús­inu eins og snar­brjál­aður vís­inda­maður í kvik­mynd­unum. Nei, en að öllu gamni slepptu er það stundum þannig. Black n Burnt Barley varð til þannig. Það var upp­runa­lega hvítt súkkulaði sem varð svart því við próf­uðum að bæta brenndu byggi út í súkkulaðið. Fyrir jólin í fyrra efndum við til keppni inn­an­húss fyrir vetr­arsúkkulaðið okkar. Það var mjög skemmti­leg til­raun og allir fengu að leggja sitt af mörkum. Allir sem starfa hérna fá að búa til sitt eigið súkkulaði. Það hafa margar mjög góðar súkkulaði­teg­undir lent inn á borði hjá mér í þessum til­raunum – reyndar líka mjög sér­stakt súkkulaði.“

Umbúð­irnar eru ein­stak­lega vel útfærðar og lógóið hefur vakið athygli, hver er hönn­uð­ur­inn og hvaðan kemur inn­blást­ur­inn?
„André Visage hönn­uður bjó til lógóið og hönnun umbúð­anna. Við vildum að útlit umbúð­anna væri í anda súkkulað­is­ins. Litríkt og skemmti­legt og útkoman var sú sem við þekkjum í dag. Í dag er Veronica Filippin hönn­uð­ur­inn okkar. Allt sem að hún gerir er gull.“

Bjóðið þið upp á heim­sóknir og kynn­ingar í súkkulaði­verk­smiðj­unni að hætti Kalla, það er segja að fyr­ir­mynd „Charlie and the Chocolate Factory“ ?
„Heldur betur og erum með Oompa Loompas í fullu starfi,“ segir Kjartan hlæj­andi. „Við bjóðum upp á súkkulaði­t­úra á hverjum ein­asta degi. Við finnum fyrir miklum áhuga á hvernig súkkulaði er búið til, eins og í vín­gerð og osta­gerð. Við höldum einnig allskyns skemmti­leg nám­skeið, eins og í til dæmis súkkulaði- og bjórpörun. Næsti við­burður okkar er hald­inn í sam­starfi við Reykja­vík Roasters þar sem við ætlum að bjóða upp á súkkulaði- og kaffi­pörun. Það verður mjög skemmti­leg stund sem haldin verður 6. októ­ber næst­kom­andi og ég hvet sem flesta til þess að skrá sig.“

Fram­tíðin er björt hjá fyr­ir­tæk­inu og það blómstrar og dafnar vel. Eru ein­hver ný fram­tíð­arplön?
„Helsta mark­mið okkar er að halda áfram að búa til hágæða súkkulaði og gera lífið skemmti­legra fyrir fólk.“

Stúdíó Birtíngur í sam­starfi við Mini.

Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur