Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Afslappaður og skemmtilegur staður í hjarta Hafnarfjarðar

Á dög­unum heim­sóttum við veit­ingap­arið Krist­jönu Þuru Berg­þórs­dóttur og Einar Hjalta­son sem eiga og reka veit­inga­húsið VON mat­hús&bar í Hafn­ar­firði. Stað­ur­inn hefur heillað gesti sína upp úr skónum fyrir ljúf­fenga rétti, hlý­legar mót­tökur og afslappað and­rúms­loft og góða þjón­ustu. Okkur lék for­vitni að fræð­ast frekar um til­urð stað­ar­ins og um lífs­stíl þeirra hjóna.

Afslappaður og skemmtilegur staður í hjarta Hafnarfjarðar

Getið þið sagt okkur aðeins frá til­urð veit­inga­stað­ar­ins?
„Við erum bæði upp­alin í mið­borg­ar­veit­inga­geir­anum og höfðum lengi pælt í því að opna okkar eigin rekstur. Árið 2015 vorum flutt aftur í Hafn­ar­fjörð og komin með lítið barn, orðin þreytt á því að keyra í vinnu frá Hafn­ar­firði til Reykja­víkur á hverjum degi. Á svip­uðum tíma á árinu vorum við að koma úr fæð­ing­ar­or­lofi og okkur fannst vanta meiri upp­bygg­ingu á þessu svæði sem við bjuggum á, í Suð­ur­bænum í Hafn­ar­firði. Við duttum inn á þetta hús­næði í gamla Drafn­ar­hús­inu við Strand­götu og það var verið gera húsið upp og breyta því í nokkrar ein­ingar. Það þurfti ekki mikla sann­fær­ingu um að kýla á þetta verk­efni.  Vissu­lega var þetta áhættu­samt, þar sem eng­inn hafði opnað svona veit­inga­hús í mjög langan tíma í bænum, en með góðri aðstoð frá fjöl­skyld­unni ákváðum við að kýla á þetta.“

Hvaðan kemur hug­myndin að nafn­inu, það er einkar fal­legt, VON mat­hús&bar?
„Við vildum hafa nafnið fal­legt, stutt og hnit­miðað. Eins vildum við hafa akk­eri í lógóinu líka, þannig kom nafnið VON upp í einum góðum bíltúr. Mathús og bar kom því okkur fannst það lýsa okkur per­sónu­lega og okkar rekstri best. Við vildum ekki hafa þetta of form­legt veit­inga­hús, heldur frekar meira út í „gastropub“ eins og þekk­ist víða, meðal ann­ars í London. Þar sem þú kemur inn í frekar afslappað og skemmti­legt umhverfi, en getur fengið vand­aðan mat og drykki og skemmti­lega þjón­ustu, án þess að stíga form­lega inn á „fine din­ing“-stað.“

Starfs­á­nægja og gæði fram yfir hraða nútíma­sam­fé­lags­ins
„Við erum með lokað á sunnu­dögum og mánu­dögum. Fyrir mörgum Íslend­ingum er það enn þá mjög óvenju­legt, en við gerum það ein­fald­ega því það hentar okkur og okkar rekstri best. Þetta tíðkast víða erlendis og eru sífellt fleiri staðir í Reykja­vík byrj­aðir að hafa lokað á mánu­dögum. Ég er mjög ánægð með þessa þróun. Hraðinn í nútíma­sam­fé­lagi er mik­ill og mín skoðun er sú, að það þarf ekk­ert alltaf allt að vera opið alltaf. Við erum lít­ill en góður vinnu­staður og mik­il­vægt að allir fái áreit­is­lausa hvíld. Við hugsum þetta meira til lang­tíma, heldur en að allir brenni út af álagi.“

Þið standið fyrir við­burðum í tengslum við matar- og drykkj­ar­upp­lifun á VON mat­hús&bar, eru nýir við­burðir á döf­inni?
„Við erum með sann­gjarnan og breyti­legan hádeg­is­seðil þriðju­daga til föstu­daga  frá klukkan 11.30 til 14.00. Fastur kvöld­seðil frá klukkan 17.30, sem tekur reglu­legum breyt­ingum. Í októ­ber ætlum við að vinna sam­hliða Tommasi og verðum með villi­bráð­ar­helgi og ítalska helgi, með sér­mat­seðli og drykkjum. Við erum miklir aðdá­endur Ítalíu og einnig finnst okkur gaman að þjón­usta kúnna­hóp­inn okkar með nýjum og skemmti­legum leiðum. Sem dæmi má nefna að helg­ina 19. til 20. októ­ber verðum við með ítalska mat­ar­veislu sem parað verður með sér­völdum Tommasi-vínum.

Við erum mjög virk á sam­fé­lags­miðlum, Facebook og Instagram (von­mat­hus), og þar verður hægt að fylgj­ast með og öllu okkar dag­lega amstri.“

Heima­síða: www.vonmathus.is

https://www.facebook.com/vonmathus/

Stúdíó Birtíngur í sam­starfi við VON mat­hús&bar.

Mynd / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur