Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hulunni svipt af jólamatseðli Bryggjunnar brugghúss

Bryggjan brugg­hús er róm­aður staður fyrir frá­bæran mat, líf­lega stemn­ingu og skemmti­lega við­burði sem tengj­ast gjarnan árs­tíðum þar sem áhuga­verðri dag­skrá er parað saman við glæsi­lega mat­seðla og drykki sem eiga við hverju sinni. Við hittum Margréti Rík­harðs­dóttur sem er yfir­mat­reiðslu­meist­ari og Elvar Ingi­mars­son, eig­anda og rekstr­ar­stjóra, og fengum inn­sýn í hvað verður í boði á jólasmat­seðli stað­ar­ins í vetur.

Hulunni svipt af jólamatseðli Bryggjunnar brugghúss

Þið eruð komin á fullt að und­ir­búa aðvent­una og byrjuð á jóla­mat­seðl­inum. Getur þú gefið okkur for­skot á sæl­una og ljóstrað leynd­ar­mál­inum hvað verður í boði á jóla­mat­seðl­inum í ár?
„Eins og und­an­farin ár byrjum við á jólaplatt­anum sem er blanda af for­réttum. Við reyndum að koma bjórnum eins mikið og hægt var inn í seð­il­inn. Á platt­anum erum við með síld, mar­iner­aða í blá­berjum, og IPA-bjór, lax graf­inn í Fagn­að­ar­er­ind­inu (innsk. jóla­bjór) með sinn­eps­dress­ingu, bjór­grafið lamba­innra­læri með hind­berja- og basildress­ingu og að lokum rækju­kok­teil með mangó- og sítrussósu. Aðal­rétt­ur­inn er svo hægeldað anda­læri með beikonkart­öflumús, döðlu­m­auki, vor­lauk, ostru­sveppum og app­el­sínusoðsósu. Í eft­ir­rétt erum við með Stout-ís, pip­ar­kökumuln­ing, bakað hvítt súkkulaði og kirsu­berjasósu,“ segir Margrét full til­hlökk­unar. Byrjað verður að bjóða upp á jóla­seðil Bryggj­unnar brugg­húss þann 23. nóv­em­ber næst­kom­andi.

Má segja að sjáv­ar­fang verði í for­grunni hjá ykkur í aðvent­unni?  
„Sjáv­ar­fang spilar stórt hlut­verk á jólaplatt­anum og bjór­inn einnig en hann er auð­vitað allur brugg­aður hér inn­an­húss,“ segir Margrét.

Margrét og Sigurður Hjarta­son mat­reiðslu­maður eiga heið­ur­inn af sam­setn­ingu jóla­mat­seðl­is­ins í ár og hafa nostrað við hann af mik­illi ástríðu.

Þið bruggið ykkar eigin bjór sjálf, verið þið með jóla­bjór í ár?
„Bryggjan brugg­hús ber út „Fagn­að­ar­er­indið“ í fljót­andi formi um jólin. Bjór­stíll­inn er belgískur Dubbel. Þurrk­aðir ávextir og sæta frá rist­uðu byggi ein­kenna þennan myrka en nota­lega bjór. Dökkur eins og nóttin en ljúfur í munni. Hjálpið okkur að breiða út Fagn­að­ar­er­indið,“ segir Elvar og er mjög ánægður með nýj­ustu afurð­ina í brugg­inu.

Bjóðið þið upp á við­burði í tengslum við aðvent­una, skemmti­dag­skrá sam­hliða því er gestir njóta mat­ar­ins?
„Já, frá fimmtu­degi til sunnu­dags verður lif­andi jólajazz í boði fyrir gest­ina.“

Er mikið um að fyr­ir­tæki og hópar haldi upp á aðvent­una hjá ykkur og bóki langt fram í tím­ann?
„Það eru mjög margir hópar, bæði íslensk fyr­ir­tæki og vina­hópar, sem eru þegar byrj­aðir að bóka bæði jóla­seð­il­inn og jóla­hlað­borð. Við bjóðum upp á jóla­hlað­borð fyrir stærri hópa sé óskað eftir því,“ segir Elvar og er ávallt reiðu­bú­inn að koma til móts við óskir við­skipta­vina. „Síðan er aldrei að vita hvort við bregðum út af van­anum og höldum þrett­ánda­gleði á nýju ári,“ segir Elvar og brosir breitt.

Jólaseðillinn – innihald

Jóla­seð­ill­inn (hægt að fá vegan-útgáfu) – 7.990 kr. (hægt að fá drykkj­arpörun á 4.990 kr. auka­lega)

For­réttir 
Mar­ineruð síld í IPA-bjór og blá­berjum á rúg­brauði
Grafinn lax í Fagn­að­ar­er­ind­inu (jóla­bjór) og sinn­epssósa
Bjór­grafið lamb með epli og basil- og hind­berja­dress­ingu
Rækju­kok­teill með mangó- og sítrussósuAðal­réttur 
Confit de Canard (anda­læri) með beikon-kart­öflumús, döðlu­m­auki, vor­lauk, ostru­sveppum og app­el­sínusoðsósu

Eft­ir­réttur 
Bjór-ís (stout) með pip­ar­kökumuln­ing, bök­uðu hvítu súkkulaði og kirsu­berjasósu

Jóla­hlað­borð – 9.990 kr.

For­réttir 
Bláberja- & IPA-mar­ineruð síld með rúg­brauði
Sinn­eps­síld með rúg­brauði
Lax, graf­inn í Fagn­að­ar­er­ind­inu með sinn­epssósu
Reyktur lax með pip­ar­rót­arsósu
Reyktar rækjur í skel og chili-tart­arsósa
Bjór­grafið lamb með hind­berja- og basildress­ingu
Vegan-jólataco með döðlu­m­auki & stökkri gul­rót
Vegan-paté á rúg­brauði með bjór­sýrðri gúrku & sætum lauk (inni­heldur hnetur)
Jóla­salat með eplum, hnetum & hind­berja­dress­ingu

Aðal­réttir 
Andalæri – confit de canard
Pur­u­steik af bjór­grís
Hnetu­steik

Meðlæti 
Syk­ur­brún­aðar kart­öflur
Rósakál
Gljáðar gul­rætur
App­el­sínu­gljái

Eft­ir­réttir
Bjórís með kirsu­berjasósu og pip­ar­kökumuln­ing
Súkkulaði­kaka Bryggj­unnar og fersk ber
Kókostoppar

Bók­un­ar­númer 456-4040

eða [email protected]
Lág­marks­fjöldi í jóla­hlað­borð eru 50 manns.

Stúdíó Birtíngur í sam­starfi við Bryggjan brugg­hús.
Myndir / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur