Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Suðræn upplifun þar sem ævintýrin gerast

Á fal­legum haust­degi lá leið okkar í hjarta mið­borg­ar­innar, á Burro Tapas + Steaks veit­inga­stað­inn og Pablo Discobar við Veltu­sund 1 fyrir framan Ing­ólfs­torg. Burro er róm­aður fyrir fram­andi mat­ar­upp­lifun þar sem bragð­lauk­arnir fá að njóta sín til fulls og fyrir suð­ræna og líf­lega stemn­ingu. Við hittum Gunn­stein Helga sem er einn eig­enda stað­ana og spjöll­uðum um til­urð þeirra og hug­mynda­fræð­ina að baki.

Suðræn upplifun þar sem ævintýrin gerast

Burro er stað­settur á annarri hæð en á þriðju hæð er kok­teil­bar­inn Pablo Discobar og tengj­ast stað­irnir saman. Litrík sjón blasti við okkur þegar inn kom, það var eins og við værum komin á suð­rænar slóðir og í allt annað umhverfi og tón­listin ómaði. Stað­irnir minntu óneit­an­lega á borg­ina Havana á Kúbu með mexíkósku ívafi og maður lifnar allur við. Hönnunin, lit­ríkur stíll­inn og mun­irnir gleðja augað og upp­lifunin er fram­andi. Okkur lék for­vitni á að vita allt um hönn­un­ina, inn­an­stokks­muni og það sem fyrir augum bar.
Hjónin Róbert Óskar og Anna Marín eru einnig eig­endur stað­ana ásamt Gunn­steini Helga. Gunn­steinn Helgi hefur verið við­loð­andi veit­inga­brans­ann síðan hann var í fram­halds­skóla og hefur komið að opnun fjöl­margra veit­inga­staða ásamt mörgu góðu fólki, mis­mun­andi fólki eftir stöðum. Þeir staðir sem Gunn­steinn Helgi hefur tekið þátt í að hanna og opna á síð­ustu átta árum eru Íslenski bar­inn við Aust­ur­völl, Uno, Sushi Samba, Apótekið, Public House Gastropub, sem var fyrsti gastro-bar­inn á Íslandi, Burro Tapas +Steaks & Pablo Discobar, Miami Bar og síðan eru fleiri staðir í bígerð.

Getur þú sagt okkur nánar frá til­urð og hönnun stað­ar­ins?
„Okkur eig­end­unum lang­aði að feta nýjar slóðir og vera með áherslu á mið- og suð­ur­am­er­íska mat­ar­gerð. Við fengum til liðs við okkur nokkra fram­úr­skar­andi hönn­uði, hvern á sínu sviði. Hálfdán Pedersen inn­an­húss­hönnuð og á hann heið­ur­inn af hönn­un­inni á útliti stað­ar­ins, Sigga Odds sem er graf­ískur hönn­uður, til hanna lógó og alla grafík stað­ar­ins og Þórð Orra Pét­urs­son, ljósa­hönnuð og for­stöðu­mann ljósa­deildar Borg­ar­leik­húss­ins, til að sjá um ljósa­hönnun og lýs­ingu. Bæði Siggi Odds og Þórður Orri voru til­nefndir til verð­launa fyrir þetta verk­efni, hönnun stað­ar­ins,“ segir Gunn­steinn Helgi.  Gunn­steinn Helgi sagði að það hafi verið vel ígrundað hvað þau hefðu viljað sjá og þau hafi verið með ákveðna hug­sjónir. „Þegar kom að hönnun Burro og Pablo Discobar varð hug­sjón okkar um útlit stað­anna að veru­leika í gegnum verk Hálfdáns. Hálfdán lærði í Los Angelse og hefur ferð­ast mikið um Mexíkó og þær slóðir sem við sækjum okkar helsta inn­blástur til. Innsýn hans í sam­fé­lagið þar, sem nær meira að segja inn í fanga­klefa í Mexíkó hefur reynst okkur ómet­an­leg. Það er fátt, ef eitt­hvað, sem Hálfdán hefur ekki hæfi­leika til en hann hefur meðal ann­ars unnið að hönnun fjölda rýma og hannað sett fyrir ýmsar kvik­myndir, aug­lýs­ingar og tón­list­ar­mynd­bönd. Hugur Hálfdáns virkar á ótrú­legan hátt og virð­ist hann vera enda­laus upp­spretta hug­mynda svo það varð fljótt ljóst sem varð að hönnun hans og hug­mynda­vinna tók okkur enn lengra en upp­haf­leg hug­sjón okkar hafði farið. Fyrir til­stilli Hálfdáns er því skemmti­leg sam­blanda af gömlu og nýju bæði á Burro og Pablo Discobar og áhersla mun vera lögð á end­ur­nýt­ingu, lif­andi liti, mynstur og á ein­staka suð­ræna upp­lifun.“

Rétt lýs­ing full­komnar útlitið
Stað­ur­inn er hann­aður með útlit sem vitnar í suð­ræn áhrif en með nútíma­legu partíí­vafi. „Til þess að full­komna útlit Burro og Pablo Discobar, setja punkt­inn yfir i-ið og byggja upp hár­rétta suð­ræna stemn­ingu fengum við Þórð Orra til að hanna lýs­ing­una fyrir báða stað­ina. Hönnun Þórðar varpar ljósi á það að við erum skemmti­leg, skrýtin, fal­leg, for­vitni­leg og það flott að þú vilt koma aftur og aftur til að skoða og upp­lifa meira.“

Suð­ur­am­er­ísk menn­ing­ar­arf­leið höfð að leið­ar­ljósi
Lógó stað­anna eru mjög töff og mat­seðl­arnir eru frum­legir í útliti sem og heima­síður stað­ana sem ná að fanga augað.  „Siggi Odds sér um allt graf­ískt efni fyrir Burro og Pablo Discobar. Siggi hefur unnið sem graf­ískur hönn­uður og teikn­ari með fyr­ir­tækjum og ein­stak­lingum alls staðar að úr heim­inum og leggur áherslu á ímynd­ar­sköpun vöru­merkja í gegnum verk sín. Siggi hafði suð­ur­am­er­íska menn­ing­ar­arf­leið að leið­ar­ljósi í vinn­unni með okkur og dró fram fág­uðu og fínu eig­in­leik­ana okkar, án þess þó að gleyma því að við erum mjög afslöppuð og skemmti­leg líka,“ segir Gunn­steinn Helgi og brosir. „Latin-Ameríka býr yfir ótelj­andi mis­mun­andi hefðum í mynd­skreyt­ingu og hand­verki. Sumar eiga rætur að rekja til Inka-, Maya- og Aztec-þjóð­fokk­anna fornu. Flest eiga það sam­eig­in­legt að vera sterk, líf­leg og lif­andi í form­gerð og lita­dýrð og þaðan fékk Siggi Odds inn­blást­ur­inn við hönn­un­ina. Lóg­ótýpan eða let­ur­gerðin fyrir Burro og Pablo er dregin frá hand­gerðu let­ur­hefð­inni og er mjög undir áhrifum frá útskorna skilt­inu sem var á vegi hans.  Lóg­ótýp­urnar eru mjög ein­kenn­andi og skemmti­lega furðu­legar og jafn­framt gríð­ar­lega eft­ir­minni­legar.

Asninn síkáti og mann­vera dans­andi í kok­teil­glasi
Gaman er að geta þess að mynd­merki Burro er asninn síkáti teikn­aður með sterkum en lif­andi formum sem tala við form­gerð lóg­ótýpunnar. Notkun á bara einum lit, gull­brúnum, og fín línan gefur merk­inu ákveðna fágun. Mynd­merki Pablo Discobar er mann­vera dans­andi í kok­teil­glasi, byggt á sama form­heimi og í sömu lögun og asninn. Mótífð er fjörugt og dimmrauði lit­ur­inn vitnar í 70‘s tíma­bilið en heldur fág­uðu yfir­bragði. Saman mynda merkin skemmti­lega tvennu sem tala vel saman og eru aug­ljós­lega tvær hliðar á sama pen­ingi vegna ein­kenn­andi sér­kenna.

Handverk og mynd­skreyt­ingar frá Suður-Ameríku
Litirnir á veggj­unum, þeir toppa stað­inn, segðu okkur aðeins frá lita­val­inu og hug­mynda­fræð­inni bak við það. „Lita­pal­letta stað­anna er nokkuð breið og fengin úr ýmsum áttum úr hand­verki og mynd­skreyt­ingum Suður-Ameríku. Hún spannar nán­ast allan lita­hring­inn en er í heild­ina mjög hlý og býður upp á marga mögu­leika.“

Boðið er upp á modern latino tapas-rétti og steikur
Rétt­irnir ykkar á mat­seðl­inum eru bæði mjög frum­legir og nýstár­legir, getur þú lýst áherslum ykkar í mat­ar­gerð og fram­reiðslu? „Á Burro er lögð áhersla á mið- og suð­ur­am­er­íska nútíma­matseld og áhrifin eru sótt alla leið frá Argent­ínu og upp til Mexíkó. Boðið er upp á modern latino tapas-rétti og steikur sem lagt er til að fólk á borðum panti sér saman og deili og á seðl­inum er einnig ágætt úrval rétta fyrir græn­kera. Mikið er lagt upp úr því að skapa rétta stemn­ingu á staðnum og bland­ast þar saman fjör og fag­mennska með suð­ur­am­er­ískum áherslum.

Einnig erum við með kok­teil­bar­inn á hæð­inni fyrir ofan, Pablo Discobar eins og fram hefur komið og er Pablo, litli bróðir Burro, svo­lítið hall­æris­legur en alltaf í stuði. Hann sækir áhrif sín einnig til Suður-Ameríku en einnig til diskó­tíma­bils­ins. Á Pablo færðu klikk­aða kok­teila og brjálað stuð og þú veist aldrei hvernig kvöldið mun enda. Þjónað er til borðs öll kvöld og ham­ingju­stund er alla daga frá klukkan 16.00 til 18.00.“ Einnig er vert að minn­ast á það að nýr mat­seð­ill leit dags­ins ljós í upp­hafi þess­arar viku og nýir og spenn­andi réttir í boði.“

Ævin­týra­legar mat­ar­upp­lif­anir fyrir alla
Hver er mark­hóp­ur­inn sem þið eruð að höfða til á Burro? „Allra nautna­seggja og sæl­kera lands­ins og þeirra sem elska góðan mat og frá­bæra kok­teila í fal­legu umhverfi. Það eru auð­vitað allir vel­komnir á Burro og við erum með stóran hóp fastakúnna en lang­flestir okkar gesta eru Íslend­ingar.“ Þið eruð að bjóða upp á skemmti­legar mat­ar­upp­lif­anir, ævin­týra­ferðir og stundum við­burði tengda þeim. Eru mat­ar­upp­lif­anir vin­sælar meðal hópa og fyr­ir­tækja? „Sam­blanda Burro og Pablo er ein­stök er gerir stað­inn ákjós­an­legan kost fyrir smærri og stærri hópa.  Það er hægt að koma í Happy Hour á milli klukkan16.00 og 18.00 á Pablo Discobar, fara síðan með hóp­inn í matar­æv­in­týri á Burro og eftir mat­inn aftur upp á Pablo í kok­teila og djamm fram á nótt, því er hægt að vera inni í sama hús­inu frá opnun til lok­unar og halda þannig öllum hópnum saman allan tím­ann frekar en að vera þvæl­ast á milli staða með til­heyr­andi ves­eni.“ Einnig er boðið upp á veislu­þjón­ustu sem er gríð­ar­lega vin­sæl og hentar við öll tæki­færi. Það er hægt að skoða úrvalið sem í boði er á eft­ir­far­andi síðu: http://www.burro.is/wp-content/uploads/2018/09/burro-veisla-sept2018.pdf

Einn besti kok­teil­bar lands­ins
Segðu okkur aðeins frá kok­teil­unum sem þið eru fræg fyrir að bjóða upp á? „Pablo Discobar var einmitt val­inn besti kok­teil­bar Íslands í fyrra og allir mat­ar­gestir Burro geta pantað sé kok­teila að eigin vali fyrir mat, með matnum eða eftir mat. Pablo er svo hepp­inn að eiga marga góða að og meðal ann­ars að vera með úrvalslið bar­þjóna með sér í liði sem sjá um að gera bestu kok­teila lands­ins, en stað­ur­inn tekur sig ekki of alvar­lega og snýst fyrst og fremst um skemmtun að allir skemmti sér vel og fái frá­bæra kok­teila frá bestu bar­þjónum lands­ins. En eins og nafnið gefur til kynna, Pablo (mið- og suð­ur­am­er­ískt nafn) Discobar (70’s/80’s) þá eru kok­teil­arnir í sama þema, blanda af áhrifum frá Disco-tíma­bil­inu og Mið- og Suður-Ameríku.“

Stúdíó Birtíngur í sam­starfi við Burro Taps + Steaks.

Myndir / Hallur Karlson og Sigurjón Ragnar

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur