Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Líður best í faðmi fjölskyldunnar

Óskar Þór Hilm­ars­son, við­skipta­fræð­ingur og lög­giltur fast­eigna­sali hjá Fjár­fest­ingu fast­eigna­sölu, fílar ein­föld og nútím­leg húsögn og seg­ist vera veikur fyrir funkis­stíl þótt hann sé ekki alltaf praktískur.

Líður best í faðmi fjölskyldunnar

„Mér finnst afskap­lega gaman að hitta og kynn­ast fólki og eiga sam­skipti við ólíkt fólk. Flestum finnst gaman og spenn­andi að kaupa fast­eign og ég hef ánægju að því að taka þátt í því ferli með fólki. Svo eru það mikil for­rétt­indi að hafa fengið að starfa með föður mínum, Hilmari, í fimmtán ár,“ segir Óskar Þór Hilm­ars­son, fast­eigna­sali hjá Fjár­fest­ingu fast­eigna­sölu, spurður að því hvað heilli hann við starfið.

Beðinn um að lýsa hefð­bundnum vinnu­degi seg­ist Óskar vera mættur á skrif­stof­una rétt um níu­leytið. „Yfir­leitt er byrjað á verk­efnum og skipu­lögð verk­efni sem snúa að rekstri stof­unnar og eins eru skipu­lagðar sýn­ingar og opin hús og þvíum­líkt. Svo eru verð­mats­fundir yfir­leitt haldnir á morgn­ana,“ segir hann og getur þess að dag­ur­inn endi svo oft á sýn­ingum á eignum eða skoð­unum.

Er ein­hver bygg­ing­ar­stíll sem heillar þig meira en annar og áttu upp­á­halds­arki­tekt eða -hönnuð? „Kjartan Sveins­son skildi eftir sig ansi mörg fal­leg hús sem og Sigvaldi Thordar­son. Af þeim sem eru starf­andi í dag, er ég svo hepp­inn að hafa selt mikið af húsum sem Guð­mundur Gunn­laugs­son hefur teiknað, en mér þykir hann vera mjög fær og með nota­gildi að leið­ar­ljósi. Hönnuður? Til að segja eitt­hvað myndi ég segja Aalvar Alto. Varðandi stíl þá finnst mér nýi funkis­stíll­inn afskap­lega fal­legur þótt hann sé ekki alltaf praktískur. Varðandi húsögn er ég með ein­faldan og nútíma­legan stíl.“

Hvað hefur þig alltaf dreymt um að eign­ast en ekki eign­ast hingað til? „Stórt ein­býl­is­hús með nóg af plássi fyrir öll leik­föng fjöl­skyld­unnar.“

Hvað er það sem þér finnst gera heim­ili að heim­ili? „Fólkið sjálft innan heim­il­is­ins og fal­leg hús­gögn.“

Upp­á­halds­lit­ur­inn þinn? „Blár, en app­el­sínu­gulur þegar stelp­urnar mínar eru að spila með Fylki í fót­bolt­anum.“

Hvar líður þér best? „Heima umvaf­inn fjöl­skyldu og vinum. Svo líður mér ein­stak­lega vel úti á golf­velli í góðu veðri.“

Hvað heillar þig mest við haustið? „Mér finnst haustið ekk­ert sér­stak­lega heill­andi með sínum haust­lægðum. Maður bætir alla­vega ekki við trampólíni eða upp­blás­inni sund­laug á haustin. En þegar maður horfir á það jákvæða er alla­vega stutt í jólin.“

Svalasti veit­inga­stað­ur­inn á Íslandi í dag? „Ítalía hefur alltaf verið í upp­á­haldi hjá okkur hjón­unum.“

Að lifa líf­inu lif­andi er að … gera það sem manni finnst skemmti­legt með fjöl­skyldu og vinum.

Mynd/ Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur