Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Dekkri litir, stórar flísar og svört blöndunartæki heitast í dag

Flísa­versl­unin VÍDD hefur stækkað og bætt sýn­ing­ar­sali sína í Bæj­ar­lind í Kópavogi og á Akureyri og fjöl­breytnin hefur aldrei verið meiri. Við heim­sóttum Hafstein Árnason, sölu- og mark­aðstjóra VÍDDAR, og Jóhann Leplat Ágústs­son sölu­mann og kynntum okkur það helsta sem í boði er í dag.

Dekkri litir, stórar flísar og svört blöndunartæki heitast í dag

Hver eru helstu mark­mið ykkar og áherslur sem þjón­ustu­fyr­ir­tækis? „Okkar mark­mið er að vera í fyrsta sæti hjá neyt­endum þegar þeir hugsa um flísar. Við leggjum áherslu á að bjóða mjög fjöl­breytt úrval af flísum, af öllum stærðum og gerðum. Við reynum gjarnan að bjóða upp á vörur sem eru frá­brugðnar þeim sem sam­keppn­is­að­ilar bjóða, til þess að skapa okkur ákveðna sér­stöðu. Flestir starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa mikla reynslu af flísum og flísa­lögnum, þannig að við getum leið­beint fólki af mik­illi þekk­ingu.“

Risaflísarnar móðins í dag

Á und­an­förnum árum hafa stærðir 30×60 og 60×60 senti­metrar verið hvað algengastar í flísum. Í hverri vöru­línu eru yfir­leitt um fimm til sex mis­mun­andi stærðir. „Núna sjáum við fram á að 45×90 og 75×75 senti­metra stærð­irnar verði hag­kvæm­ari kostur fyrir við­skipta­vini, þar sem verð á þeim hefur farið lækk­andi hjá birgjum. Okkar birgjar hafa einnig verið dug­legir að kynna risa­stærðir inn á und­an­förnum árum, eins og 120×120 senti­metra og 120×240 senti­metra, bæði fyrir gólf og veggi, en frá og með árinu 2019 munum við kynna stærð­ina 120×278 senti­metra, í 6 milli­metra þykktum fyrir veggi. Ástæðan fyrir lengd­inni á þessum flísum er að reglu­gerðir fyrir loft­hæð í íbúðum eru mis­mun­andi eftir löndum, en hjá okkur á Íslandi eru það 250 senti­metrar en til dæmis 270 senti­metrar í öðrum löndum. Það þýðir að við getum útvegað flísar sem þekja vegg­ina frá gólfi og alveg upp í loft,“ segja þeir Haf­steinn og Jóhann.

Und­an­farið hafa stórar flísar verið vin­sælar.

Flísa­hellur hafa notið vin­sælda að und­an­förnu, hvar nýt­ast þær best? „Flísa­hellur eru í raun flísar í 2 cm. þykkt. Þær eru hugs­aðar fyrir úti­lagnir, yfir­leitt í garða, ver­andir eða á svalir. Það er hægt að líma þær niður eins og flísar, eða leggja beint í jarð­veg eins og hellur, eða hafa þær á sér­stökum stoðum fyrir svalir eða aðra steypta fleti. Þetta er ákveðin lausn sem gerir okkur kleift að vera með fal­legt gól­f­efni á þessum svæðum, en um leið vera laus við vor­verk sem tengj­ast ill­gresi og mosa­gróðri. Ef flísa­hell­urnar eru settar á stoð­irnar, þá loftar undir, ólíkt venju­legum hellum eða þessum algenga timb­ur­panel, sem við­heldur bleyt­unni með til­heyr­andi óþæg­indum. Þessi lausn hefur verið mjög vax­andi í Evrópu á und­an­förnum tíu árum, en er til­tölu­lega nýleg á Íslandi. Við höfum komið að ýmsum verk­efnum og við­skipta­vinir okkar eru gríð­ar­lega ánægðir með útkom­una.“

Hver er vin­sælasta varan ykkar í dag? „Vin­sæl­ustu vör­urnar í dag eru ljós­leitar, sem­entsút­lít­andi flísar fyrir bað­her­bergi, sem er yfir­leitt það fyrsta sem fólki dettur í hug, þegar kemur að því að taka slík verk­efni. Hins­vegar höfum við orðið vör við að trendin séu pínu­lítið að breyt­ast. Fólk er óhrædd­ara núna við að velja dekkri liti fyrir bað­her­bergi, til dæmis milli­gráa. Inn­rétt­ing­arnar eru einnig að breyt­ast og það er kom­inn meiri karakter í þetta. Svört blönd­un­ar­tæki eru til dæmis eitt­hvað sem við sjáum víða, hvort sem það er í efni hjá okkar birgjum, en einnig það sem er að ger­ast í nágranna­lönd­unum í kringum okkur. Marm­araflísar hafa líka verið í stöðugri sókn. Það hefur einnig end­ur­spegl­ast í fjölda útlits­teg­unda sem við höfum verið að bæta við hjá okkur.“

Í sam­starfi við VÍDD

Myndir / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur