Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Elskar hús með gamla sál

Hrafn­hildur Björk Bald­urs­dóttir, stjórn­mála­fræð­ingur og lög­giltur fast­eigna-, fyr­ir­tækja- og skipa­sali hjá 101 Reykja­vík fast­eigna­sölu, er mik­ill bóka­ormur og hann­yrða­kona sem hefur óbilandi áhuga á að reyna skilja hvers vegna við erum eins og við erum. Aðal­á­huga­mál hennar síð­ustu ár hefur verið að afla sér þekk­ingar og reynslu um sál­fræði, starf­semi heil­ans, tauga­líf­fræði, líf­efna­fræði, nær­ingu, núvit­und og alls kyns hreyf­ingu.

Elskar hús með gamla sál

Hvað heillar þig mest við starfið? „Það er hversu fjöl­breytt og lif­andi það er. Það er frá­bær til­finn­ing að geta aðstoðað fólk við að skipta um hús­næði. Eins stressandi og margir sem standa í því ferli upp­lifa það, og við eins ólíkar aðstæður fólks sem við fast­eigna­salar eigum við, þá er ljúft að sjá þegar allir eru komnir á nýja stað­inn, glaðir, ánægðir og þakk­látir. Það heillar mig einnig hversu starfið er sveigj­an­legt hvað varðar tíma og hvaðan maður vinnur, þau þrjú tól sem eru ómissandi eru sím­inn, tölvan og bíll­inn. Og hversu mörgu góðu fólki maður kynn­ist og á sam­skipti við. Ég segi oft að um 90% af starf­inu felist í mann­legum sam­skiptum.“

Það heillar mig einnig hversu starfið er sveigj­an­legt hvað varðar tíma og hvaðan maður vinnur, þau þrjú tól sem eru ómissandi eru sím­inn, tölvan og bíll­inn.

Getur lýst hefð­bundnum vinnu­degi hjá þér? „Ég byrja dag­inn almennt á að lesa yfir tölvu­póst­inn, svara pósti og senda þau erindi sem ég þarf að senda frá mér. Svo er gott að nota fyrri­hluta dags í gagna­öflun, ýmsa eft­ir­fylgni og að skrá eignir. Seinni­hlut­inn getur svo verið alls konar, skoða eignir og veita selj­endum ráð­legg­ingar um sölu­ferlið, vinna með til­boðs­mál, alls konar sím­töl, svara fyr­ir­spurnum, benda fólki á eignir, sýna eignir og vera með opin hús. Ég vinn oft til sirka sjö á kvöldin og oft á sunnu­dögum en er nú mark­visst að reyna að þjálfa mig í að svara ekki vinnu­tengdum sím­tölum eftir klukkan sjö á kvöldin en fólk getur treyst því að ég hringi til baka svari ég ekki sím­tal­inu. Í þessu starfi er nauð­syn­legt að reyna að skilja að vinnu­tím­ann og tím­ann sem maður sinnir einka­líf­inu þó svo að það hafi oft reynst mér nokkuð erfitt.“

Hvað er það sem þér finnst gera heim­ili að heim­ili? „Fólk gerir heim­ili að heim­ili, í því felst fjöl­breyti­leik­inn.“

Geturðu lýst þínum stíl? „Hlýlegur. Ég hef losað mig við mikið af óþarfa­dóti á síð­ustu árum og er nú bara með hluti í kringum mig sem mér þykir á ein­hvern hátt vænt um, þykja fal­legir og mér líður vel með að hafa í kringum mig.“

Áttu þinn upp­á­halds­arki­tekt? „Ég á engan upp­á­halds­arki­tekt.“

Hver er þinn upp­á­halds­hönn­uður? „Ég á engan upp­á­halds­hönnuð.“

Hvað hefur þig alltaf dreymt um að eign­ast en ekki eign­ast hingað til? „Eins og ég nefndi áðan hef ég meira verið í að reyna að losa mig við hluti en að fá mér nýja en mig hefur þó um tíma langað í mál­verk eftir Guðmundu Krist­ins­dóttur, í bláum tónum, og ull­ar­flosteppi sem setu á kringlóttan koll, og einnig gólf­mottu, eftir Þóru Björk Schram, líka í bláum tónum, og svo langar mig í húsa­mynd úr gamla bænum í Reykja­vík, eftir Sigurð Sævar Magn­ús­ar­son.“

Ég hef losað mig við mikið af óþarfa­dóti á síð­ustu árum.

Upp­á­halds­lit­ur­inn þinn? „Hvítur og alls konar bláir tónar og út í sægrænan í stof­unni. Hvítt, ljós­bleikt og dökk­bleikt í eld­hús­inu. Einhvern veg­inn hef ég lað­ast mikið að þessum litum en ég get ekki málað vegg­ina í dökkum litum, það á ekki við mig. Hvað fatnað varðar þá er það aðal­lega svart, grátt, beige, blátt og aðeins út í græna tóna.“

Hvar líður þér best? „Mér líður best heima hjá mér. Heimilið er minn griða­staður.“

Hvað heillar þig mest við haustið? „Litirnir á gróðr­inum. Lita­sam­setn­ing­arnar geta gjör­sam­lega töfrað mig upp úr skónum. Svo heillar myrkrið mig og það að geta kveikt á kertum.“

Svalasti veit­inga­stað­ur­inn á Íslandi í dag? „Mér finnst Grandi mat­höll svalur, þar hef ég fengið mjög góðan mat og finnst gaman að horfa út á höfn­ina. Ég vona að „mat­hall­ar­dæmið“ sé komið til að vera hér í borg.

Er ein­hver bygg­ing­ar­stíll sem heillar þig meira en annar? „Gömul hús fá hjarta mitt oft til að slá hraðar, ég elska hús með gamla sál. Mér finnst til dæmis mörg húsin í Þing­holt­unum, á svæð­inu á milli Njarð­ar­götu og Bar­ón­stígs upp að Eiríks­götu, auk Fjólu-, Sóleyjar- og Tjarn­ar­götu vera dásam­lega tign­ar­leg og sjar­mer­andi.“

Að lifa líf­inu lif­andi er að … „njóta stund­ar­innar hér og nú.“

Mynd / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur