Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ef þú sérð eitthvað – gerðu eitthvað

Í til­efni þess að Blátt áfram að var ýta úr vör nýrri vit­und­ar­vakn­ingu, Ef þú sérð eitt­hvað – gerðu eitt­hvað, hittum við Þórleifu Guð­jóns­dóttur, verk­efna­stjóra hjá sam­tök­unum, og fengum kynn­ingu á vit­und­ar­vakn­ing­unni og frek­ari inn­sýn í starf­semi sam­tak­ana.

Ef þú sérð eitthvað – gerðu eitthvað

Getur þú sagt okkur nánar frá vit­und­ar­vakn­ing­unni og mark­miðum hennar? „Vit­und­ar­vakn­ingin snýst um að full­orðnir geti verndað börn og komið í veg fyrir áreitni og ofbeldi gegn þeim. Við munum standa fyrir aug­lýs­inga­her­ferð, fræðslu og  und­ir­skrift­ar­lista í tengslum við hana.  Með und­ir­skrift­ar­list­anum viljum við þrýsta á stjórn­völd að setja þekk­ingu um áfalla­mið­aða þjón­ustu í háskólum lands­ins og með því að skrifa undir eru full­orðnir að stíga eitt skref í að gera eitt­hvað og hafa áhrif í lífi barna,“ segir Þórleif.

Eru margir sam­starfs­að­ilar sem koma að vit­und­ar­vakn­ing­unni? „Já, þetta er mín fyrsta her­ferð og ég hefði aldrei trúað því hvað þetta er mikil vinna og hvað það eru margir sem vinna á bak við eina vit­und­ar­vakn­ingu sem stendur í viku. Málefnið er gott svo það eru margir til­búnir að leggja hönd á plóg og langar okkur að koma þökkum til Írisar Bjargar og Dóru Haralds sem eru okkar konur á bak við tjöldin í kvik­mynda­teymi okkar, þá sér­stak­lega Ástu Jónínu Arn­ar­dóttur og Signýar Rósar Ólafs­dóttur og til allra sem léku í mynd­band­inu. Svo eru mörg fyr­ir­tæki á bak við okkur og viljum við þá helst nefna Alvotech, Gangverk og The Engine.“

Málefnið er gott svo það eru margir til­búnir að leggja hönd á plóg.

Hvernig gekk að fá ein­stak­linga til leggja ykkur lið í vit­und­ar­vakn­ing­unni, koma fram í mynd­band­inu?„Það gekk frá­bær­lega – for­varnir gegn kyn­ferð­is­of­beldi er þannig mál­efni að það vilja allir taka þátt í að stöðva ofbeldi gegn börnum í  sam­fé­lag­inu.“

Hefur fjöldi til­kynn­inga um kyn­ferð­is­of­beldi gegn börnum auk­ist á síð­ast­lið­inum árum? „Samkvæmt skýrslu Barna­vernd­ar­stofu hefur til­kynn­ingum til barna­vernd­ar­nefnda fækk­aði um 2,2% á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins 2018 miðað við sama tíma­bil árið á undan. Hins vegar fjölgar til­kynn­ingum um 14,9% ef miðað er við fyrstu þrjá mán­uði árs­ins 2016. Fjöldi til­kynn­inga á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins 2018 var 2.511 en 2.567 á sama tíma­bili árið á undan.“

Hefur kyn­ferð­is­of­beldi gegn börnum auk­ist eða hefur orðið vit­und­ar­vakn­ing í sam­fé­lag­inu sem gerir það að verkum að til­kynn­ingar eru fleiri í dag en áður? „Rann­sóknir styðja að almennt er til­kynn­ingum að fjölga hjá starf­stéttum sem starfa með börnum í leik- og grunn­skólum, sér­stak­lega hjá þeim sem fá við­bótar þjálfun í að þekkja merkin og vita hvernig best er að grípa til aðgerða og til­kynna grun. Við teljum að það sé mik­il­vægt að til­kynna um van­líðan hjá barni til Barna­verndar og þannig fái þau hjálp fyrr á lífs­leið­inni.“

Hvernig bregð­ist þið við ef þið fáið til­kynn­ingar inn á borð til ykkar, hvert er ferlið? „Við hlustum og leyfum fólki að segja frá, flestir eru ótta­slegnir við að hringja og til­kynna grun. En við hvetjum fólk til að taka næstu skref, hafa sam­band við Barnahús fá fleiri ráð­legg­ingar þar og hafa sam­band við Barna­vernd í sínu bæj­ar­fé­lagi.“

„Með þess­ari vit­und­ar­vakn­ingu erum við með und­ir­skrift­ar­lista þar sem við skorum á stjórn­völd að í háskólum lands­ins verði þekk­ing um áfalla­mið­aða þjón­ustu.“

Getið þið mælt hvort vit­und­ar­vakn­ingar sem þessar skili árangri? „Með þess­ari vit­und­ar­vakn­ingu erum við með und­ir­skrift­ar­lista þar sem við skorum á stjórn­völd að í háskólum lands­ins verði þekk­ing um áfalla­mið­aða þjón­ustu.  Svo erum við með annað flókn­ara kerfi sem telur  svokölluð „klikk“  á aug­lýs­ingum, heim­sóknir á heima­síð­una okkar og áhorf á mynd­bandið sem fylgir vit­und­ar­vakn­ing­unni,“ segir Þórleif og er bjart­sýn.

For­varnir skila árangri og mik­il­vægt að stuðla að for­vörnum – við berum öll ábyrgð

„Við fögnum því að fleiri taka nú þátt í að ræða og fræða full­orðna um for­varnir gegn ofbeldi á börnum. Við höfum frætt nú um 15% þjóð­ar­innar og eigum enn langt í land.  Vit­und­ar­vakn­ingin í ár, Ef þú sérð eitt­hvað, gerðu eitt­hvað, er beint að sam­fé­lag­inu öllu. Öll berum við saman ábyrgð á vel­ferð barna í kringum okkur, ekki bara okkar eigin. Að breyta hegðun sinni og kjósa að líta ekki fram hjá ofbeldi lengur þýðir hug­ar­fars­breyt­ing. Það ger­ist ekki sjálf­krafa, heldur þarf hver og einn að ákveða að hætta að vera áhorf­andi, heldur stíga skref til verndar aðilum ef þörf krefur. Þín við­brögð gætu forðað ein­hverjum frá því að það verða fyrir kyn­ferð­is­of­beldi.“

  1. Veittu því athygli að eitt­hvað er að ger­ast
  2. Túlkaðu alvar­leika atburð­ar­ins
  3. Taktu ábyrgð og veittu hjálp
  4. Ákveddu hvernig hjálp

Nánari leið­bein­ingar er að finna inn á vef www.blattafram.is

Í sam­starfi við Blátt áfram
Myndir/ Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur