Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Á eftir sumri kemur sjónvarpsveisla

Á eftir sumri kemur sjónvarpsveisla

Hefð­bundnu hausti fylgja mikil gleði­tíð­indi og frá­bær afsökun til að vera inni – glæ­nýir sjón­varps­þættir og gamlir vinir sem heilsa að nýju. Hér eru nokkrir þættir sem beðið hefur verið eftir með ákveð­inni til­hlökkun þannig að leggið þessar dag­setn-ingar á minnið, byrgið ykkur upp af snarli og sætum syndum og kveikið á sjón­varp­inu.

Animals (HBO)

Frumsýnd: 3. ágúst

Hér er á ferð þriðja ser­ían af Animals og ef þið hafið ekki kíkt á þessa þætti nú þegar þá mælum við með því að þið takið frá nokkra daga í mara­þon hámgláp. Af hverju? Jú, þessir þættir eru eitt það fers­kasta í sjón­varps­flór­unni í dag. Við erum að tala um fram­tíð­ar­sýn þar sem New York-borg er laus við mann­fólk eftir heimsendi. Eins og nafnið gefur til kynna eru dýr í aðal­hlut­verki en per­són­urnar eru margar hverjar afar skraut­legar og þó að ser­ían sé kannski ekki fyrir alla, þá er hún gjör­sam­lega ein­stök.

Disenchantment (Netflix)

Frumsýnd: 17. ágúst

Við rennum algjör­lega blint í sjó­inn með þessa þætti en það er viss gæða­stimp­ill að höf­undur The Simpsons og Futurama er mað­ur­inn á bak við Disenchantment. Það kemur ykkur þá lík­leg­ast ekki á óvart að ser­ían er teiknuð en henni hefur verið lýst sem afkvæmi The Simpsons og Game of Thrones. Þetta er algjör­lega sería fyrir full­orðna og fjallar um ævin­týri drykk­felldu prinsessunnar Bean, álfa­vin hennar Elfo og djöf­ul­inn Luci í ver­öld sem heitir Dream­land. Að sögn Matts snýst ser­ían um líf og dauða, ást og kyn­líf og hvernig á að halda áfram að hlæja í ver­öld sem er full af þján­ingu og hálf­vitum.

https://www.youtube.com/watch?v=Gp_RnJcb8Ig

The Innocents (Netflix)

Frumsýnd: 24. ágúst

Þessi nýja Netflix-sería minnir um margt á nútíma­lega Rómeó og Júlíu, nema hvað Júlía hefur þann eig­in­leika að bregða sér í hlut­verk ann­arra vera, svo­kall­aður form­breytir. Serían fjallar um kærustuparið June og Harry sem hlaup­ast á brott saman til að hefja nýtt líf. Þegar þau kom­ast að því að June er form­breytir setur það örlítið strik í reikn­ing­inn, sér­stak­lega þegar þau fá þær fregnir að hún er langt frá því að vera eini form­breytir­inn í heim­inum. Ó, já svo er líka Íslend­ingur í veiga­miklu hlut­verki. Nefni­lega hann Jóhannes Haukur Jóhann­es­son. Þjóð­arstoltið, sko!

Ozark (Netflix)

Frumsýnd: 31. ágúst

Sería eitt af Ozark, sem frum­sýnd var í fyrra, var einn af óvænt­ustu smellum síð­asta árs og hélt áhorf­endum límdum við skjá­inn hverja ein­ustu mín­útu. Nú er önnur þátta­röð vænt­an­leg og í henni þarf Marty, sem leik­inn er af Arrested Develop­ment-undr­inu Jason Bateman, og fjöl­skylda hans að þvo miklu meira af pen­ingum og spreyta sig í að reka spila­víti. Jason hefur látið hafa eftir sér í við­tölum að ser­ían verði enn spennu­þrungn­ari en fyrr og að fjöl­skyldan lendi í enn fleiri flækjum en í fyrri ser­í­unni. Er það bara hægt?

https://www.youtube.com/watch?v=0vHziRrCYqA

Kidding (Showtime)

Frumsýnd: 9. sept­em­ber

Nú þurfið þið sko ræki­lega að merkja dag­setn­ing­una því sjálfur Jim Carrey snýr aftur í sjón­varpið sem Jeff, einnig þekktur sem Mr. Pickles. Lífið leikur við Mr. Pickels sem er goð­sögn í barna­sjón­varpi vest­an­hafs og mold­ríkur í þokka­bót. En það kemur aldeilis babb í bát­inn þegar fjöl­skyldan hans splundr­ast og hann reynir sitt besta til að koma henni aftur saman á mjög ljúfsáran og kómískan hátt. Ef þið eruð ekki sann­færð þá er ráð að henda því inn í jöfn­una að Jim Carrey vinnur hér á nýjan leik með leik­stjór­anum Michel Gondry, en þeir unnu saman í Ósk­arsverð­launa­mynd­inni Eternal Sunshine of the Spotless Mind. Rétt’upp hönd sem er spenntur.

Shameless (Showtime)

Frumsýnd: 9. sept­em­ber

Frábærar fréttir fyrir aðdá­endur banda­rísku Shamel­ess-þátt­anna: Sería 9 er alveg að fara að byrja. Slæmu frétt­irnar fyrir þá sem hafa aldrei komið sér í það að horfa á Shamel­ess: Sería 9 er alveg að fara að byrja. Og nei, það er ekki hægt að hoppa rak­leiðis inn í níundu þátta­röð af þessum epísku þáttum. Nú þarf fólk að girða sig í brók, taka sér viku frí frá vinnu og hámglápa eða eyða öllum frí­stundum í að kynn­ast hinni dæma­lausu Gallag­her-fjöl­skyldu. Fyrir okkur hin sem höfum sam­visku­sam­lega grátið og hlegið með fjöl­skyld­unni – gleði­legt Shamel­ess.

https://www.youtube.com/watch?v=Xyus5REdmLI

Maniac (Netflix)

Frumsýnd: 21. sept­em­ber

Cary Fukunaga, mað­ur­inn á bak við fyrstu ser­í­una af True Detective og nýja þátt­inn á TNT, The Alienist, leik­stýrir hér Jonah Hill og Emmu Stone í tíu þátta seríu sem byggð er á sam­nefndri norskri þátta­röð sem sló í gegn árið 2014. Jonah og Emma leika tvo geð­sjúk­linga á hæli sem hafa búið sér til mjög lit­ríkan ævin­týra­heim sem er eins konar athvarf fyrir þau. Fátt annað er vitað um ser­í­una, en auka­leik­ar­arnir eru ekk­ert slor heldur – til dæmis Justin Theroux og Sally Field.

This Is Us (NBC)

Frumsýnd: 25. sept­em­ber

Jæja, takið fram vasa­klút­ana, jafn­vel nokkur hand­klæði, því þriðja sería af þætt­inum sem spilar á allan til­finn­inga­skal­ann snýr aftur. Við fáum meira að vita um upp­vöxt Jack og hvernig hann varð að þeim manni sem hann var þegar hann full­orðn­að­ist, skyggn­umst betur inn í sam­band hans og Rebeccu, fáum svör við ýmsum spurn­ingum um fjöl­skyldu Toby og hágrenjum yfir einni harm­sögu eða tveimur. Svo margar spurn­ingar brenna á vörum okkar eftir loka­þátt­inn í seríu tvö að við getum bara ekki beðið.

House of Cards (Netflix)

Frumsýnd: 2. nóv­em­ber

Jæja, þá er komið að því. Síðasta ser­ían af House of Cards. Og eng­inn Kevin Spacey þar sem hann var rek­inn með skottið á milli lapp­anna eftir að fjöl­margir menn sök­uðu hann um kyn­ferð­is­lega áreitni. Nú er það leik­konan Robin Wright, sem leikið hefur eig­in­konu Kevins í þátt­unum, hana Claire, sem sest í for­seta­stól­inn og hafa fram­leið­endur þátt­anna notað kassa­merkið #myturn, eða #komiðaðmér, til að kynna ser­í­una. En það er margt fleira sem gæti líka komið á óvart í þátt­unum. Verður Doug Stamper loks­ins hent í stein­inn og nær Tom Hammerschmidt á end­anum að kom­ast að sann­leik­anum um morðið á Zoe Barnes?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta