Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Þetta gefur mér meiri tíma með konunni og börnum og það er það sem ég vil“

„Þetta gefur mér meiri tíma með konunni og börnum og það er það sem ég vil“
||||

„Það má aldrei segja nákvæm­lega hvað þetta er og fyrir hvern fyrr en þeir eru búnir að henda út frétta­til­kynn­ingu, sem þeir eru semsé ekki búnir að gera. En þetta er tíu þátta sjón­varps­s­ería sem ger­ist í geimnum fyrir eina af stóru streym­is­þjón­ust­unum í heim­inum. Sem sagt sci-fi geim­drama,“ segir leik­ar­inn Jóhannes Haukur Jóhann­es­son.

Hann hefur verið í Höfða­borg í Suður-Afríku síð­ustu sex vikur við tökur á erlendri sjón­varps­s­eríu og verður þar í þrjár vikur til við­bótar. Hann segir ferlið hingað til hafa verið ljúft og að þægi­legt sé að vinna við ser­í­una, ef svo má segja, þar sem hún er öll tekin upp í mynd­veri.

Jóhannes fékk fjöl­skyldu sína í heim­sókn til Höfða­borgar fyrir stuttu.

„Af því að ser­ían ger­ist í geimnum er allt tekið upp í mynd­veri, þannig að þetta er eins þægi­legt og kvik­mynda­gerð getur orðið. Það er nú oftar en ekki þannig að maður þarf að díla við alls kyns töku­staði þar sem veður, fjar­lægðir og því um líkt er alltaf að breyt­ast. En hér fer ég alltaf á nákvæm­lega sama stað­inn og ef það skyldi rigna, sem ger­ist sjaldan, skiptir það engu máli því við erum inni í hljóð­ein­angr­uðu mynd­veri. Þannig að þetta er ansi gott, þó að það sé auð­vitað langt að fara hingað. Það er ekki eins og ég eigi heima hérna hinum megin við hornið,“ segir Jóhannes sposkur á svip.

Sjón­varps­þætt­irnir eru ólíkir öðru sem Jóhannes hefur tekið sér fyrir hendur en hann hefur leikið meira í erlendum verk­efnum en inn­lendum síð­ustu árin. Meðal þess sem hann hefur leikið í eru sjón­varps­þætt­irnir A.D. The Bible Continues og Game of Thrones og kvik­myndin Atomic Blonde. Þá lauk hann nýverið við tökur á sjón­varps­þátt­unum The Innocents fyrir Netflix.

„Fjöl­breytni er eitt­hvað sem maður tekur fagn­andi í þessum bransa. Mér finnst ég alltaf vera eins og fiskur á þurru landi í hverju verk­efni sem ég byrja í, sér­stak­lega í þessum erlendu verk­efnum. Þau eru svo ólík. Á undan geim­dramanu var ég að leika í tveimur bíó­myndum; önnur ger­ist um borð í skipi og hin er 19. aldar vestri. Þetta þrennt er allt mjög, mjög ólíkt hvað öðru. Ég vil forð­ast að gera hluti sem virka eins fyrir mér en svo nátt­úr­lega ræð ég því ekk­ert sjálfur hvaða tæki­færi mér bjóð­ast. Ég er alla­vega þakk­látur fyrir að fá svo fjöl­breytt verk­efni í hend­urnar,“ segir þessi fjöl­hæfi leik­ari.

Fjölskyldutíminn skiptir mestu máli

Jóhannes á þrjú börn með eig­in­konu sinni, Rósu Björk Sveins­dóttur. Þau heim­sóttu hann nýverið til Höfða­borgar og eyddi fjöl­skyldan saman þremur vikum, en fjöl­skyldu­tím­inn skiptir Jóhannes öllu máli.

Jóhannes og Rósa styðja hvort annað í gegnum þykkt og þunnt.

„Ég tek aldrei ákvarð­anir um verk­efni án þess að skoða hvaða áhrif þau hafa á minn tíma með fjöl­skyld­unni. Hann skiptir mig mestu máli. Ef ég horfi á síð­ast­liðin þrjú ár hef ég verið að jafn­aði þriðj­ung af árinu í útlöndum og tvo þriðju heima. Þessa tvo þriðju hluta er ég nán­ast bara í fríi. Þegar ég skoð­aði þetta verk­efni fannst mér of mikið að vera níu vikur frá fjöl­skyld­unni en þegar ég skoð­aði þetta með kon­unni sagði hún mér að hana hefði alltaf langað til að fara til Höfða­borgar. Þannig að við höfðum þetta þannig að ég var einn hér í þrjár vikur, síðan kom konan með börnin og var hjá mér í þrjár vikur og svo er ég einn í þrjár vikur í rest­ina. Þannig að í raun er ég bara í þrjár vikur í burtu sitt­hvoru megin við fríið með þeim. Svo verð ég í fríi í dágóðan tíma eftir að ég kem heim. Ég leyfi þessu ekki að taka of stóran bita af fjöl­skyldu­líf­inu. Konan hefur reyndar heim­sótt mig með börnin í öll erlendu verk­efnin sem ég hef tekið mér fyrir hendur. Hún hefur komið til Ung­verja­lands, Marokkó, Vancouver í Kanada og til Bret­lands, sem er rosa­lega gaman og mikið ævin­týri fyrir alla,“ segir Jóhannes, en tökuplanið var fjöl­skyld­unni hlið­hollt í nýlegri heim­sókn til Höfða­borgar.

Það var ýmis­legt brallað þegar fjöl­skyldan átti frí­tíma saman í Suður-Afríku.

„Það rað­að­ist þannig að þessar þrjár vikur sem þau voru hér þá held ég að ég hafi unnið í fimm daga sam­tals, sem var æðis­legt. Þrír af þessum fimm dögum voru hálfir dagar þannig að það var eins og ég hefði hannað þetta sjálfur sem var ofboðs­lega gott.“

Betur borgað en á Íslandi

Jóhannes kann vel við að ferð­ast um heim­inn á vit nýrra og krefj­andi verk­efna, eins og hann hefur gert nán­ast ein­göngu síð­ast­liðin fjögur ár.

„Mér finnst þetta algjör for­rétt­indi. Ég fæ að heim­sækja staði í heim­inum sem ég hef aldrei komið til áður. Ég finn líka hvað þetta gefur mér mik­inn frí­tíma. Ég hef miklu meiri frí­tíma núna en nokkurn tíma þegar ég var að vinna á Íslandi. Þetta tekur ekki yfir allan minn tíma á árinu og er tölu­vert betur borgað en að vera leik­ari á Íslandi. Þetta gefur mér meiri tíma með kon­unni og börnum og það er það sem ég vil. Ég er þakk­látur fyrir þessar aðstæður sem ég er í núna og vil endi­lega halda þessu áfram,“ segir Jóhannes. Nánasta fram­tíð er óráðin þegar kemur að verk­efnum.

„Akkúrat núna er bara frí sem tekur við eftir tökur í Höfða­borg. Ég vil helst vera í fríi þangað til í haust. Netflix-ser­ían The Innocents verður frum­sýnd í júlí og ef ákveðið verður að gera aðra seríu er ég samn­ings­bund­inn að leika í henni. Þá fer ég aftur í tökur í sept­em­ber eða októ­ber, að því gefnu að verði gerð önnur sería sem ég veit ekki fyrr en í ágúst. Mögulega leik ég í skand­in­av­ískri bíó­mynd í ágúst en það er allt á samn­ings­stigi og ekk­ert ákveðið. En það væri gaman,“ segir leik­ar­inn.

Hvar er fastráðningin í Þjóðleikhúsinu?

En á hann eftir að upp­fylla ein­hverja drauma á ferl­inum?

„Ég er alla­vega kom­inn á ákveð­inn stað sem mig óraði ekki fyrir að ég myndi kom­ast á. Ég hef alltaf tekið eitt skref fram á við en aldrei horft á ein­hvern enda­punkt. Þegar ég var í leik­list­ar­skól­anum hugs­aði ég aldrei að ég ætl­aði að leika í erlendum sjón­varps­þáttum og bíó­myndum. Nei, ég hugs­aði: Ég ætla að verða fast­ráð­inn leik­ari í Þjóð­leik­hús­inu. Það fyrir mér var ákveð­inn staður til að kom­ast á. Svo þegar ég fékk fast­ráðn­ingu lang­aði mig að leika í íslenskum kvik­myndum. Eftir að ég lék í Svartur á leik fékk ég erlendan umboðs­mann og þá var allt í einu komið inn í mynd­ina að leika í erlendum bíó­myndum,“ segir Jóhannes og bætir við að hann standi á hálf­gerðum kross­götum.

Stund á milli stríða hjá Jóhann­esi.

„Ég hef verið að hugsa þetta und­an­farið: Hvar er fast­ráðn­ingin í Þjóð­leik­hús­inu núna? Hvert vil ég kom­ast. Ég hrein­lega veit það ekki. Það er hættu­legt að vera of sáttur við hvar maður er og maður þarf að stefna að ein­hverju. Ein hugsun sem hefur læðst að mér er að kannski sé næsta skref fyrir mig að fram­leiða eitt­hvað sjálfur. Að segja ein­hverja sögu sem mig langar til að segja. En ég veit ekki hvaða saga það er.“

Myndir / Úr einka­safni

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við