Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Allt sem við vitum um seríu 3 af This Is Us

Allt sem við vitum um seríu 3 af This Is Us
|||

Þriðja þátta­röðin af banda­rísku þátt­unum This Is Us verður frum­sýnd á NBC vestan hafs þann 25. sept­em­ber næst­kom­andi. Ser­í­unnar er beðið með mik­illi eft­ir­vænt­ingu enda end­aði önnur þátta­röð á ýmsum spurn­ingum sem enn er ósvarað.

Ýmislegt hefur verið gefið upp um þessa þriðju þátta­röð, og til að magna upp spenn­ing­inn fyrir henni ákváðum við að kíkja á það sem við vitum um hana.

Átján þættir líkt og fyrr

Fyrsti þátt­ur­inn í þriðju seríu á að ger­ast um það bil einum mán­uði eftir afmæli Jacks og þriggja ára afmælis þrí­bu­r­anna, Kevin, Kate og Randall. Þætt­irnir í þriðju seríu verða átján, líkt og í fyrri ser­íum.

Tökur hafnar

Fram­leiðsla þriðju seríu hófst nú í júní, en hér fyrir neðan má sjá mynd af Instagram þar sem leik­konan Mandy Moore, sem leikur Rebeccu, fer í gervi hinnar gömlu Rebeccu.

Uppvöxtur Jacks

Fleiri end­ur­lit munu ein­kenna ser­í­una og verður sjónum sér­stak­lega beint að upp­vexti og ævi Jacks. Aðdá­endur eiga eftir að sjá meira af ungum Jack í her­klæðum er hann berst í Víetnam.

„Við eigum pott­þétt eftir að sjá Jack í Víetnam. Við ætlum að skoða líf Jacks á þrí­tugs­aldr­inum og hvað gerði hann að þeim manni sem við þekkjum,“ sagði leik­ar­inn Milo Ventimiglia, sem leikur Jack, í sam­tali við tíma­ritið People.

Tilhugalífið rannsakað

Þá mun einnig vera lögð áhersla á sam­band Jacks og Rebeccu.

„Ég veit að það er tíma­bil sem ég og Mandy höfum gaman að að leika okkur með,“ sagði Milo í sam­tali við Enterta­in­ment Weekly í maí. „Það væri gaman að sjá hvernig þau kynnt­ust og hvað gerð­ist eftir fyrstu kynnin.“

Beth er ekki dáin

Á lokamín­út­unum í seríu tvö sáum við fram­tíðar Randall segja við fram­tíðar Tess að það væri kom­inn tími til að hitta „hana“. Aðdá­endur héldu að um væri að ræða Beth, móður Tess og systur hennar Annie, og höfðu áhyggjur af því að þetta þýddi að hún væri dáin, en svo er ekki. Að sögn Susan Kelechi Watson, leikkon­unnar sem túlkar Beth, stendur ekki til að Beth deyi í nán­ustu fram­tíð. Hún fékk það stað­fest frá Dan Fogelman, höf­undi þátt­anna.

„Það er æðis­legt. Það kom mér á óvart og ég er auð­vitað þakk­lát fyrir það,“ sagði Susan í sam­tali við Deadline fyrr í þessum mán­uði. Fyrr­nefndur Dan hefur látið hafa eftir sér að áhorf­endur muni sjá meira af bak­sögu Beth, eitt­hvað sem lítið hefur verið fjallað um.

Hver er dularfulla konan?

Þessi dul­ar­fulla kona er því ekki Beth og vilja aðstand­endur þátt­anna ekki gefa upp hver hún er.

„Ég veit hvaða mann­eskju fram­tíðar Randall er að tala um en Fogelman myndi höggva af mér stóru tána ef ég segði hver hún væri,“ sagði Sterling K. Brown, sem leikur Randall, í sam­tali við Enterta­in­ment Weekly. „En ég get sagt ykkur að hún er lík­lega ekki sú sem þið haldið,“ bætti hann við. Leik­konan Chrissy Metz, sem leikur Kate, bætti við að þessi hlið­ar­saga hefði ekki góðan endi.

„Þetta er ekki gott. Þetta er mjög átak­an­legt.“

Meira af fjölskyldu Tobys

Aðdá­endur munu sjá meira af fjöl­skyldu Tobys, eig­in­manns Kate. Við hittum for­eldra hans í loka­þætti seríu tvö en fengum lítið að vita um dul­ar­fulla bróð­ur­inn sem komst ekki í steggj­un­ina hans. Fram­leið­and­inn Elizabeth Berger sagði í sam­tali við Enterta­in­ment Weekly að við myndum sjá meira af fjöl­skyldu Tobys í nýju þátta­röð­inni.

„Er við fáum betur að kynn­ast Toby í seríu þrjú þá munum við pott­þétt kanna sam­band hans við fjöl­skyldu sína á ítar­legri hátt.“

Endirinn ákveðinn

Dan Fogelman sagði á við­burði í maí á þessu ári að hann viti hvernig heild­ar­saga This Is Us endar. Ekki nóg með það, það er nú þegar búið að taka upp nokkur af loka­at­rið­unum.

„Við erum komin nokkuð langt á veg. Hand­rits­höf­undar okkar og ég erum komin að enda­lok­unum. Við vitum hvernig þetta endar og við höfum skýra leið fyrir hverja þátta­röð. Við höfum alltaf haft plan. Við vildum ekki fest­ast á miðri leið,“ sagði hann í sam­tali við Deadline.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta