Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Aukinn árangur og velgengni í vinnu

Sex góð ráð til þess að líða betur og ná lengra í starfi.

Aukinn árangur og velgengni í vinnu

Flest viljum við ná ein­hverri vel­gengni í því starfi sem við höfum valið okkur. Við verjum jú bróð­ur­part­inum af líf­inu í vinn­unni og því skiptir máli að við finnum að við séum að ná árangri. Ýmislegt í okkar hvers­dags­legu rútínu hefur áhrif á það hvernig við vinnum vinn­una okkar og þar með hversu mik­illi vel­gengni við njótum. Hér eru sex góð ráð til þess að líða betur og ná lengra í starfi.

Oftar en ekki vinnur fólk saman í hóp þar sem ein­stak­lingar bæta hverjir aðra upp þannig að það skiptir ekki máli þótt þú sért ekki góð/ur í öllu – svo lengi sem þú ert mjög góð/ur í sumu.

1. Ein­beittu þér að styrk­leikum, ekki veik­leikum. Stundum eigum við það til að eyða of miklum tíma í að bæta okkur í því sem við erum ekki góð í að eðl­is­fari. Það getur verið gáfu­legra að bæta styrk­leika þína enn frekar. Oftar en ekki vinnur fólk saman í hóp þar sem ein­stak­lingar bæta hverjir aðra upp þannig að það skiptir ekki máli þótt þú sért ekki góð/ur í öllu – svo lengi sem þú ert mjög góð/ur í sumu.

2. Hagaðu vinnu þinni eins og þér þykir best. Það sem hentar einum þarf ekki að henta öllum öðrum starfs­mönnum fyr­ir­tækis. Und­an­farin ár hafa mörg fyr­ir­tæki inn­leitt opin rými en sumum þykir betra að vinna bak við luktar dyr, alla­vega í ákveðnum verk­efnum. Oftast er hægt að finna lausn á þessum vanda til dæmis með því að nota fund­ar­her­bergi þegar þau eru laus eða óska eftir því að vinna heima. Einnig geta hljóð­ein­angr­andi heyrna­tól komið að góðum notum.

3. Hafðu hemil á skap­inu þínu. Viðhorf þitt hefur ekki aðeins áhrif á líðan og afrakstur þinn í vinn­unni heldur einnig á sam­starfs­fé­laga þína. Þess vegna ætt­irðu að reyna eftir bestu getu að hafa jákvæðni að leið­ar­ljósi en rann­sóknir hafa sýnt að með því að hugsa jákvætt verðum við ósjálfrátt jákvæð­ari gagn­vart vinn­unni og jákvæðir ein­stak­lingar áorka meira.

Veldu holl­ari mat. Þegar öllu er á botn­inn hvolft er fæðan elds­neyti lík­am­ans og gæði hennar geta haft mikil áhrif á okkur. Ef þú veist að þú munt ekki hafa tíma til að ná þér í hádeg­is­mat reyndu að hafa með þér nesti svo þú sleppir ekki mál­tíðum.

4. Veldu holl­ari mat. Þegar öllu er á botn­inn hvolft er fæðan elds­neyti lík­am­ans og gæði hennar geta haft mikil áhrif á okkur. Ef þú veist að þú munt ekki hafa tíma til að ná þér í hádeg­is­mat reyndu að hafa með þér nesti svo þú sleppir ekki mál­tíðum. Forðastu sykur líka eftir bestu getu því hann getur valdið blóð­syk­ur­s­hruni og með­fylgj­andi orku­leysi.

5. Láttu gott af þér leiða. Þó að það sé mik­il­vægt að hugsa um sjálfan sig þá getur það aukið vellíðan að gera eitt­hvað gott fyrir aðra, hvort sem það er að hella upp á kaffi, hjálpa með verk­efni eða bjóða ein­hverjum far heim. Þetta eykur liðs­heild­ina og þýðir það að vinnu­fé­lagar þínir eru mun lík­legri til að koma þér til hjálpar þegar þú þarft á því að halda.

6. Ekki hugsa um það sem er liðið. Þegar við eigum slæman dag í vinn­unni hættir okkur til að taka þær til­finn­ingar með okkur heim og end­ur­hugsa allt sem við gerðum og hvernig við hefðum getað gert betur. Með þessu erum við að við­halda streit­unni og öllum fylgi­fiskum hennar þannig að við náum ekki að hvíl­ast almenni­lega. Hafðu þann vana á að fara einu sinni yfir dag­inn að honum loknum og segðu svo skilið við hann.

Texti / Hildur Frið­riks­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu