Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Aron Hannes og Dagur sigurstranglegastir

Aron Hannes og Dagur sigurstranglegastir

Seinni unda­keppni Söngvakeppn­innar fer fram í dag, laug­ar­dag­inn 17. febr­úar. Þar keppa sex lög um sæti í und­an­úr­slit­unum 3. mars, þar sem kemur í ljós hvaða lag fer fyrir Íslands hönd í Eurovision í Portúgal í maí.

Líkt og með fyrri und­ankeppn­ina síð­asta laug­ar­dag, fengum við Eurovision-sér­fræð­ing­ana Flosa Jón Ófeigs­son og Kristínu Krist­jáns­dóttur til að spá í spilin um hverjir kom­ast áfram í und­an­úr­slit á laug­ar­dag­inn. Þau voru nokkuð sann­spá síð­ast og spáðu því að Fókus hóp­ur­inn og Heim­il­is­tónar kæmust upp úr und­ankeppn­inni.

Sjarmatröll sem á ekki eftir að klikka

Golddig­ger – Aron Hannes

Flosi: „Þetta er klár­lega fjörug­asta lagið í keppn­inni í ár finnst mér. Mér finnst þetta vera mest „current“ lagið í ár. Ég gjör­sam­lega féll fyrir Aroni Hannesi í fyrra. Hann er alveg búinn að sanna það að hann er pott­þéttur flytj­andi í beinni útsend­ingu, þannig að hann á ekki eftir að klikka. Hann er líka orð­inn betri í að nota mynda­vél­ina. Hann er til­bú­inn í þetta. Þetta er lagið sem ég held að flestir í keppn­inni séu að bíða eftir að sjá af því að þeir halda að þetta sé atriðið sem þeir eru að fara að keppa við. Svo lengi sem konseptið virkar í atrið­inu þá held ég að hann eigi eftir að fara í alla leið í ein­vígið.“

Kristín: „Þetta er bara fín­asta lag, með því skásta í ár. Það er húkkur í þessu og pínu djamm. Einn írskur vinur minn sagði að þetta minnti á fram­lag Belgíu árið 2016 en svo er líka Bruno Mars-fílíngur í þessu. Ég er nokkuð örugg með að hann fari í úrslitin. Aron er rosa sjar­matröll.“

„Hún grætir mig eiginlega í hvert skipti sem hún syngur“

Óskin mín – Rakel Páls­dóttir

Flosi: „Rakel mín er búin að vera í upp­á­haldi síðan við tókum þátt saman í X Factor fyrir löngu, löngu síðan. Hún grætir mig eig­in­lega í hvert skipti sem hún syngur svona fal­lega ball­öðu. Það er engin rödd sem er svona hug­ljúf og ein­læg í keppn­inni í ár. Hún syngur og segir sög­una bara með því að opna munn­inn á sér. Ég held að þetta sé svarti pét­urinn í þessum riðli.“

Kristín: „Þetta er rosa sætt lag og mikil til­finn­ing í því. Ég held að þetta verði engin svaka­leg spreng­ing en það þarf alltaf að vera eitt svona lag. Ég held að hún fari ekki áfram. Hún á örugg­lega eftir að heilla hell­ing af fólki enda hörku­söng­kona. En það er ekki alveg nógu mik­ill húkkur í lag­inu.“

Stefanía og diskókúlurnar

Svaka stuð – SLAY

Flosi: „Þær Stefanía, Agnes og Regina eru æðis­legar. Þær munu negla þetta. Stefanía er einn besti söngv­ari sem er að per­forma núna. Hún er með svaka­lega og fal­lega rödd og þær Agnes og Regina eru diskó­kúl­urnar í kringum hana. Það er rosa­lega gaman að fylgj­ast með þeim. Lagið sjálft grípur mig ekki en lagið þarf ekki alltaf að vera gott til að fara áfram. Ef hún fer áfram er það af því að hún er frá­bær flytj­andi. Lagið greip mig ekki við fyrstu hlustun en það er að vinna á. Ég fer alveg í svaka stuð þegar ég hlusta á það.“

Kristín: „Mér finnst þetta svo­lítið skemmti­legt. Ég get alveg dansað með Breezer við þetta lag. Þetta er bara ótrú­lega hresst, ekk­ert að þessu. Ég hugsa að það eigi séns ef þær eigna sér sviðið eins og eng­inn sé morg­un­dag­ur­inn. Þær eru voða­lega hressar. Þetta lag býður uppá attitjúd og Stefanía hefur svo mikið af því. Ég vil alveg sjá þær áfram.“

Danska uppskriftin fer ekki áfram

Brosa – Gyða Margrét Krist­jáns­dóttir og Þórir Geir Guð­munds­son

Flosi: „Þetta er ofboðs­lega hug­ljúft og skemmti­legt lag. Þetta er danska upp­skriftin af Eurovision lagi; gítar, úti­leiga og góður fílíngur. Ég veit ekki hvort þjóðin mun fíla það eða ekki. Ég verð ekk­ert fúll ef það fer áfram, en þetta eru ungir krakkar sem eru að fara að syngja og verður að koma í ljós hvort þau í raun og veru höndla þessa pressu sem er í þessar þrjár mín­útur. Þetta veltur allt á flutn­ingnum þeirra. Það þarf bara eitt feil og þá missir fólk áhug­ann. Eins og er, er ég meira á því að það kom­ist ekki áfram.“

Kristín: „Þau eru voða krútt­leg. Þetta stendur og fellur með flutn­ingnum en ég held að þau kom­ist ekki áfram.“

Dagur er algjör þruma

Í stormi – Dagur Sig­urðs­son

Flosi: „Þetta er atriði sem ég er mjög spenntur að sjá vegna þess að hann veit ekk­ert hvað hann er kom­inn í. Hann veit ekki hvað Eurovision búbblan er. Það er það skemmti­lega við hann. Þarna munum við ekki hafa áhyggjur af flutn­ingi og ég er aðal­lega spenntur að sjá hvort atriðið í heild gefur manni gæsa­húð eins og röddin hans. Laga­höf­und­ur­inn Júlí Heiðar er líka algjör snill­ingur og okkar von­ar­stjarna. Hann veit alveg hvað hann er að gera. Ef að þeir halda rétt á spil­unum þá er þetta lag sem gæti farið alla leið til Portúgal. Það eina sem getur komið í veg fyrir það er að það er annað lag komið í úrslit með svipað elem­ent; strákur á sviði sem syngur fal­lega. Þessi tvö atriði gætu tekið frá hvort öðru. En það er gaman hvað Dagur er þakk­látur. Hann er með nákvæm­lega sama þakk­læti og Ari. Það er gaman að fylgj­ast með þeim og þeir eru ekki með neina dívu­stælar. Þeir eru mjög auð­mjúkir og ein­lægir.“

Kristín: „Hann er æðis­legur þessi strákur. Mér finnst þetta lag svo­lítið flott, það vann svo­lítið á. Hann sjálfur er svo mikil þruma. Úr því Ari fór áfram út á sig sjálfan og rödd­ina þá er Dagur að fara að fljúga áfram. Það er eitt­hvað að ef hann fer ekki áfram. Hann kann þetta. Hann er ekki að standa uppá sviði í fyrsta sinn heldur hefur hann troðið upp margoft út um allar trissur. Hann veit nákvæm­lega hvað hann er að gera og þetta er bara enn eitt giggið.“

„Autotune er besti vinur þessara krakka“

Hér með þér – Egill Ploder Ottósson og Sonja Valdin

Flosi: „Nú er ég maður sem er mjög gagn­rýn­inn á raddir. Ef fólk getur ekki sungið, þá á það ekki að vera í svona keppni. Egill og Sonja eru frá­bærir skemmti­kraftar. Lagið per se er ekk­ert slæmt, þó ég fíli eig­in­lega öll lögin betur sem þau hafa gefið út. Mér finnst bara hræði­legt að hlusta á þau. Vin­sæld­ar­lega séð ætti þetta að fljúga áfram. Þau eiga svaka­legan aðdá­enda­hóp á aldr­inum 16 til 25 ára sem að þau eru að ná til. En munu þessir krakkar kjósa dúett sem er ramm­falskur? Ég bara veit það ekki. Ég vona að ég hafi rangt fyrir mér því ég vil ekki að neinn líti illa út. Ef að þú púlla flutn­ing­inn í beinni útsend­ingu gætu þau farið í und­an­úr­slit í stað­inn fyrir Rakeli. Ég verð hins vegar að segja að Egill og Sonja eru mjög vel und­ir­búin í öllum við­tölum og með mark­aðs­hlut­ann alveg á hreinu. Það gæti fleytt þeim langt.“

Kristín: „Aaa, nei. Ég er búin að heyra í þeim „live“ og autotune er besti vinur þess­ara krakka. Þau gætu halað inn stigum út af aðdá­enda­hópi Áttunnar en ég held að það sé borin von að þau kom­ist lengra. Þeirra aðdá­enda­hópur er vanur því að þau séu með svo peppuð lög og tví­ræðan texta, svo kemur þessi kjút ást­ar­óður. Þau gætu halað inn eitt­hvað af stigum en ég held að þau fari ekki alla leið.“

Eftir að hafa horft á fyrri und­ankeppn­ina eru Flosi og Kristín ekki sam­mála um hvaða lag eigi eftir að fara alla leið til Portúgal.

Flosi: „Miðað við laug­ar­dag­inn síð­asta eiga Heim­il­is­tónar eftir að taka þetta. Og ég vil nýta tæki­færið og senda mikið hrós til RÚV sem hafa gert und­ankeppn­ina alltaf stærri og stærri og flott­ari og flott­ari.“

Kristín: „Ég held að Heim­il­is­tónar séu ekki að fara alla leið. Ég væri ekki hissa á að þær fari í ein­vígið. Ég gæti trúað því að þetta yrði á milli Arons og Fókus hóps­ins, en ég ætla ekki að úti­loka neitt.“

Texti / Lilja Katrín
[email protected]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag