Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Skrýtin, skemmtileg og dálítið óhugnanleg saga“

Það er óhætt að segja að nýja barna­bókin Milli svefns og Vöku sé öðru­vísi en flestar barna­bækur. Bókin er fyrsta bók fjöl­miðla­kon­unnar Önnu Mar­grétar Björns­son og hönn­uð­ar­ins Lauf­eyjar Jóns­dóttur. Milli svefns og Vöku segir frá dul­ar­fullum hlutum sem ger­ast þegar myrkrið skellur á bókin og inni­heldur svart­hvítar teikn­ingar eftir Laufeyju.

„Skrýtin, skemmtileg og dálítið óhugnanleg saga“
||
Milli svefns og Vöku er mynd­skreytt með fal­legum teikn­ingum eftir Laufeyju.

Spurð út í hvernig hug­myndin að bók­inni kvikn­aði segir Anna: „Ég var að segja Laufeyju frá því hvernig hún Ása Georgía, yngri dóttir mín sem var fjög­urra ára þá, sak­aði svo­kall­aðan „leynig­est” á heim­il­inu um allskyns dul­ar­fulla hluti sem hún sjálf kann­að­ist alls ekki við að hafa gert. Við höfðum lengi rætt það að það væri gaman að gera barna­bók saman og þarna allt í einu small hug­myndin.  Við not­uðum hug­mynd­ina um leynig­est­inn hennar Ásu, hvernig hún lýsti honum í útliti og gjörðum og unnum út frá því. Úr varð Milli svefns og Vöku, skrýtin, skemmti­leg og dálítið óhugn­an­leg saga um myrk­fælna stúlku og sam­band hennar við dul­ar­fulla veru sem býr á heim­ili hennar en eng­inn annar sér.“

Mér fannst skemmti­legt að búa til sögu sem fjallar um myrk­fælni, sem er eitt­hvað sem við flest könn­umst við held ég.

Að sögn Önnu er bókin skrifuð fyrir börn á aldr­inum 6-9 ára en hún tekur fram að fólk á öllum aldri ætti að hafa gaman af henni. „Við vonum að for­eldrar hafi gaman af að lesa hana og skoða en mynd­málið er gíf­ur­lega mik­il­vægt í bók­inni og mynd­irnar hennar Lauf­eyjar algjör lista­verk.“

Anna kveðst alltaf hafa verið heilluð af myrkr­inu og dul­ar­fullum sögum. „Mér fannst skemmti­legt að búa til sögu sem fjallar um myrk­fælni, sem er eitt­hvað sem við flest könn­umst við held ég. Það er svo oft gert lítið úr myrk­fælni barna, þeim er sagt bara að vera ekki hrædd án nokk­urra útskýr­inga. Það voru svo líka mörkin á milli draums og veru­leika sem ég var að spá í með sög­una, þau geta verið dálítið loðin fyrir börn og jafn­vel full­orðna.“

„Vekja vonandi upp nostalgískar tilfinningar“

Anna og Laufey lögðu mikla áherslu á að bókin hefði ein­stakt útlit og í anda gam­alla barna­bóka. „Teikn­ing­arnar eru að sjálf­sögðu frekar óhefð­bundnar miðað við það sem gengur og ger­ist í dag,“ segir Laufey. Hún bætir við: „Teikn­ing­arnar vísa, líkt og sagan, til fyrri tíma og vekja von­andi upp nostal­gískar til­finn­ingar hjá full­orðnum les­endum.“

Milli svefns og Vöku segir frá Vöku sem þarf að sigr­ast á myrk­fælni.

Laufey og Anna byrj­aði að vinna að bók­inni árið 2015. „Ég hóf að skapa per­són­urnar og mynd­heim­inn 2015 og vann að þróun þeirra þegar færi gafst. Þó maður sé oft ólmur í að klára verk­efni held ég að þessi langi tími hafi skilað sér í dýpri heim og þró­aðri stíl, en það var örlítið ljúfsárt að leggja loks niður pensil­inn og yfir­lýsa verkið til­búið.“

Laufey bendir svo á að aðal­sögu­hetjan er útsjón­ar­söm og hug­rökk stelpa og það þótti þeim Önnu mik­il­vægt. „Í bókum finna ungir les­endur sér fyr­ir­myndir, ég er t.d. mjög þakk­lát að hafa alist upp með Línu Langsokk og Ronju Ræn­ingja­dóttur. En okkur finnst staðalí­myndir og skortur á kven­per­sónum enn of áber­andi í bók­menntum, því þótti okkur mik­il­vægt að skapa barna­bók með hug­rakka stúlku í aðal­hlut­verk, sem ræður eigin örlögum og treystir á gáfur sínar og útsjón­ar­semi til þess að leysa úr vanda­málum.“

Okkur finnst staðalí­myndir og skortur á kven­per­sónum enn of áber­andi í bók­menntum, því þótti okkur mik­il­vægt að skapa barna­bók með hug­rakka stúlku í aðal­hlut­verk.

Spurðar út í hvaða við­brögð þær hafa fengið við bók­inni segir Laufey: „Fyrstu við­brögð hafa verið framar vonum. Að fá tæki­færi til þess að spjalla við börn um bók­ina hefur verið alveg magnað. Þau eru sér­stak­lega for­vitin um leynig­est­inn og veltu mörg því mikið fyrir sér hvað hann sé. Hvort hann sé krummi, hundur, maura­æta, skrímsli, draugur, strákur eða stelpa.“

Anna tekur undir það og bætir við: „Þau kann­ast við ýmis­legt í bók­inni eins og að vera pínu hrædd við að fara að sofa og að sjá fata­hrúgur breyt­ast í eitt­hvað annað í myrkr­inu…þau eru heilluð af þess­ari dul­ar­fullu veru og af þessum fal­legu myndum í bók­inni og finnst sagan skemmti­leg, fyndin og stundum „krípí“.“

Mynd / Saga Sig

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina