Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hátíðlegt heimili

Eva Sólveig Þór­is­dóttir og Jónas Einar Thorlacius búa í skemmti­legri íbúð skammt frá Digra­nes­kirkju í Kópavogi.

Hátíðlegt heimili
Dóttirin Sigurrós dáist að trénu.

Það var ein­stak­lega ljúft að mæta í jóla­inn­lit klukkan níu á föstu­dags­morgni, rok og rign­ing úti en þegar inn var komið tóku jólin á móti okkur löngu áður en þau áttu raun­veru­lega hefj­ast. Fag­ur­lega skreytt jóla­tré stóð í stof­unni og svo var búið að að leggja á hátíð­ar­borð, það vant­aði bara jólasteik­ina!

Eva Sólveig Þór­is­dóttir og Jónas Einar Thorlacius búa í þess­ari skemmti­legu íbúð sem er í litlu fjöl­býli ekki langt frá Digra­nes­kirkju í Kópavogi. Þau tóku á móti blaða­manni og ljós­mynd­ara með nýbök­uðu kaffi­brauði og alvöru­kaffi­dropum þennan hrá­slaga­lega morgun.

Sigurrós dóttir þeirra var komin í jóla­kjól­inn og naut þess að fá að vera heima og hand­fjatla alvöru­pakka sem mamma hennar var búin að setja undir jóla­skreytta tréð.

Eva lauk námi sem inn­an­hús­stílisti við Academy of Colour and Style vorið 2013 og seg­ist hafa ein­stak­lega gaman af því að dúlla við smá­at­riði og fegra í kringum sig og sína.

„Ég elska að dunda mér við að gera heim­ilið fal­legt og legg mikið upp úr því að hafa huggu­legt hjá okkur ein­fald­lega vegna þess að mér finnst það svo skemmti­legt.“

Nýtt þema á trénu um hver jól

Og hvenær ætli skvísan byrji að jóla­skreyta heim­ilið? „Ég byrja vana­lega að skreyta um miðjum des­em­ber þar sem mesti álags­tím­inn er þá í vinn­unni, nema núna! Heimilið er næstum klárt fyrir jólin í nóv­em­ber af því þið kíktuð í heim­sókn og ég get því bara dúllað mér í des­em­ber. Ég elska að dunda mér við að gera heim­ilið fal­legt og legg mikið upp úr því að hafa huggu­legt hjá okkur ein­fald­lega vegna þess að mér finnst það svo skemmti­legt.

Eva lagði á hátíð­ar­borð fyrir okkur og bjó til nafn­spjöld fyrir gest­ina sína með stimpli sem hún keypti í Tiger. Disk­arnir og glösin eru úr Garð­heimum ásamt öllu skraut­inu.

Ég fór í inn­an­hús­stílista­nám til að geta nýtt þennan áhuga minn og ég hef verið að taka að mér að aðstoða fólk við að fegra heim­ilin sín og skipu­leggja rými til hins betra heima hjá sér. Ég vinn sem stílisti í Garð­heimum og sé um útlit versl­un­ar­innar sem og útstill­ingar og upp­still­ingar upp fyrir aug­lýs­ingar. Ég er svo með síðu á Facebook sem heitir Eva-Inn­an­hús­ráð­gjöf þar sem hægt er að hafa sam­band við mig,“ útskýrir hún bros­andi.

Skreytir þú jóla­tréð alltaf eins eða aldrei eins fyrir hver jól? „Það er í raun aldrei eins, ég er yfir­leitt með ein­hvers konar þema um hver jól sem sveifl­ast svo­lítið með tíð­ar­and­anum og hvað er í tísku hverju sinni, mínimal­ískur stíll er þó alltaf ráð­andi hjá mér.“

Verslar mest erlendis

Hvernig myndir þú lýsa stílnum á heim­il­inu? „Hann er hlý­legur, við heill­umst af fal­legri hönnun og viljum frekar eiga færri og vand­að­ari hluti en að drekk­hlaða heim­ilið. Mig var til dæmis lengi búið að langa í Sindra­stól­inn og þegar ég varð þrí­tug fékk ég hann í afmæl­is­gjöf frá pabba sem gladdi mig óend­an­lega mikið.“ Og hvar kaupið þið helst hluti fyrir heim­ilið? „Maðurinn minn er flug­maður hjá Icelandair og við kaupum flest, bæði föt og hluti fyrir heim­ilið, erlendis. Við höfum keypt stærri hluti, hús­gögn þá sér­stak­lega, í versl­unum hér á landi og hansa­hill­urnar fengum við í Góða hirð­inum. Svo kíkjum við í IKEA ef okkur vantar eitt­hvað,“ segir Eva hress að lokum og við kveðjum jólafínu fjöl­skyld­una og dembum okkur út í rokið og rign­ing­una.

Pappa­pok­inn svarti á gólf­inu er úr net­verslun sem heitir mixmix.is og einnig pappa­pok­arnir í hill­unni. Hill­urnar í veggnum voru sér­smíð­aðar hjá Sérsmíði á Skemmu­vegi.

Aðalmynd: Borð­stofu­borðið er úr ILVA en stól­arnir eru keyptir í Bret­landi. Ljósið fyrir ofan borðið er úr verslun sem heitir Dwell og er í London. Í bak­grunni sjást hansa­hillur úr Góða hirð­inum og fal­legir munir sem fegra heim­ilið.

Texti / Sigríður Elín Ásmunds­dóttir
Myndir / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni