Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Ekkert hefði getað veitt mér meiri gleði og vellíðan í hjartanu“

Það er fyrir löngu orðið jóla­legt um að lit­ast í mið­borg Reykja­víkur, en neðst í Skóla­vörðu­holt­inu er þó allt með kyrrum kjörum. Þar tekur Pálmar Ragn­ars­son á móti blaða­manni með þéttu hand­taki og hlý­legu brosi. En Pálmar hefur að und­an­förnu getið sér gott orð sem fyr­ir­les­ari um sam­skipti fólks. Hann hefur einnig notið fádæma vin­sælda sem körfu­bolta­þjálf­ari fyrir yngstu kyn­slóð­ina, en í því starfi hefur hann lagt áherslu á gleði og vellíðan barn­anna.

„Ekkert hefði getað veitt mér meiri gleði og vellíðan í hjartanu“
|||

Aðspurður hvort að hann sé kom­inn í hið víð­fræga jóla­skap brosir hann út að eyrum og segir að það sé í raun óum­flýj­an­legt í hans til­viki.

„Ég tap­aði jóla­gleð­inni um tíma á ung­lings­ár­unum og það var ekki fyrr en ég var feng­inn til þess að koma með pabba mínum á jóla­ball í hlut­verki jóla­sveins þegar ég var tutt­ugu og fjög­urra ára sem þetta breytt­ist.

Ég man að ég var dauð­stress­aður og fannst þetta bæði óþægi­legt og erfitt en samt nógu gaman til að gera þetta aftur. Síðan hef ég leikið jóla­svein á hverju ein­asta ári í tíu ár og núorðið kemst ég auð­vitað ekk­ert hjá því að fara í jóla­skap, því á hverjum degi í des­em­ber syng ég jóla­lög,“ segir Pálmar og skelli­hlær.

Pálmar er ætt­aður norðan af Ströndum, alinn upp í Graf­ar­vogi og kemur úr mik­illi körfu­bolta­fjöl­skyldu, hann segir að lífið hafi alfarið snú­ist um körf­una á hans yngri árum. Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Talar daglega við ókunnuga

Pálmar er ætt­aður norðan af Ströndum, alinn upp í Graf­ar­vogi og kemur úr mik­illi körfu­bolta­fjöl­skyldu, hann segir að lífið hafi alfarið snú­ist um körf­una á hans yngri árum. „Ég var feim­inn og hlé­drægur strákur, átti mína vini en þorði ekki að tala fyrir framan fólk eða við ókunn­uga, hvað þá stelpur. Það var ekki fyrr en ég var eig­in­lega neyddur til þess að taka á þessu í Versló, þegar ég var í tímum sem hétu tján­ing. Þá þurfti ég fyrst að mæta og segja nafnið mitt fyrir framan bekk­inn og það var ótrú­lega erfitt.

Ég var með kvíða­hnút í mag­anum og lang­aði til þess að sleppa því að mæta en gerði það þó og það var erfitt. Í næsta tíma átti maður líka að segja frá áhuga­málum sínum og þannig skref fyrir skref og þetta skán­aði smám saman. Þetta var fyrsta skrefið fyrir mig í þá átt að gera eitt­hvað sem mér fannst mjög erfitt og ég er ekki viss um að ég hefði ein­hvern tím­ann tekið þessi skref sem þurfti hefði ég ekki verið neyddur til þess á þessum tíma­punkti. Núna, eftir að hafa sagt já við öllum tæki­færum sem hafa boð­ist á lífs­leið­inni, finnst mér ekki margt vera svo erfitt eða íþyngj­andi lengur.“

Pálmar segir að hann hafi á þessum árum sett sér það mark­mið að segja já og forð­ast ekki það sem hræddi hann. „Ef það er erfitt þá geri ég það. Hluti af þessu er að ég setti mér það mark­mið að tala við ókunn­uga á hverjum degi. Oft bara í röð­inni í bank­anum, á kass­anum í Bónus eða hvar sem er. Bara að spjalla án þess að vera upp­á­þrengj­andi og lang­flestir taka þessu vel, en auð­vitað verður maður að kunna sig og þekkja sín mörk. En ég held að fólk mætti gera meira af þessu frekar en að grúfa sig yfir sím­ann. Við þurfum að temja okkur að vera með fólki og innan um fólk og leggja þá sím­ana frá okkur.“

„Ef það er erfitt þá geri ég það. Hluti af þessu er að ég setti mér það mark­mið að tala við ókunn­uga á hverjum degi. Oft bara í röð­inni í bank­anum, á kass­anum í Bónus eða hvar sem er.“

Forsendan er góð samskipti

Pálmar segir að eftir að hafa verið dug­legur náms­maður í grunn­skóla hafi hann farið að slaka á og verið latur við námið í Versló. Eftir stúd­ents­prófið hafi hann svo ýmist verið að skuss­ast við nám í sál­fræði eða við­skipta­fræði og árang­ur­inn verið eftir því.

„Ég var svona á þessu: Æ, þetta redd­ast-við­horfi en það redd­að­ist auð­vitað ekki af sjálfu sér því lífið sner­ist bara um körfu­bolta og félags­líf. Eftir þrjú ár af þessu bulli skráði ég mig aftur í sál­fræði og setti mér loks­ins mark­mið. Ég ætl­aði að dúxa. Ætlaði að læra meira og vera dug­legri en allir hinir 350 sem skráðu sig. Ég var í frá­bærri stöðu til þess að leggja mig allan fram, nýtti mér bæði íþrótta­hug­ar­farið og keppn­is­skapið, mætti alla daga, um helgar, á afmæl­inu mínu, alltaf. Lærði eins og brjál­æð­ingur og sagði öllum sem ég gat að ég væri að fara að dúxa, til þess að setja press­una á mig. Svona gekk þetta í þrjú ár og held­urðu að ég hafi dúxað? Nei, en ég útskrif­að­ist og með góða ein­kunn svo ég þurfti ekki að sjá eftir neinu,“ segir Pálmar og hlær við til­hugs­un­ina.

„Mark­miðið er ein­fald­lega að standa sig vel og til þess þarf maður að leggja sig fram.“

Ég ætl­aði að dúxa. Ætlaði að læra meira og vera dug­legri en allir hinir 350 sem skráðu sig.

Pálmar lauk prófi með BS-gráðu í sál­fræði og bætti síðar við sig MA-gráðu í við­skipta­fræði. Á þessum tíma hefur hann einnig sinnt ýmsum störfum en flestir þekkja hann þó í hlut­verki körfu­bolta­þjálf­ara barna.

„Ég sneri mér að þjálfun eftir að hafa meiðst illa á hné. Mig lang­aði ekki til þess að fara að þjálfa því mér fannst óþægi­legt að þurfa að tala fyrir framan krakk­ana og hvað þá for­eld­rana. En ég lét til­leið­ast og fann fljótt hvað þetta er rosa­lega skemmti­legt og var með þennan flokk í þrjú ár. Eftir það sneri ég mér alfarið að því að þjálfa yngstu börnin og þar fór ég geta mér góðs orðs fyrir að það mynd­uð­ust góð sam­skipti innan hóps­ins. Hvað börn­unum líður vel, þau hlakka til að mæta, þau langar að leggja sig fram, og við þetta varð alveg gríð­ar­leg fjölgun á æfingum.

Þessa ánægju rek ég til þeirrar áherslu að öllum börnum líði eins og þau séu mik­il­vægur hluti af hópnum, óháð getu. Það skiptir mig engu máli hvað barnið er flinkt eða hvort það hegðar sér vel. Ég vil að hvert ein­asta barn sem mætir á æfingu finni að það skipti máli og for­senda þess séu góð sam­skipti. Ekkert annað.“

Pálmar segir að síð­ast­liðið vor hafi hann verið búinn að vinna gríð­ar­lega mikið og fundið að það væri kom­inn tími á gott frí. Hann hafi því ákveðið að halda á vit ævin­týr­anna með bak­poka á bak­inu og hélt áleiðis til Mexíkó einn síns liðs. Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Að stíga skrefið formlega

Pálmar segir að það hafi svo verið í gegnum þjálf­ara­starfið sem hann byrj­aði að halda fyr­ir­lestra. Aldrei hafi honum dottið í hug að hann ætti eftir að vinna við það í fullu starfi að halda fyr­ir­lestra á eigin vegum en nú, tveimur árum og einum 350 fyr­ir­lestrum síðar, sé það samt raunin.

„Það merki­lega er að ég hef aldrei beðið ein­hvern um að fá að halda fyr­ir­lestur en þetta byrj­aði í gegnum það að ÍSÍ hafði sam­band því þar á bæ höfðu menn frétt af minni nálgun. Þau voru að fara halda ráð­stefnu um aðferðir í íþrótta­þjálfun ung­menna og báðu mig um að koma og segja frá hvað ég er að gera með börn­unum, segja frá sam­skipt­unum við börnin. Mér fannst þetta erfið til­hugsun en ég sagði auð­vitað já út af mark­miði mínu um að taka erf­iðum áskor­unum. En mig lang­aði til þess að halda geggj­aða ræðu og slá í gegn svo ég fór að semja og æfa mig sem skil­aði sér í mjög fínni frammi­stöðu, þótt ég segi sjálfur frá.

Eftir þetta fór fleira fólk að hafa sam­band og biðja mig um að flytja þessa ræðu og í fram­hald­inu hafði Dale Carnegie sam­band og bað mig um að halda fyr­ir­lestra fyrir þeirra fólk, fyrir sína þjálf­ara, og þá fékk ég stærsta hnút­inn í mag­ann. En mér hefur lík­ast til aldrei verið eins vel tekið og af þessu fólki sem vinnur við að halda ræður. Þau kunna að taka vel á móti fólki og láta því líða vel. Eftir þetta ákvað ég að að stofna síðu á Facebook, Pálmar Ragn­ars­son fyr­ir­lestrar, og við það fór þetta á næsta stig. Er þar með orð­inn fyr­ir­les­ari að atvinnu. Ég mæli með því ef maður er með ein­hvern draum að stíga skrefið svona form­lega, því það gerir það eng­inn fyrir mann.“

Mæli með að ferðast einn

Pálmar segir að síð­ast­liðið vor hafi hann verið búinn að vinna gríð­ar­lega mikið og fundið að það væri kom­inn tími á gott frí. Hann hafi því ákveðið að halda á vit ævin­týr­anna með bak­poka á bak­inu og hélt áleiðis til Mexíkó einn síns liðs.

„Ég hafði engan tíma til þess að und­ir­búa mig eða pæla eitt­hvað í þessu, ákvað bara að fara til Mexíkó af því að mér finnst það hljóma vel og var harð­á­kveð­inn í að vera í ekki tölvu­póst­sam­bandi eða öðru slíku á meðan. Ég vissi ekk­ert hvað beið mín, keypti bara miða aðra leið og lét vaða. Það eina sem ég gerði dag­inn sem ég fór af stað var að bóka mér pláss á hosteli fyrstu þrjár næt­urnar. Þegar ég er kom­inn út, gerð­ist eitt­hvað innra með mér.

Ég hafði engan tíma til þess að und­ir­búa mig eða pæla eitt­hvað í þessu, ákvað bara að fara til Mexíkó af því að mér finnst það hljóma vel og var harð­á­kveð­inn í að vera í ekki tölvu­póst­sam­bandi eða öðru slíku á meðan.

Stressið, streitan og álagið sem var farið að segja til sín hrein­lega gufaði upp. Það kom yfir mig ein­hver innri friður sem ég hafði nán­ast ekki fundið síðan ég var ung­lingur og svo fór ég að finna hvað þetta yrði­mikið ævin­týri. Ekkert plan og eina mark­mið að kynn­ast fólki og reyna að sjá mikið af spenn­andi hlutum. Þannig ferð­að­ist ég eftir því sem hug­ur­inn bar mig hverju sinni, gisti á hostelum og kynnt­ist mörgu frá­bæru fólki. Ég get ekki mælt nóg­sam­lega mikið með því fyrir fólk að láta á það reyna að ferð­ast eitt. Það er allt annað. Margir halda að þeir verði ein­mana en ég var það aldrei. Ég var einn í tvo mán­uði en aldrei ein­mana. Þegar maður ferð­ast á milli hostela er margt fólk sem er líka eitt á ferð og það hópar sig saman, kynn­ist og gerir skemmti­lega hluti.

Ég lagði mig fram um að kynn­ast fólki frá Mexíkó. Þetta er dásam­legt fólk, lífs­glatt og skemmti­legt og það virð­ist ekki skipta það öllu máli hvað það á af hlutum eins og er hérna heima. Það eru nefni­lega ekki hlutir sem veita lífs­ham­ingju. Við Íslend­ingar eigum almennt miklu fleiri og flott­ari hluti en fólkið í Mexíkó, en ég gat ekki betur séð en að það væri jafn­vel meiri gleði og hlátur þar ef eitt­hvað er.“

Skiptir engu máli hvað ég hefði keypt

„Á sama tíma sá ég líka að þarna lifa margir við erf­iðar aðstæður og þar á meðal mörg börn. Hvert sem ég fór varð ég var við börn í slæmum aðstæðum, svöng og í slitnum fötum. Þarna sá ég himin og haf á milli þeirra aðstæðna sem við flest búum við hér á Íslandi og hvernig mörg börn hafa það í Mexíkó. Ég hugs­aði því um það að búa á Íslandi og vera í þeirri for­rétt­inda­stöðu að geta látið gott af sér leiða. Því setti ég mér það mark­mið úti í Mexíkó að gera eitt­hvað gott fyrir börnin í land­inu.

Þegar ég kom heim velti ég því fyrir mér hvort væri mik­il­væg­ara að ég keypti mér fleiri hluti, kannski nýjan og flott­ari bíl, eða að eitt­hvað af börn­unum í Mexíkó hefði það kannski örlítið betra? Og það er sama hvað ég hugs­aði þetta oft, svarið var alltaf það sama: Það er alltaf mik­il­væg­ara að bæta aðstæður barn­anna en að auka við minn lúxus. Ég vona að ég muni ná að halda þessum hugs­un­ar­hætti og láta áfram gott af mér leiða.“

Pálmar segir að eftir að hann kom heim hafi hann unnið mikið með það mark­mið að leið­ar­ljósi að geta gefið milljón krónur til hjálp­ar­starfs fyrir börn í Mexíkó. „Þegar það var komið kynnti ég mér hvernig væri best að gera þetta, bar þetta undir marga og fékk alls konar við­brögð. Sumir sögðu já, það er frá­bært, en aðrir svona reyndu að telja mér hug­hvarf, sögðu að þetta breytti engu úti í hinum stóra heimi. En auð­vitað breytir það miklu fyrir börnin sem fá að njóta þess þó svo ég sé ekki að fara að breyta öllum heim­inum.

Nið­ur­staðan varð sú að ég styrkti SOS barna­þorpin um 600.000 kr. sem fara í að kaupa þvotta­vélar, elda­vélar og rúm­dýnur handa barna­þorpi í Mexík­ó­borg.

Þannig að ég lagð­ist í smá­rann­sókn­ar­vinnu og hafði sam­band við SOS barna­þorp á Íslandi og Barna­heill. Nið­ur­staðan varð sú að ég styrkti SOS barna­þorpin um 600.000 kr. sem fara í að kaupa þvotta­vélar, elda­vélar og rúm­dýnur handa barna­þorpi í Mexík­ó­borg. Svo gef ég 400.000 kr. til Barna­heilla og það fer í upp­bygg­ingu fyrir börn og fjöl­skyldur á jarð­skjálfta­svæðum í Mexíkó.“
Pálmar staldrar við og segir að í kjöl­farið að hann kom pen­ing­unum frá sér á þennan hátt, hafi komið yfir hann góð til­finn­ing.

„Mér leið mjög vel. Það er ekk­ert sem hefði getað veitt mér meiri gleði og vellíðan í hjart­anu en þetta, það skiptir engu máli hvað ég hefði keypt mér. Engu máli. Sama hvað, þá get ég alla vega sagt við sjálfan mig að ég hafi gert eitt­hvað gagn.“

„Við megum ekki gleyma því að við erum ein þeirra þjóða sem hefur það hvað best í heim­inum og stundum eigum við kannski bara nóg og getum nýtt tæki­færið sem í því felst.“ Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Draumurinn að gera meira

„Við bræð­urnir pælum mikið í þessu, hvernig maður geti látið gott af sér leiða í heim­inum og mér finnst æðis­legt þegar fólk tekur þátt í hjálp­ar­starfi. Það er gaman að hugsa til þess hvort ein­hver þarna úti sé til­bú­inn til þess að neita sér um hluti og munað, ein­göngu í þeim til­gangi að láta gott af sér leiða fyrir aðra.

Margt fólk gefur þannig að það hafi engin áhrif á þeirra dag­lega líf. Gefur eitt­hvað sem breytir engu fyrir það, þannig að það þarf ekki að neita sér um neitt í stað­inn. Það er mjög mik­il­vægt og ég er alls ekki að gagn­rýna það, langt frá því. Auðvitað er alltaf frá­bært þegar fólk tekur þátt í hjálp­ar­starfi en ég hef mikið verið að hugsa um það hvort það sé til fólk í heim­inum sem neitar sér um jafn­vel mik­il­væga hluti til þess að geta látið gott af sér leiða fyrir aðra? Þegar ég heyri sögur af slíku fólki fæ ég alltaf mik­inn inn­blástur þótt sög­urnar séu ekki endi­lega margar. Ég er svo sann­ar­lega ekki að segja að ég hafi verið eða sé kom­inn þangað. En með þessu langar mig þó til þess að taka skref í þessa átt á sama tíma og ég vona að þetta sé hvatn­ing fyrir aðra til að taka svipuð skref.“

Aðspurður hvort að hann hafi ekki orðið var við umræðu um fátækt barna á Íslandi og jafn­vel kynnst henni af raun í sínu starfi, segir Pálmar að vissu­lega hafi hann orðið var við að börn hafi það mis­gott á Íslandi. „Hins vegar hef ég ekki upp­lifað að börn sem koma til mín í íþrótta­starf, upp­lifi skort. Að þau séu í ónýtum fötum eða svöng en þá verðum við að hafa í huga þann mögu­leika að þau börn skili sér ekki inn í íþrótt­irnar. En auð­vitað hef ég fylgst með þess­ari umræðu eins og aðrir og það er dap­ur­legt að hugsa til þess að börn á Íslandi búi við fátækt.

Ekki síst í ljósi þess að við erum klár­lega í aðstöðu til þess að koma í veg fyrir að það sé fátækt á Íslandi. En mín til­finn­ing er að þrátt fyrir að það sé fátækt á Íslandi þá er það mjög ólíkt þeirri fátækt sem mörg börn búa við úti í hinum stóra heimi. Þar sem börn eru horuð úr hungri, skó­laus í ónýtum fötum og sofa jafn­vel úti undir berum himni.“

„Áhrifin sem ég vil hafa á sam­fé­lagið er að smita út frá mér góðum sam­skiptum. Og Íslend­ingar almennt eiga í góðum sam­skiptum, það er að minnsta kosti mín til­finn­ing, að fólk hér sé að megn­inu til gott hvert við annað.“

Látum gott af okkur leiða

Pálmar hittir margt fólk í sínu starfi sem fyr­ir­les­ari og er greini­lega umhugað um vel­ferð náung­ans. Það er því ekki úr vegi að spyrja hvort að hann hafi hugsað sér að fara út í stjórn­mál í fram­tíð­inni?

„Þetta er góð pæl­ing,“ segir Pálmar og brosir. „Áhrifin sem ég vil hafa á sam­fé­lagið er að smita út frá mér góðum sam­skiptum. Og Íslend­ingar almennt eiga í góðum sam­skiptum, það er að minnsta kosti mín til­finn­ing, að fólk hér sé að megn­inu til gott hvert við annað. Ég er far­inn að nálg­ast 20.000 manns sem ég hef hitt á minni veg­ferð og ég bæði sé og finn að Íslend­ingar vilja leggja sig fram um að eiga í góðum sam­skiptum. Það væri erfitt fyrir mig að taka þátt í stjórn­málum á sama tíma og ég vil boða góð sam­skipti.

Við megum ekki gleyma því að við erum ein þeirra þjóða sem hefur það hvað best í heim­inum.

Um leið og ég væri kom­inn í stjórn­mála­flokk, alveg sama hvaða, mundi helm­ingur Íslend­inga hætta að vilja hlusta á mig. En seinna meir hef ég ýmsar skoð­anir á því hvernig best væri að gera hlut­ina og ég ætla ekk­ert að úti­loka að ég komi ein­hvern tím­ann til með að sjást í stjórn­málum. En það sem mér finnst vera númer eitt, tvö og þrjú í íslenskum stjórn­málum er að koma heið­ar­leik­anum á réttan stað. Málefni verða að vera í öðru sæti þangað til það er búið að laga heið­ar­leik­ann og traustið.“

Pálmar ítrekar að Íslend­ingar séu almennt í góðri aðstöðu til þess að láta gott af sér leiða í heim­inum. „Við megum ekki gleyma því að við erum ein þeirra þjóða sem hefur það hvað best í heim­inum og stundum eigum við kannski bara nóg og getum nýtt tæki­færið sem í því felst. Og þótt við breytum ekki öllum heim­inum, þá breytum við kannski öllu fyrir þau börn sem við getum hjálpað.

Ég hvet fólk til þess að láta gott af sér leiða. Í gegnum SOS, Heims­for­eldra, Barna­heill og fleiri hjálp­ar­stofn­anir, og núna er einmitt góður tími til þess að huga að slíku um jól og ára­mót. En svo hvet ég fólk auð­vitað líka til þess að njóta hátíð­ar­innar, fara á eins mörg jóla­böll og það mögu­lega getur. Komast í jóla­skapið og nýta tæki­færið til þess að eiga góðar stundir með vinum og fjöl­skyldu.“

Myndir / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina