Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Vatnsstríð í Skorradal

Vatnsstríð í Skorradal
DV11944300907 Skorra­dalur

Danskir land­eig­endur í Skorra­dals­hreppi vilja loka fyrir kalt vatn til sum­ar­húsa­lóða við jörð þeirra. Jörðina keyptu þeir á nauð­ung­ar­sölu af Lands­bank­anum. Félag sum­ar­bú­staða­eig­enda stendur í mála­ferlum við Danina og er málið á leið til Lands­réttar.

Hér­aðs­dómur Vest­ur­lands synj­aði fyrir skemmstu kröfu Ingólfs Garð­ars­sonar, sum­ar­bú­stað­ar­eig­anda í landi Ind­riða­staða í Skorra­dals­hreppi, um stað­fest­ingu lög­banns sem sýslu­mað­ur­inn á Vest­ur­landi lagði við því að land­eig­endur loki fyrir rennsli neyslu­vatns úr vatns­veitu í landi jarð­ar­innar.

Land­eig­end­urnir, Henrik Falster-Hansen og Janne Dorte Knudsen, voru sýknuð af kröf­unni um að þeim verði gert óheim­ilt að loka fyrir rennsli neyslu­vatns úr vatns­veitu í landi jarð­ar­innar Ind­riða­staða. Ingólfi var jafn­framt gert að greiða land­eig­end­unum 900.000 krónur í máls­kostnað.

Málinu verður áfrýjað

Kristín Sólnes, lög­maður Ingólfs, seg­ist gera ráð fyrir að mál­inu verði áfrýjað til Lands­réttar. „Nið­ur­staðan bygg­ist á því að samn­ings­kvað­irnar séu nið­ur­fallnar með vísun til þess að jörðin var á sínum tíma seld á nauð­unga­sölu, en um þá nið­ur­stöðu má deila,“ segir hún.

Ingólfur er eig­andi lóð­ar­innar Skóg­ar­áss 1 í Skorra­dals­hreppi þar sem sum­ar­hús hans stendur. Lóðin var stofnuð úr landi jarð­ar­innar Ind­riða­staða en út frá henni hefur verið skipu­lagt frí­stunda­húsa­svæði með um 200 lóðum sem seldar voru úr jörð­inni. Elsta svæðið sunnan við Skorra­dals­vatn er ódeiliskipu­lagt en nýrri frí­stunda­húsa­svæðin hafa verið deiliskipu­lögð og spanna mörg skipu­lags­svæði, þ.á m. þar sem lóð Ingólfs er.

Mega ekki skrúfa fyrir vatnið

Bárður Haf­steins­son, gjald­keri Félags sum­ar­bú­staða­eig­enda í Ind­riða­staða­landi, stað­festir að það sé félagið sem standi á bak við lög­bannið og mála­rekst­ur­inn og full­yrðir að mál­inu verði áfrýjað. Lög­bannið er enn í gildi og fram­leng­ist sjálf­krafa þegar áfrýjun verður lögð fram.

Ingólfur bendir á það þar sem hans bústaður sé á nýrra svæð­inu henti hans kaup­samn­ingur mála­rekstr­inum. „Málið er að í þessu hverfi eru svo margir mis­mun­andi samn­ingar og þar af leið­andi margar mis­mun­andi túlk­anir á kvöð­unum,“ segir hann.

„Í mínum samn­ingi stendur að land­eig­andi skuli útvega vatn að lóða­mörkum og síðan sjái ég um fram­haldið. Það stendur s.s. ekki hversu mikið vatnið á að vera en a.m.k. nóg í sturtu, kló­sett og slíkt, það er lág­markið,“ segir hann og bendir á að land­eig­andi megi ekki skrúfa fyrir vatnið fyrr en Lands­réttur sé búinn að taka á mál­inu.

 „Land­eig­and­inn vill græða á okkur“

Ingólfur útskýrir að deil­urnar hafi staðið yfir í mörg ár og séu í raun á milli sum­ar­bú­staða­fé­lags­ins, en ekki hans per­sónu­lega og land­eig­enda.

„Land­eig­and­inn keypti jörð­ina 2013, síðan hefur hann séð leik á borði að fara græða eitt­hvað á okkur. Hann er í raun búinn að gefa út reikn­inga á nokkra aðila, þar á meðal mig. Þar kemur fram að árgjöldin fyrir vatnið verða um 35-40 þús­und krónur,“ segir hann og minn­ist á að fjár­festar hafi borað nýja holu í landi Mófells­staða upp úr 2005, jörðin hafi verið skipu­lagt sum­ar­bú­staða­land og í kaup­samn­ingum þeirra lóða sé kveðið á um að sum­ar­bú­staða­eig­endur skuli greiða hóf­legt árgjald fyrir kalt vatn. „Þetta hafa hann séð, land­eig­and­inn, og ætlað að láta þessar kvaðir ganga yfir alla aðra og bæta í, eins og maður segir.“

Ingólfur seg­ist gera sér grein fyrir að það kosti að reka bor­hol­una. „Félagið hefur tekið þátt í kostn­aði við að reka hol­una og þá er bara spurn­ing um hvað sé sann­gjarnt að greiða fyrir þetta. Að borga 40 þús­und á ári, það er eng­inn til í svo­leiðis vit­leysu. Ég per­sónu­lega er til í að borga 10-15 þús­und á ári ef ég get treyst því að fá alltaf vatn. En að land­eig­and­inn eigi að fá ein­hverjar 10 millj­ónir á ári beint í vas­ann fyrir kalt vatn, þá er hann ekki á réttum stað, bless­aður mað­ur­inn.“

Ingi Tryggva­son, lög­maður land­eig­end­anna, hafði ekki heyrt af því hvort mál­inu yrði áfrýjað þegar Mannlíf náði af honum tali og hafði ekk­ert frekar um málið að segja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina