Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Frekari samþjöppun á fjölmiðlamarkaði varhugaverð

Þegar sam­þjöppun er mikil í eign­ar­haldi fjöl­miðla eða fákeppni ríkir á fjöl­miðla­mark­aði er hættan sú að umfjöllun verði eins­leit og heil­indi fjöl­miðla sé stofnað í hættu. Kaup Árvakurs hf. og 365 miðla hf., á Póst­mið­stöð­inni ehf. gefur til­efni til að velta fyrir sér stöðu fjöl­miðla hér á landi.

Frekari samþjöppun á fjölmiðlamarkaði varhugaverð
Áður en félagið var tekið til gjald­þrota­skipta seldi Björn Ingi alla fjöl­miðla félags­ins út úr félag­inu|

Fjöl­miðlar gegna mik­il­vægu hlut­verki í upp­lýstu lýð­ræð­is­sam­fé­lagi. Þeir veita vald­höfum og stór­fyr­ir­tækjum lands­ins aðhald og þjóna almanna­hags­munum með að stuðla að upp­lýstri, vand­aðri umræðu. Þess vegna hafa fjöl­miðlar verið nefndir fjórða valdið. Þegar sam­þjöppun er mikil í eign­ar­haldi eða fákeppni ríkir á fjöl­miðla­mark­aði er hættan sú að umfjöllun verði eins­leit og heil­indi fjöl­miðla sé stofnað í hættu, einkum ef sterk tengsl eru á milli eig­anda fjöl­miðla­fyr­ir­tækja og ráð­andi stjórn­mála­afla- eða afla, þeirra sem styðja til­tekna stefnu umfram aðra.

Slík staða ýtir undir að fjöl­miðlar séu nýttir til að reka stjórn­mála­á­róður í þágu eig­anda. Það er því afar mik­il­vægt að sam­fé­lagið styðji við fjöl­breytni fjöl­miðla, líkt og er eitt af mark­miðum fjöl­miðla­laga, og að opin­berir aðilar átti sig á að fjöl­miðlar eru að þessu leyti ólíkir venju­legum fyr­ir­tækjum. Þannig sé stutt við að þeim sé kleift að sinna sínu hlut­verki án áhrifa frá fyr­ir­tækjum, stofn­unum eða tengsla við til­tekna stjórn­mála­flokka.

Umfjöllunin átti erindi við almenning

Nýlegt dæmi af afar umdeildu lög­banni Stund­ar­innar af frétta­flutn­ingi um við­skipti þáver­andi þing­manns, og núver­andi fjár­mála­ráð­herra, í aðdrag­anda efna­hags­hruns­ins upp úr Glitn­is­gögn­unum svoköll­uðu hafa vakið upp spurn­ingar um stöðu fjöl­miðla hér á landi. Lög­bann­inu var hafnað í hér­aðs­dómi meðal ann­ars með vísan til þess að umfjöll­unin hafi átt erindi við almenn­ing.

Sú nið­ur­staða var sam­þykkt af Lands­rétti í byrjun októ­ber, rúmu ári eftir að lög­bannið tók gildi. Tíma­punktur lög­banns­ins einn og sér gefur til­efni til vanga­veltna um hvort þöggun ætti sér stað í aðdrag­anda kosn­inga en lög­bann er við­ur­hluta­mikil íhlutun í tján­ing­ar­frelsið. Líklegt er að þessi aðgerð hafi jafn­framt haft fjár­hags­legt tjón í för með sér fyrir Stundina. Spurning er hvort þetta ferli gefi til­efni til þess að leitað verði til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu vegna máls­með­ferðar, með þeim fyr­ir­vara þó að höf­undi er ekki ljóst hvort skil­yrði fyrir máls­höfðun séu upp­fyllt.

Gætu misbeitt stöðu sinni

Annað mál gefur til­efni til að velta fyrir sér stöðu fjöl­miðla hér á landi varð­andi sam­þjöppun á fjöl­miðla­mark­aði. Fyrir nokkrum dögum sam­þykkti Sam­keppn­is­eft­ir­litið kaup Árvakurs hf. og 365 miðla hf., á Póst­mið­stöð­inni ehf. með til­teknum skil­yrðum. Þessi tvö félög gefa út Frétta­blaðið og Morg­un­blaðið og með kaupum á Póst­mið­stöð­inni sam­eina blöðin dreifi­kerfi sín fyrir dag­blöð, tíma­rit og fjöl­póst en áður voru dreifi­kerfi þeirra aðskilin.

Eftir kaupin er aðeins einn annar dreifi­að­ili í boði, Íslands­póstur, en ef blað á að koma út viku- eða dag­lega er erfitt að nýta sér þjón­ustu hans. Rannsókn Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins á þessum kaupum leiddi í ljós aug­ljósa hættu á þess­ari til­högun: nú gætu þessi tvö blöð mis­beitt stöðu sinni gagn­vart keppi­nautum sem eru m.a. Mannlíf og Stundin t.d. með að hefta aðgang þeirra að dreifi­kerfi Póst­mið­stöðv­ar­innar, með verð­lagn­ingu eða öðrum leiðum.

Í stað þess að hafna kaup­unum vegna þess­arar hættu eru þau heim­iluð með skil­yrðum á grund­velli þess fjár­hags­lega hag­ræðis sem næst í dreif­ingu, en Póst­mið­stöð­inni verður m.a. óheim­ilt að úti­loka aðila frá við­skiptum og er gert skylt að setja upp almenna verð­skrá.

Engin fyr­ir­mæli eru um hvert inni­hald slíkrar verð­skrá á að vera, en ef eig­and­inn er sá sami skiptir að end­ingu ekki máli fyrir þessa tvo aðila hvert verðið er. Aðeins er um að ræða til­færslu fjár­muna úr einum vas­anum í annan.

Dýrt að dreifa

Dreifing er iðu­lega einn dýr­asti kostn­að­ar­liður prent­mið­ils, mögu­lega fyrir utan launa­kostnað. Ef verð hækkar getur það þrengt rekstr­ar­skil­yrði fjöl­mið­ils, þannig að honum sé ekki lengur kleift að starfa og það getur einnig haft áhrif á gæði og efni upp­lýs­inga. Samkvæmt sátt­inni ef brotið er á skil­yrðum Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, t.d. við sam­tvinnun á prenti og dreif­ingu, eiga við­ur­lög að fara sam­kvæmt sam­keppn­is­lögum. Mála­rekstur fyrir Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu er iðu­lega tíma­frekur og ekk­ert sem úti­lokar að prent­mið­ill hrökk­list af mark­aði á meðan.

Dreifing er iðu­lega einn dýr­asti kostn­að­ar­liður prent­mið­ils.

Markmið með skil­yrðum er að gæta jafn­ræðis og koma í veg fyrir að þrengt sé að keppi­nautum. Það er góðra gjalda vert. En þessi skil­yrði gera það ekki, ef raun­veru­legur vilji er til staðar að hindra útgáfu ann­arra blaða eða gera þeim það erf­ið­ara fyrir. Það verður því aðeins að treysta að svo verði ekki. Þá ber að nefna að ef kaupin eru byggð á hag­kvæmn­is­rökum, ætti dreif­ing að verða ódýr­ari fyrir alla aðra við­skipta­vini ef jafn­ræði og hlut­leysi er gætt.  Það verður líka að koma í ljós hvort það verði raunin.

Forsvarsmenn 365 hf. sagðir vilja kaupa Ísafold

Loks ber að nefna að í dag eru tveir aðilar á mark­aði sem hafa burði til að prenta dag­blöð, Árvakur og Ísafold. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs hafa for­svars­menn 365 hf. einnig gert til­raun til að kaupa síð­ar­nefndu prent­smiðj­una. Með sam­ein­ingu á dreifi­kerfi ásamt þeim kaupum væri því allt prent- og dreifi­kerfi íslenskra fjöl­miðla í höndum ráð­andi aðila á mark­aði. Það gefur auga­leið að sú staða er afar var­huga­verð.

Á und­an­förnum miss­erum hafa smærri fjöl­miðlar líkt og Stundin verið að setja mál á dag­skrá sem varða mik­il­væga almanna­hags­muni sem aðrir stærri miðlar hafa ekki gert, líkt og lög­banns­málið ber vitni um sem og nýlegar Klaust­ur­upp­tökur. Vegna þess mik­il­væga hlut­verks sem fjöl­miðlar gegna fyrir opna lýð­ræð­is­lega umræðu og að upp­ræta spill­ingu hlítur að vega mjög þungt að sam­fé­lagið styðji við fjöl­breytni fjöl­miðla nú sem áður og opin­berar stofn­anir fari var­lega við að heim­ila frek­ari sam­þjöppun hjá aðilum sem nú þegar eru mark­aðs­ráð­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina