Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Erlendar verslunarhefðir komnar til að vera

Erlendar verslunarhefðir komnar til að vera
black fri­day

Mikið ber á erlendum straumum í íslenskri verslun og segir Kjartan Örn Sig­urðs­son frá Versl­ana­grein­ingu að þessar hefðir séu komnar til að vera. Hann var í við­tali við Lindu Blöndal í þætt­inum 21 á Hring­braut um íslenska verslun.

Að und­an­förnu hefur farið mikið fyrir erlendum útsölu­há­tíðum eins og „Black Friday“, „Cyber Monday“ og „Singles Day“. Nöfnum þess­ara daga hefur verið snarað yfir á íslensku í ein­hverjum til­fellum, eins og Stóri net­mánu­dag­ur­inn og Svartur föstu­dagur eða Svartur föss­ari sem er á allra vit­orði og íslensk verslun aug­lýsti af miklum krafti nú í lok mán­aðar. Þessar versl­un­ar­hefðir koma hins vegar úr mjög ólíkum áttum. Ljóst er að hefð­bundin verslun verður aldrei sú sama. „Singles Day“ hefur verið útlagt sem Dagur ein­hleypra en reyndar eiga til­boðin við alla ein­stak­linga.

Jólaverslunin hefst með tilboðshátíðum

„Singles day er frá Kína og þró­að­ist út úr net­menn­ing­unni þar,“ segir Kjartan Örn Sig­urðs­son frá Versl­ana­grein­ingu og því þurfum við að aðlaga erlendar versl­un­ar­hefðir að okkar menn­ingu. Hér á landi hafi ekki verið til neinar sams­konar hefðir. „Svarti föstu­dag­ur­inn heitir þessu nafni þar sem verslun í Banda­ríkj­unum fer þá úr tapi í hagnað, úr rauða blek­inu í það svarta í bók­hald­inu. Svarti föstu­dag­ur­inn er dag­ur­inn sem jóla­versl­unin byrjar. Í fyrra voru stóru fyr­ir­tækin á Íslandi komin inn í Svarta föstu­dag­inn og þá hófst þessi stóra spreng­ing sem við sjáum núna í lok mán­aðar,“ segir Kjartan.

„Stóri net­mánu­dag­ur­inn er síðan búinn til fyrir net­versl­anir til að taka þátt í þessum til­boðs­há­tíðum í upp­hafi jóla­versl­un­ar­innar. Að sögn Kjartans ganga íslenskir kaup­menn alls ekki jafn­langt og banda­rískir. „Í Banda­ríkj­unum er gjarnan 50 pró­sent afsláttur af hrein­lega öllu í versl­unum. Kaupmenn nota dag­inn til að kynna nýjar vörur og koma jóla­versl­un­inni í gang.“

Hvað verður í jólapakkanum í ár?

„Í fyrra stóðu þrjár vörur upp úr í jóla­pökk­unum. Í fyrsta lagi Sous Vide-græjan, í öðru lagi Karcher-skúr­ing­ar­vélin sem heldur vin­sældum sínum enn og við höfum líka upp­lýs­ingar um að 5.500 ToSing-míkró­fónar hafi selst fyrir jólin í fyrra,“ segir Kjartan.

„Þetta hefur verið ansi skemmti­legt ár fyrir íslenska kaup­menn. Fata­brans­inn hefur farið upp úr öllu valdi. Við vorum að útskrifa tvo stúd­entsár­ganga, sjö þús­und manns sem útskrif­uð­ust, og svo eru keypt föt á fleiri í fjöl­skyld­unni en bara þann sem útskrif­ast.“ Þetta hafi margur kaup­mað­ur­inn ekki séð fyrir.

Neyt­endur eru þó aðhalds­sam­ari núna en hið alræmda neysluár 2007 og fólk skuld­setur sig almennt ekki fyrir einka­neyslu, að sögn Kjartans.

„Við höfum verið að skoða hvaða trend eru í gangi. Okkur sýn­ist að vör­urnar sem muni standa upp úr fyrir þessi jól séu alls konar snjall­tæki fyrir heim­ilið. Amazon- eða Google-vörur sem eru per­sónu­legir aðstoð­ar­menn fólks inni á heim­ilum og fólk getur til dæmis talað við. „Þessi tæki eru á við­ráð­an­legu verði og verða eflaust í mörgum jóla­pökkum.“

Gjörbreytt staða í merkjavöruflokknum

Kjartan grunar líka að vörur með merkjum sem við höfum ekki séð áður verði í mörgum jóla­pökkum. Tölvu­leikir eru orðnir gíf­ur­lega vin­sælir og stór vöru­merki í alls konar varn­ingi „Það eru meiri tekjur í tölvu­leikja­brans­anum en kvik­mynda­brans­anum og það er ekki ólík­legt að það verði keppt í tölvu­leikjum á næstu ólymp­íu­leikum. Liðin sem unga kyn­slóðin heldur með eru ekki lengur fót­boltalið, heldur lið í tölvu­leikja­heim­inum. Ég held að við eigum eftir að sjá marga í Fortnite-peysum eftir þessi jól,“ og vísar Kjartan þar til þekkts tölvu­leikjar með sama nafni.

Mest að gera á laugardögum

Jóla­verslun á sína hápunkta á ákveðnum dögum og á ákveðnum tímum.

„Þetta er þriðja árið í röð með fjórum laug­ar­dögum í des­em­ber og toppar versl­unin á milli klukkan milli tvö og fjögur á laug­ar­dögum. Því má búast við að núna verði des­em­ber óvenju­stór versl­un­ar­mán­uður hjá kaup­mönnum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina