Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Stjórnvöld eiga erfiðara með að líta undan

Bréf til bjargar lífi er stærsti mann­rétt­inda­við­burður í heimi sem mann­rétt­inda­sam­tökin Amnesty International standa fyrir í 150 löndum og land­svæðum á hverju ári í kringum 10. des­em­ber. Við spurðum Bryndísi Bjarna­dóttur, her­ferða­stjóra Íslands­deildar Amnesty International, nánar út í við­burð­inn.

Stjórnvöld eiga erfiðara með að líta undan
||Þjóð­kirkjan þagði lengst af þunnu hljóði um mál sam­kyn­hneigðra

„Í her­ferð­inni koma hund­ruð þús­unda saman og skrifa undir bréf til stjórn­valda sem fót­um­troða mann­rétt­indi fólks og krefj­ast rétt­lætis í þágu þolenda brot­anna. Fjöldinn allur skrifar einnig stuðn­ings­kveðjur til þolend­anna og veitir þeim þannig styrk og vissu um að umheim­ur­inn hafi ekki gleymt þeim. Þessar kveðjur eru ekki síður mik­il­vægar því þær halda oft lífi í þeim sem sviptir hafa verið frels­inu og von­inni,“ segir Bryndís og nefnir dæmi um árangur. „Albert Woodfox sat til að mynda í ein­angrun í fjóra ára­tugi í hámarks­ör­ygg­is­fang­elsi í Louisiana-ríki í Banda­ríkj­unum, læstur inni í klefa sem var 183 x 244 cm að stærð, í 23 tíma á dag þar sem dags­birta var nán­ast engin. Woodfox hlaut dóm árið 1971 fyrir vopnað rán. Mál hans var tekið upp í Bréf til bjargar lífi árið 2015 en hann hlaut löngu tíma­bært frelsi í febr­úar 2016, á 69 ára afmæl­is­dag­inn sinn. Woodfox lét eft­ir­far­andi orð falla í tengslum við stuðn­ing­inn sem hann hlaut: „Vegna Bréf til bjargar lífi hafa mér borist þús­undir bréfa hvaðanæva að úr heim­inum með ákalli um stuðn­ing og sam­stöðu. Þessi skila­boð utan veggja fang­elsis hafa reynst upp­spretta að innri styrk til að halda áfram bar­átt­unni fyrir frelsi mínu.“
Þessi magn­aði við­burður er sönnun þess að í krafti fjöld­ans er hægt að umturna lífi fólks sem sætir grófum mann­rétt­inda­brotum.“
Á síð­asta ári voru send rúm­lega 5 milljón bréf, kort, smá­skila­boð og tölvu­póstar í þágu þolenda pynd­inga, lög­reglu­of­beldis, sam­visku­fanga, bar­áttu­fólks fyrir mann­rétt­indum og rétt­indum hinsegin fólks. Íslend­ingar létu heldur ekki sitt eftir liggja í bar­átt­unni fyrir betri heimi á síð­asta ári en nærri 3% þjóð­ar­innar tók þátt. Alls söfn­uð­ust rúm­lega 95.000 und­ir­skriftir frá Íslandi og þar af tæp­lega 50.000 á vef­síð­unni amnesty.is.
„Í ár stefnum við að því að ná rúm­lega 100.000 und­ir­skriftum og þar af 70.000 á síð­unni okkar. Fjöldinn allur af sjálf­boða­liðum úti á landi leggur jafn­framt her­ferð­inni lið með því að skipu­leggja margs konar við­burði í sínum sveit­ar­fé­lögum og safna und­ir­skriftum í þágu þeirra mála sem við tökum fyrir hverju sinni. Þá tekur fjöldi fram­halds- og grunn­skóla þátt í keppni um flestar und­ir­skriftir og almenn­ings­bóka­söfn um land leggja sömu­leiðis sitt af mörkum.“

Bryndís Bjarna­dóttir, her­ferða­stjóri Íslands­deildar Amnesty International. Mynd / Aldís Páls­dóttir

Íslenskar konur geta speglað sig í reynslu sumra kvenn­anna
Í ár er her­ferðin helguð tíu hug­rökkum bar­áttu­konum sem hafa verið áreittar, fang­els­aðar, pynd­aðar og jafn­vel myrtar vegna starfa sinna í þágu mann­rétt­inda. „Konur sæta áfram marg­vís­legri mis­munun vegna kyns síns og vegna bar­áttu sinnar í þágu mann­rétt­inda en þær neita að láta þagga niður í sér og hafa verið í far­ar­broddi mann­rétt­inda­bar­átt­unnar árið 2018. Um heim allan eru konur í far­ar­broddi and­ófs­fólks. Þær standa í fremstu víg­línu, berj­ast gegn mis­munun, þving­uðum brott­flutn­ingi og kúgun. Staða þeirra sem leið­toga í sam­fé­lögum sínum er enn merki­legri vegna erf­ið­leika sem varðað hafa veg­ferð þeirra. Margar kvenn­anna búa í sam­fé­lögum þar sem konum er ætlað að þola órétt­læti án þess að rödd þeirra heyr­ist. Með því að slást í hóp þeirra geta Íslend­ingar lagt sitt lóð á vog­ar­skálar jafn­réttis, frelsis og rétt­lætis.“
Bryndís segir að margar íslenskar konur séu öfl­ugar bar­áttu­konur og þar standi hæst bar­áttan gegn kyn­bundnu ofbeldi og jafn­rétti kynj­anna. „Við erum hins vegar svo lánsamar að lifa í nokkuð öruggu sam­fé­lagi þar sem öfga­hópar gera ekki grimmi­legar atlögur að konum fyrir bar­áttu þeirra og stjórn­valdið beitir ekki pynd­ingum eða tekur okkur af lífi til að þagga niður í okkur. Hins vegar held ég að margar íslenskar konur geti speglað sig í reynslu sumra þeirra kvenna sem við berj­umst fyrir, sér­stak­lega ef þær upp­lifa mis­munun út frá fleiri þáttum en bara kyns síns vegna. Eitt mál­anna er til dæmis mál Gulzar frá Kirgistan en hún lenti í bílslysi árið 2002 og missti hreyfi­get­una í fót­leggjum í kjöl­farið. Hún berst ötul­lega fyrir rétt­indum fólks með fötlun í heima­landi sínu og að sá hópur fái lifað með reisn.
Hún átt­aði sig fljótt á því að fólk með fötlun stóð allt frammi fyrir svip­uðum vanda­málum, meðal ann­ars erf­ið­leikum við að finna vinnu, því margir vinnu­staðir voru ekki aðgengi­legir fyrir hjóla­stóla, eða að þurfa að reiða sig á aðra til að lyfta sér upp í stræt­is­vagna, sem er nið­ur­lægj­andi reynsla. Hún verður dag­lega fyrir mis­munun í sam­fé­lagi þar sem konur eiga ekki að hafa hátt og litið er á fólk með fötlun sem „ónytj­unga“ með ólækn­andi sjúk­dóm. Þó að íslenskar konur geti sann­ar­lega haft hátt og gera það margar, sem betur fer, þá held ég að konur með fötlun hér á landi verði fyrir tvö­faldri mis­munun og eigi því erf­ið­ara með láta rödd sína heyr­ast.“

Ljósainn­setn­ingu verður ýtt úr vör í annað sinn fyrir framan Hall­gríms­kirkju, föstu­dag­inn 30. nóv­em­ber kl. 17.

Ljósum böðuð Hall­gríms­kirkja
Fólk getur tekið þátt á vef­síð­unni amnesty.is og ann­að­hvort valið að skrifa undir öll málin tíu eða valið þau mál sem það vill styðja. „Þá setja margir und­ir­skrift sína við fyr­ir­fram­skrifuð bréf til stjórn­valda sem við prentum á sér­stök aðgerða­kort. Einnig sendum við áköll til félaga í sms-aðgerða­net­inu okkar og í Netá­kall­inu svo leið­irnar til að taka þátt eru margar. Íslands­deild Amnesty International heldur síðan utan um allar und­ir­skrift­irnar, aðgerða­kortin og bréfin og sér um að senda utan til við­kom­andi stjórn­valda. Bréfin hafa orðið mikla vigt, í fyllsta skiln­ingi þess orðs, hér fara heilu bílfarm­arnir af bréfum og kortum út af skrif­stofu sam­tak­anna og það er erfitt fyrir stjórn­völd að líta undan.“
Á síð­asta ári stóð Íslands­deild Amnesty International í fyrsta sinn fyrir gagn­virkri ljósainn­setn­ingu við Hall­gríms­kirkju, sem kall­ast Lýstu upp myrkrið, en þar geta gestir og gang­andi tekið þátt með því að skrifa undir mál bar­áttu­kvenn­anna á spjald­tölvu fyrir framan kirkj­una. Ljósainn­setn­ing­unni verður ýtt úr vör fyrir framan Hall­gríms­kirkju, föstu­dag­inn 30. nóv­em­ber kl. 17 og stendur yfir í þrjá daga frá kl. 17 til kl. 22. „Í ár kynnum við enn áhrifa­meira myndefni og skreyt­ingar fyrir ljósainn­setn­ing­una til sög­unnar svo eng­inn má missa af þessum töfr­andi við­burði.“

Rétt­ar­höldin tóku 15 mín­útur
Her­ferðin í ár er helguð tíu hug­rökkum bar­áttu­konum sem hafa verið áreittar, fang­els­aðar, pynd­aðar og jafn­vel myrtar vegna starfa sinna í þágu mann­rétt­inda. Hér eru sögur fjög­urra þeirra.

Marielle Franco, Brasilía
Marielle Franco var ótta­laus í bar­áttu sinni fyrir rétt­lát­ari og örugg­ari Rio de Janeiro. Hún barð­ist fyrir rétt­indum ungs fólks, blökku­kvenna og hinsegin fólks. Hún gagn­rýndi líka ólög­mæt dráp lög­reglu. Það var þaggað niður í henni þegar hún var skotin til bana í bíl sínum. Hún er ein af a.m.k. 70 mann­rétt­inda­fröm­uðum sem myrtir voru í Brasilíu 2017.

Amal Fathy, Egypta­land
Þann 9. maí síð­ast­lið­inn birti Amal Fathy mynd­band á Facebook þar sem hún deildi reynslu sinni af kyn­ferð­is­legri áreitni, vakti athygli á umfangi vand­ans í Egypta­landi og gagn­rýndi stjórn­völd fyrir að vernda ekki konur. Hún var hand­tekin í kjöl­farið.

Atena Daemi, Íran
Atena Daemi hefur verið ötul í bar­átt­unni gegn dauða­refs­ing­unni í Íran. Hún skrif­aði stöðu­færslur á sam­fé­lags­miðlum, dreifði bæk­lingum og tók þátt í frið­sam­legum mót­mælum. Hún var dæmd í sjö ára fang­elsi. Rétt­ar­höldin tóku bara fimmtán mín­útur og hún hefur sætt ofbeldi og nið­ur­lægj­andi með­ferð í fang­elsi.

Vitalina Koval, Úkraína
Vitalina Koval leggur á sig mikla vinnu til að styðja við bakið á hinsegin fólki í heimabæ sínum í Úkraínu. Hún varð hins vegar fyrir hrotta­feng­inni árás í kjöl­far þátt­töku sinnar í skipu­lagn­ingu frið­sam­legrar kröfu­göngu. Vitalina neitar að láta hót­anir og ofbeldi þagga niður í sér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina