Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Vandaðar bækur fyrir vandláta lesendur

Áhuga­verðar bækur af ýmsu tagi er að finna í jóla­bóka­flóð­inu í ár. Þetta eru nokkrar þeirra.

Vandaðar bækur fyrir vandláta lesendur
|||

Stærsta perla jólabókaflóðsins

Jón Baldur Hlíðberg gerir teikn­ing­arnar í bók­inni.

Enginn vafi er á því að bókin Flóra Íslands er stór­virki í útgáfu hér á landi. Hér eru teknar saman helstu blóm­plöntur og byrkn­ingar í íslenskri nátt­úru. Þessi bók er ítar­legri en þær hand­bækur sem áður hafa komið út um jurt­irnar og sann­kallað lista­verk.

Hörður Krist­ins­son og Þóra Ellen Þór­halls­dóttir eru höf­undar text­ans. Þau rekja þró­un­ar­sögu flóru lands­ins, lífs­ferla plantna, grein­ing­ar­að­ferðir og setja upp lykla að réttri grein­ingu. Jón Baldur Hlíðberg hefur gert ein­stak­lega heill­andi myndir af öllum jurt­unum í bók­inni. Þær eru svo lif­andi og nákvæmar en Jón Baldur hefur einnig teiknað plöntu­hluta fólki til aðstoðar við plöntu­grein­ing­una og frek­ari fróð­leiks. Hann sagði frá því í útgáfu­hófi bók­ar­innar að hann hafi lagt mikið upp úr því að finna ein­tak af hverri ein­ustu jurt og teikna eftir þeim. Stundum þurfti fleiri en eitt og vinna hratt meðan ein­tökin héldu enn lífi og lit. Það kost­aði mörg ferða­lög og leit eftir sjald­gæfum teg­undum. Þessi perla er mik­ill fengur fyrir alla þá sem hafa áhuga á íslenskum jurtum en heil­mikið er í bók­inni að finna um jurt­a­nytjar líka. Vaka Helga­fell gefur út.

Næstum óþægilega hreinskilin

Höfundur er Ásdís Halla Braga­dóttir.

Hornauga er sjálf­stætt fram­hald af Tvísaga eftir Ásdísi Höllu Braga­dóttur. Hér rekur hún hvernig það er kynn­ast helm­ingi gena sinna fyrst á full­orð­ins­aldri og hvernig raða má púsl­unum saman svo úr verði heil­stæð mynd. Ásdís Halla sýnir mikið hug­rekki með því að skrifa af svo blygð­un­ar­lausri hrein­skilni um upp­lif­anir sínar. Hún er sömu­leiðis ótrú­lega dug­leg að afla sér upp­lýs­inga og vinna úr þeim. Auðvitað er hluti bók­ar­innar hennar túlkun á til­finn­ingum og upp­lif­unum for­feðra sinna en hún skrifar af miklu næmi og færni. Þetta er umhugs­un­ar­verð og góð bók. Veröld gefur út.

Mögnuð persónusköpun og spenna

Arnaldur Ind­riða­son er snill­ingur í per­sónu­sköpun.

Í nýj­ustu bók sinni Stúlkan hjá brúnni er Arnaldur Ind­riða­son í sínu allra besta formi. Hann er snill­ingur í að skapa and­rúms­loft, end­ur­spegla mis­mun­andi tíð­ar­anda og skapa trú­verð­ugar og áhuga­verðar per­sónur. Allt þetta er til staðar í þess­ari bók. Fyrr­ver­andi lög­reglu­mað­ur­inn Konráð er beð­inn að hafa uppi á ungum fíkni­efna­neyt­anda en á sama tíma er athygli hans vakin á máli tólf ára stúlku sem drukkn­aði í Tjörn­inni. Hann er enn þá upp­tek­inn af örlögum föður síns og er í sam­bandi við Eygló, dóttur Eng­il­berts mið­ils. Allir þessir þræðir flétt­ast síðan saman og úr verður ein­stak­lega flott gáta. Vaka Helga­fell gefur út.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina