Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Ég vil endilega hvetja karla til að prófa að prjóna“

„Maður verður nefni­lega svo­lítið háður því að prjóna,“ segir Pétur Odd­bergur Heim­is­son. Hann hvetur karl­menn til að prófa að prjóna.

Pétur Odd­bergur Heim­is­son byrj­aði að prjóna af kappi fyrir um 10 árum þegar hann starf­aði á Hótel Flatey á Breiða­firði. „Ég vann með nokkrum konum sem voru alltaf prjón­a­ndi og það vakti áhuga minn. Þær hjálp­uðu mér að rifja upp grunn­at­riðin og svo gat maður alltaf leitað til þeirra þegar maður lenti í vand­ræðum,“ segir Pétur sem hefur ekki lagt frá sér prjón­ana og garnið síðan hann komst upp á lagið með að prjóna.

Aðspurður á hvaða tíma dags hann prjónar helst segir Pétur: „Ég er söngv­ari og er í námi, þannig að ég er ekki í hefð­bund­inni 9-5 vinnu. Þess vegna get ég gripið í prjón­ana oft á dag. Oftast prjóna ég nokkra hringi á morgn­anna og svo líka á kvöldin. Maður verður nefni­lega svo­lítið háður því að prjóna, um leið og maður lærir þetta. Svo er hægt prjóna hvar sem er.“

Mynd / Sebast­ian Ryborg Storgaard

Hann segir prjóna­skap fína leið til að ná slökun. „Þetta er mjög góð leið til að slaka á, þegar búið er að læra réttu hand­tökin. Í upp­hafi getur þetta nefni­lega verið erfitt og reynt veru­lega á þol­in­mæð­ina enda er þetta oft mikil nákvæmn­is­vinna.“

Pétur segir prjóna­skap vera góða leið til að verja frí­tíma sínum. „Ég hef svo­lítið tekið Facebook sem dæmi því margir eyða alveg svaka­legum tíma á Facebook, jafn­vel nokkrum klukku­stundum á dag. Þeim tímum væri klár­lega betur varið í að prjóna, þar sem úr verður til dæmis peysa, sokkar eða húfa.“

Tugir klukkustunda fara í eina peysu

Peysan Gróa sem Pétur prjón­aði á mömmu sína.

Pétur prjónar helst peysur. Spurður út í upp­á­halds­peysu sem hann hefur prjónað segir hann: „Peysa sem ég gaf mömmu minni er í upp­á­haldi. Ég hann­aði munstrið á hana jafn­óðum án þess að skrifa það niður og mér fannst það koma mjög vel út. Svo er peysan sem ég hann­aði  og gerði fyrir Mottu­mars líka í upp­á­haldi.“

Peys­urnar sem hann prjónar gefur hann þá ýmist í jóla- eða afmæl­is­gjafir. Svo gengur hann auð­vitað stundum sjálfur í peysu sem hann hefur prjónað og segir það ein­staka til­finn­ingu. „Ég hef gefið flestar peys­urnar og svo selt ein­hverjar. Það er samt svo­lítið skrítið að margt fólk er ekki til­búið að borga sann­gjarnt verð fyrir prjón­aða peysu. Það er eins og margir geri sér ekki grein fyrir vinn­unni sem fer í eina peysu, þetta geta verið tugir klukku­stunda plús efn­is­kostn­aður,“ útskýrir Pétur. Hann leggur áherslu á að það sé svo sann­ar­lega ekki hægt að bera verk­smiðju­fram­leidda peysu við hand­prjón­aða peysu.

Það er eins og margir geri sér ekki grein fyrir vinn­unni sem fer í eina peysu.

Hvetur karla til að prófa að prjóna

Pétur seg­ist oft fá jákvæð við­brögð frá fólki sem sér hann prjóna. „Þegar ég er til dæmis að prjóna í lest­inni í Hollandi, þar sem ég er búsettur, þá sé ég að ókunn­ugir eru svo­lítið að horfa til mín og brosa, þeim þykir þetta snið­ugt. Það er nefni­lega sjald­gæft að sjá karla prjóna, því miður. Það er líka þess vegna sem ég hef viljað tala opin­skátt um prjóna­skap­inn og viljað halda prjóna­kvöld fyrir karla. Ég vil endi­lega hvetja karla til að prófa að prjóna. Það eru líka örugg­lega ein­hverjir ungir strákar þarna úti sem vilja prjóna en þora kannski ekki, þá er ágætt að þeir sjái aðra karl­menn prjóna.“

Hann bætir við: „Ég fæ stundum mikla athygli fyrir að prjóna, ein­göngu vegna þess að ég er karl­maður. Það er svo­lítið spes. Þetta er vegna þess að með tím­anum hefur þetta þró­ast þannig að það eru aðal­lega konur sem prjóna. Þess vegna er fólk stundum for­vitið og hissa að sjá karl­mann prjóna. Umræðan er greini­lega þörf og frá­bært að fá tæki­færi til að hafa áhrif á hana. Vonandi verður alveg jafn eðli­legt að sjá karl­menn prjóna og konur í náinni fram­tíð,“ segir Pétur sem hefur velt mýtum í kringum prjóna­skap mikið fyrir sér und­an­farið.

Umræðan er greini­lega þörf og frá­bært að fá tæki­færi til að hafa áhrif á hana.
Pétur hefur prjónað af kappi í 10 ár. Mynd / Sebast­ian Ryborg Storgaard

Pétur hefur mik­inn metnað fyrir prjóna­skap og er stað­ráð­inn í að bæta sig með tím­anum. „Ég er ekki nærrum því jafn fær og margir í kringum mig. Ég er til dæmis í Facebook-hóp sem heitir Handa­óðir prjón­a­rar og þar birtir fólk myndir af alveg svaka­legum lista­verkum sem það hefur gert. Það veitir manni því­líkan inn­blástur og maður vill gera meira.“

Með­fylgj­andi eru góð ráð frá Pétri fyrir þá sem hafa áhuga á að byrja að prjóna:

  1. Fáið aðstoð frá vinum og vanda­mönnum. Flestir þekkja ein­hvern sem kann að prjóna og getur þá hjálpað við að rifja upp hand­tökin sem maður lærði í grunn­skóla.
  2. Kíkið í handa­vinnu­búðir og fáið aðstoð frá starfs­fólki við að velja réttu prjón­ana og garnið í það stykki sem þið ætlið að prjóna.
  3. Skoðið kennslu­mynd­bönd á YouTube. Þar kennir ýmissa grasa, bæði fyrir byrj­endur og lengra komna.
  4. Farið á prjóna­kvöld sem eru haldin reglu­lega í hann­yrða­versl­unum víða um borg­ina. Þar er hægt að fá aðstoð og inn­blástur. Svo er auð­vitað snið­ugt að stofna eigin klúbb með vinum og kunn­ingjum.

Myndir / Sebast­ian Ryborg Storgaard 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina