Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ekkja plastbarkaþegans fær ekki greiddar bætur

Ekkja plastbarkaþegans fær ekki greiddar bætur

Karol­inska-háskóla­sjúkra­húsið hefur sent lög­fræð­ingi ekkju Andemari­ams Beyene í Svíþjóð bréf um að hún muni ekki fá bætur greiddar frá sjúkra­hús­inu. Kemur þetta veru­lega á óvart þar sem tals­maður sjúkra­húss­ins hafði áður lýst yfir að hún fengi bætur.

MM Samkvæmt Merhawit Bar­ya­mik­ael Tes­falase, ekkju Andemari­ams Beyene, fyrsta plast­barka­þeg­ans, mun hún ekki fá bætur frá Karol­inska-háskóla­sjúkra­hús­inu þar sem aðgerðin var fram­kvæmd en hún segir að því hafi áður verið lýst yfir af tals­manni sjúkra­húss­ins í við­tali í fjöl­miðlum að fjöl­skylda Andemari­ams Beyene fengi bætur.

„Þetta er mér næstum ofviða ofan á allt sem hefur gengið á. Ef Andemariam hefði farist í bílslysi, hefði allt verið mun auð­veld­ara. Þá hefðu hlut­irnir legið fyrir, en þetta mál hefur elt mig í fimm ár og ætlar engan enda að taka. Ég get ekki lýst því hvað ég er von­svikin,“ segir Merhavit Bar­ya­mik­ael Tes­falase um efni bréfs­ins.

Fékk eingöngu afsökunarbeiðni

Merhawit segir að tals­maður Karol­inska-háskóla­sjúkra­húss­ins hafi sagt í við­tali að sjúkra­húsið myndi greiða sér bætur vegna þess mikla missis sem fjöl­skyldan varð fyrir þegar eig­in­maður hennar, Andemariam Beyene, lést í kjöl­far þess að hann fór í til­rauna­að­gerð þar sem plast­barki var græddur í hann. En nú hefur Karol­inska-háskóla­sjúkra­húsið snúið við blað­inu og ákveðið að ekkjan fái engar bætur. Bréf þess efnis hefur borist Merhawit og var það und­ir­ritað af Melvin Samsom, for­stjóra Karol­inska-háskóla­sjúkra­húss­ins, og sent til lög­fræð­ings Merhawit en í því segir for­stjór­inn að ekki hafi tek­ist að ná sam­bandi við Merhawit.

Í bréf­inu er Merhawit ein­göngu beðin ein­læg­legrar afsök­unar á þeim sárs­auka sem sjúkra­húsið olli henni og fjöl­skyldu hennar með þeirri með­ferð sem Andemariam Beyene hlaut. Þar segir að ábyrgðin sé hjá Paolo Macchiarini og er vísað í skýrslu Kjell Asplund, fyrr­ver­andi land­læknis í Svíþjóð, þess efnis og að sjúkra­húsið muni ekki þess efnis og að sjúkra­húsið muni ekki greiða henni bætur, það sé alfarið á hendi Sjúkra­trygg­inga­fé­lags­ins í Svíþjóð.

Samsom segir þó í bréf­inu að Karol­inska-háskóla­sjúkra­húsið hafi ekki fylgt við­ur­kenndum verk­ferlum og að kerfi stofn­un­ar­innar hafi brostið og því ekki tryggt öryggi Andemariam Beyene.

Í lok bréfs­ins segir að hún geti sótt um miska­bætur hjá sjúkta­trygg­inga­kerf­inu líkt og aðrir sjúk­lingar í Svíþjóð sem telja sig hafa orðið fyrir skaða af völdum lækn­is­með­ferðar og að Karol­inska-háskóla­sjúkra­húsið muni veita henni aðstoð við það, óski hún þess. Þær bætur eru þó mjög lágar miðað við alvar­leika þessa máls en mál Merhawit hefur verið hjá lög­fræð­ingi í tvö ár. Hún hefur ein­göngu fengið smá­vægi­legar bætur vegna jarð­ar­far­ar­kostn­aðar Andemari­ams Beyene og hefur Merhawit ekki ákveðið enn hvort hún muni sækja um bætur úr sjúkra­trygg­inga­kerf­inu. Ekki hafa feng­ist svör frá lög­fræð­ingi Merhawit í Svíþjóð um þetta og hvert sé næsta skref.

Saksóknari gæti ákært Macchiarini

Sak­sókn­ari í Svíþjóð mun á næstu dögum eða vikum ákveða hvort opin­ber rann­sókn verði gerð á máli Paolo Macchiarini, en þá gæti farið svo að hann yrði ákærður fyrir lög­brot í starfi. Sak­sókn­ari ákvað á síð­asta ári að ákæra ekki Macchiarini en sú ákvörðun var gagn­rýnd mjög í Svíþjóð. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs er Macchiarini enn við störf á Spáni, Ítalíu og í Tyrk­landi.

Íslensk lögfræðistofa hefur haft samband við Landspítala

Anna Sigrún Bald­urs­dóttur, aðstoð­ar­maður for­stjóra Land­spít­ala, segir í sam­tali við Mannlíf að í Rann­sókn­ar­skýrsl­unni íslensku sé það til­laga nefnd­ar­innar að Land­spít­ali veiti ekkj­unni fjár­hags­að­stoð til að verða sér úti um lög­fræði­að­stoð til að leita réttar síns. Land­spít­al­inn hafi verið í sam­bandi við lög­fræð­ing ekkj­unnar í Svíþjóð og nú einnig lög­fræð­inga hennar hér á landi. „Málið er í höndum lög­fræði­stofu ekkj­unnar hér á landi sem hefur sett sig í sam­band við spít­al­ann fyrir hennar hönd og er málið þar statt,“ segir Anna Sigrún.

Þegar Mannlíf hafði sam­band við lög­fræð­ing ekkj­unnar hér á landi, Gest Gunn­ars­son, sagði hann að lítið væri að frétta af máli Merhawit er snerti Land­spít­ala. Það væri í vinnslu.

Tilraunaaðgerðir á fólki

Plast­barka­að­gerð­irnar voru taldar til­raunir á mönnum og ráðn­ing Macchiarini til Karol­inska-stofn­un­ar­innar og Karol­inska-háskóla­sjúkra­húss­ins var í sam­ræmi við stefnu um að byggja þar upp mið­stöð fyrir háþró­aðar önd­un­ar­vegs­skurð­lækn­ingar. Umfangs­mikið alþjóð­legt tengsla­net Macchiarini átti að tryggja að mið­stöðin yrði leið­andi á heims­vísu. Um var að ræða til­rauna­að­gerð á Andemariam Beyene sem til­skilin leyfi voru ekki fyrir. Samkvæmt því sem kemur fram í nýút­kominni bók blaða­manns­ins Bosse Lindquist, sem gerði Experimenten-þætt­ina um málið, mun teymi lækna á Karol­inska-háskóla­sjúkra­hús­inu hafa komið að ákvörðun um fram­kvæmd aðgerð­ar­innar örlaga­ríku á fundi á spít­al­anum dag­inn fyrir hana, þ.á m. læknar sem síðar voru með­höf­undar að Lancet-vís­inda­grein­inni sem hefur verið aft­ur­kölluð vegna vís­inda­legs mis­ferlis. Þessi nið­ur­staða á Karol­inska-háskóla­sjúkra­hús­inu kemur því þeim mjög á óvart sem fylgst hafa náið með þessu máli eða unnið að því í Svíþjóð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Plastbarkamálið

FréttirPlastbarkamálið

Upp­ljóstr­arar: „Plast­barka­málið er ennþá opið sár“

Tveir af upp­ljóstr­ur­unum í plast­barka­mál­inu svo­kall­aða, Karl Henrik Grinnemo og Oscar Simons­son, lýsa reynslu sinni af því að segja frá því sem gerð­ist á Karol­inska-sjúkra­hús­inu þar sem þeir unnu. Karl Henrik seg­ist hafa verið með sjálfs­vígs­hugs­anir eftir að hann varð fyrir hefnd­ar­að­gerðum innan Karol­inska-sjúkra­húss­ins. Þeir segja að upp­gjör­inu við plast­barka­málið sé hvergi nærri lokið í Svíþjóð og að gera þurfi almenni­lega rann­sókn á því þar.

10 mín. lestur

GreiningPlastbarkamálið

Sjúkra­trygg­ingar Íslands voru á „barmi þess“ að brjóta lög í plast­barka­mál­inu

Plast­barka­málið hefur verið til umfjöll­unar í íslenskum og sænskum fjöl­miðlum síð­ast­liðin ár. Viss lúkn­ing er komin í málið með end­an­legum fang­els­is­dómi yfir ítalska skurð­lækn­inum Paulo Macchiarini. Þrjár íslenskar rík­is­stofn­anir komu að mál­inu, sem stimplað hefur verið sem lög­brot, en minnst hefur verið fjallað um aðkomu Sjúkra­trygg­inga Íslands að því.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina