Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Vona að gæðin komist aftur í tísku“

Saga Sig­urð­ar­dóttir og Ísak Freyr Helgason skara hvort um sig fram úr á sínu sviði. Hún er einn af okkar bestu ljós­mynd­urum og hann einn fær­asti förð­un­ar­fræð­ingur sem landið hefur alið. Saman eru þau ban­eitrað teymi og bestu vinir. Saga flaug nýlega til London að hitta Ísak sem þar býr og smellti að sjálf­sögðu af myndum fyrir við­talið í leið­inni.

„Vona að gæðin komist aftur í tísku“
|

Saga ætl­aði að verða stjarneðl­is­fræð­ingur og svo læknir þegar hún var yngri en hún dúxaði í Haga­skóla og fór á nátt­úru­fræði­braut í MR. Það var sterk inn­sæ­is­rödd sem hvísl­aði að henni að hún væri á rangri braut. Hún færði sig yfir í Verzlunarskóla Íslands, sem hún seg­ist eiga ljós­mynda­feril sinn í dag að þakka. „Ef ég hefði ekki byrjað í Verzló og farið að mynda fyrir skóla­blaðið væri ég ekki ljós­mynd­ari í dag.“

Ísak ætl­aði aftur á móti að verða forn­leifa­fræð­ingur þegar hann var yngri, enda með þrá­hyggju fyrir Jurassic Park. „Ég fór oft og tíðum með tann­bursta út í garð og þótt­ist vera grafa upp bein. Það leit kannski ekk­ert allt of vel út á þeim tíma,“ segir Ísak og hlær.

Lítil virðing fyrir förðunarfræðingum

Saga og Ísak kynnt­ust á ung­lings­aldri þegar hún vann í tísku­vöru­versl­un­inni Rokki og rósum og Ísak var þar fasta­gestur. Saga lýsir honum sem yfir­máta feimnum, hann hafi ekki þorað að heilsa til að byrja með en eftir að hann skráði sig í förð­un­ar­nám hafi hann bein­línis blómstrað og fundið sig. Það er aug­ljóst af spjalli okkar að þau bera gríð­ar­mikla virð­ingu hvort fyrir öðru sem lista­fólki.

Sögu finnst mikið vanta upp á að förð­un­ar­fræð­ingar, bún­inga­hönn­uðir og stílistar fái þá virð­ingu og laun sem þau eiga skilið hér á landi.

„Það gerir mig svo leiða og reiða að sjá hversu lítil virð­ing er borin fyrir förð­un­ar­fræð­ingum, bún­inga­hönn­uðum og stílistum, til dæmis á kvik­mynda­settum á Íslandi. Erlendis eru förð­un­ar­fræð­ing­arnir oft stór­stjörnur og þeir hæst­laun­uðu á setti og fá tíma til að vinna vinn­una sína. Þar er líka við­ur­kennt að stílistar eru mik­il­vægir fyrir heild­ar­mynd­ina. Hér hafa verið gefnir út þættir um gerð kvik­mynda þar sem gervi og förðun er í stóru hlut­verki og engum dettur í hug að minn­ast einu orði á fólkið sem stendur að þeirri vinnu. Við eigum flinka hönn­uði og lista­fólk sem nær að gera ótrú­leg­ustu hluti á sama og engum tíma. Oftar en ekki er ein mann­eskja í starfi sem sex mann­eskjur úti gegna. Það er sorg­legt að horfa upp á þetta. Vonandi hækka laun þess­ara starfs­stétta og fólki í þessum störfum verði sýnd sú virð­ing sem það á skilið, þetta er svo hneyksl­an­legt. Vegna þessa held ég að margir nenni þessum störfum ekki lengur,“ segir Saga og Ísak tekur undir að brans­inn sé gjör­ó­líkur hér á landi og úti í London.

„Það gerir mig svo leiða og reiða að sjá hversu lítil virð­ing er borin fyrir förð­un­ar­fræð­ingum, bún­inga­hönn­uðum og stílistum, til dæmis á kvik­mynda­settum á Íslandi.“

„Mark­að­ur­inn er svo miklu stærri hérna úti og mörg stór tísku­hús og tíma­rit til að vinna fyrir og auð­vitað miklu fleiri förð­un­ar­fræð­ingar og pen­ingar í spil­inu. Fyr­ir­tækin eru líka dug­leg að nota förð­un­ar­fræð­inga til að aug­lýsa fyrir sig og vera tals­menn þeirra. Þeir eru þá orðnir stór nöfn innan geirans. Margt hefur breyst með komu Instagram. Það getur skipt miklu máli hversu marga fylgj­endur förð­un­ar­fræð­ingar hafa þegar þeir eru valdir í ákveðin verk­efni sem mér finnst alveg fárán­lega leið­in­leg þróun sem ég tek lít­inn þátt í,“ segir Ísak ein­lægur að vanda.

Saga tekur undir það hversu breyttur brans­inn er með vin­sældum ákveð­inna sam­fé­lags­miðla. „Þegar ég flutti heim frá London fyrir nokkrum árum var ég kannski fengin í stór verk­efni á hálfs árs fresti. Mikið var í þau lagt og launin eftir því. Núna er hrað­inn orð­inn svo mik­ill að allt þarf að end­ur­nýj­ast á mán­að­ar­fresti eða svo. Sem þýðir miklu meiri vinnu fyrir minni pen­inga. Lands­lagið fyrir okkur ljós­mynd­ar­ana er mjög breytt og ekki jafn­skemmti­legt og það var. Þessi enda­lausi hraði bitnar á gæð­unum. Ég vona að þetta sé bara ákveðið tíma­bil og að gæðin kom­ist aftur í tísku,“ segir Saga.

Grét af reiði vegna virðingaleysis

„Við Saga höfum aldrei þurft vímu­gjafa til þess að skemmta okkur saman,“ segir Ísak.

Talið berst að jafn­rétt­is­bar­átt­unni en eitt atvik frá því Saga leik­stýrði mynd­bandi á dög­unum, situr í henni. „Ég hef tekið þátt í alls­konar verk­efnum og tel mig heppna að hafa ekki oftar en raun ber vitni upp­lifað kynja­mis­rétti, þótt ég hafi vafa­laust fengið minna borgað en karl­kynskollegar mínir. Við konur eigum það til að gera lítið úr okkur. Ég er smám saman að læra samn­inga­tækni,“ segir Saga en nýlega var gert lítið úr henni í vinnu. Hún upp­lifði algera van­virð­ingu á töku­stað. „Ég var fengin til að leik­stýra mynd­bandi og upp­lifði á eigin skinni að karl­kyn­stöku­maður hlust­aði ekki á neitt sem ég sagði. Sama hversu oft ég sagði sama hlut­inn, allar athuga­semd­irnar mínar voru virtar að vettugi. Til­finn­ingin sem ég fann fyrir situr í mér. Ég var svo reið að ég grét af reiði,“ segir Saga en bætir við að við­kom­andi töku­maður hafi rétt í þessu sent henni fal­legan afsök­un­ar­póst, sem hún kunni að meta. „Það skiptir miklu máli að standa með sjálfri sér þegar svona ger­ist og læra af reynsl­unni. Setja þarf ákveðin mörk í sam­skiptum fyr­ir­fram en það kemur með reynslu og tím­anum,“ segir hún og bætir við að hún hafi unnið með frá­bæru og hæfi­leik­a­ríku fólki í gegnum tíð­ina, af báðum kynjum, og það sé virki­lega dýr­mætt að eiga góða vini í brans­anum.

Í annarlegu ástandi í frægum kastala

Ísak og Saga segj­ast bæði vera við­kvæm, svo­lítið með­virk og með ákveðnar þrá­hyggju­hugs­anir. Það séu viss mál sem þau tali aðeins um hvort við annað því þar finni þau skil­yrð­is­lausan gagn­kvæman skiln­ing. Ísak varð edrú fyrir nokkrum árum og hefur aldrei verið í meira jafn­vægi en Saga seg­ist varla drekka.

„Ég minnt­ist ekki á að ég drykki ekki, þegar ég bjó í London. Fólki hefði fund­ist það svo skrítið. Það var ekk­ert eðli­legra en að fólk í mínum bransa fengi sér ketamín eða önnur furðu­leg vímu­efni á þriðju­degi,“ segir Saga og Ísak tekur við: „Við Saga höfum aldrei þurft vímu­gjafa til þess að skemmta okkur saman. Við tengj­umst í gegnum list­ina og höfum alltaf skapað eitt­hvað skemmti­legt saman þegar við hitt­umst. Saga fékk samt að taka þátt í rugl­inu á mér áður en ég varð edrú. Hún þurfti hálf­part­inn að halda á mér í gegnum þorp í sviss­nesku Ölpunum þegar ég drakk of mikið og fann mig vaf­inn í teppi í ann­ar­legu ástandi í frægum kast­ala í Bret­landi eftir marga skandala. Það er til allrar guðs lukku liðin tíð,“ segir Ísak og meinar hvert orð.

„Við Saga höfum aldrei þurft vímu­gjafa til þess að skemmta okkur saman. Við tengj­umst í gegnum list­ina og höfum alltaf skapað eitt­hvað skemmti­legt saman þegar við hitt­umst.“

„Mér finnst það alltaf jafn­súr­eal­ískt að við, litla fátæka fólkið frá Íslandi, hafi verið í þessum aðstæðum með kónga­fólki,“ segir Saga en í þessu umrædda til­viki voru þau stödd í Sviss að farða og mynda fyrir brúð­kaup í kon­ungs­fjöl­skyldu.

Myndlistarkonudraumar og barneignir

Talið berst að fram­tíð­inni. Saga seg­ist vera búin að gera það sem hana lang­aði mest til í ljós­mynda­brans­anum. Eftir að hún útskrif­að­ist úr skóla í London vann hún þar myrkr­anna á milli til að sanna sig. Og hún gerði það heldur betur. Hún kom nafni sínu á blað og meira en það þegar hún vann fyrir tíma­rit á borð við Dazed and Confused og stór­fyr­ir­tæki eins og Nike og Topshop.

„Ég gerði allt sem mig lang­aði að gera og varð síðan þreytt á því. Þótt það sé líka gaman þá langar mig til að gera hluti sem næra mig meira. Að skapa frá eigin hjarta, ef ég má orða það þannig.“

Saga tók nýverið á leigu stúdíó í mið­bænum þar sem hún mun njóta sín í mynd­list­ar­konu­hlut­verk­inu.

Eins og fyrr segir býr Ísak í London með James, kærast­anum sínum. Hann flýgur heims­horna á milli og farðar fal­leg­ustu konur heims, á borð við Cöru Del­evingne og Katy Perry. Hann er aug­ljós­lega ást­fang­inn upp fyrir haus og börn eru á dag­skrá, en fyrst lít­ill og sætur hvolpur.

Myndir / Saga Sig­urð­ar­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina