Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þúsund bílum fargað í hverjum mánuði

Þúsund bílum fargað í hverjum mánuði
bílar end­ur­vinnsla bíla­kirkju­garður bíl­hræ

Sífellt fleiri bíla­eig­endur kjósa að farga bif­reiðum sínum. Færst hefur í vöxt að fólk skilji núm­era­lausa bíla eftir á fyr­ir­tækja­lóðum, á bíla­stæðum og víða­vangi.

Æ fleiri bíla­eig­endur kjósa að farga bílum sínum frekar en að gera við þá sjálfir eða fara út í við­gerðir og við­hald. Samkvæmt upp­lýs­ingum Úrvinnslu­sjóðs hafa tæp­lega 9.000 bílar verið afskráðir á árinu. Það er um 25% aukn­ing frá sama tíma í fyrra. Rúmlega helm­ingur þeirra bíla sem eru afskráðir á Íslandi fara í end­ur­vinnslu hjá fyr­ir­tæk­inu Hringrás.

Daði Jóhann­es­son, fram­kvæmda­stjóri Hringrásar, segir tals­vert fleiri bílum fargað nú en á síð­asta ári. Það sé álíka mikil aukn­ing og var á milli áranna 2016-2017. „Mér sýn­ist sama aukn­ing vera að end­ur­taka sig nú á þessu ári,“ segir Daði, en flestir bílar sem koma til Hringrásar eru frá Vöku eða á bil­inu 300-400 á mán­uði. Bíla­parta­sölur koma með það sem út af stendur auk þess sem fólk kemur með eigin bíla til förg­unar. „Bílarnir eru tæmdir af spilli­efnum, öllum vökva tappað af þeim og dekk og raf­geymar fjar­lægðir. Bílarnir eru press­aðir í böggla og eru síðan sendir í end­ur­vinnslu­stöðvar í Hollandi. Þar eru bíl­arnir settir í stóra kvörn, allir málmar aðgreindir og end­ur­unnir. Óend­ur­vinn­an­legt plast­efni úr bíl­unum er síðan notað sem elds­neyti til hús­hit­unar eða raf­orku­fram­leiðslu í Hollandi. Hjól­barðar sem Hringrás tekur á móti eru tættir niður og fluttir erlendis þar sem gúmmíið er end­ur­notað.“

Skilja eftir númeralausa bíla

Valdimar Har­alds­son ann­ast flutn­inga á öku­tækjum hjá Vöku og seg­ist hafa yfir­leitt nóg að gera við að ná í bíla út um allar koppa­grundir. Hann fari oftar en áður að fjöl­býl­is­húsum til að ná í núm­era­lausa bíla. Formenn hús­fé­laga séu þeir einu sem geta sent inn beiðni til Vöku um að láta fjar­lægja bíl­ana af sam­eign húsa og sífellt algeng­ara sé að þeir grípi til slíka úrræða.

Þá segir Valdimar líka hafa auk­ist að starfs­menn hjá hreins­un­ar­deildum bæj­ar­fé­laga hafi sam­band til að láta fjar­lægja núm­era­lausa bíla af götum, víða­vangi og á lóðum fyr­ir­tækja. Hann fari jafn­vel austur á Selfoss til að ná í bíla. „Það er alveg óhætt að segja að við tökum fleiri bíla en áður.“ Hann kveðst ekki hafa tölu­legar upp­lýs­ingar um aukn­ing­una en segir til­vikin mun fleiri en áður.

Leggja ekki í viðgerðir

Spurður hvernig bílar þetta séu segir Valdimar þetta vera bíla frá um 1990 eða yngri, allt frá rusli og upp í bíla í ágætis ásig­komu­lagi með fulla skoðun. „Í þeim til­vikum er fólk búið að kaupa sér nýjan bíl en hefur ekki tíma til að setja hinn í sölu eða því finnst það ekki borga sig að ráð­ast í kostn­að­ar­samar við­gerðir í ljósi þess hversu lágt verð er á not­uðum bílum í dag. Þótt eig­endur bíla komi akandi á bíl­unum til okkar og þeir líti sumir ágæt­lega út þá er ekki þar með sagt að þeir séu í stakasta lagi. Eig­and­inn hefur kannski verið búinn að borga 200 þús­und krónur í við­gerðir en þarf að leggja út 300 þús­und til við­bótar til að koma honum í öku­hæft ástand síðar. Í þeim til­vikum kaupir fólk frekar annan bíl,“ segir Valdimar og getur þess að þegar komið er með bíl til afskrán­ingar og förg­unar fær bíl­eig­andi núm­era­plötur bíls­ins og greitt skila­gjald sem er 20.000 krónur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina