Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Flugfarþegar þurfa í sérstök viðtöl til að komast til Bandaríkjanna

Banda­rísk flug­mála­yf­ir­völd herða örygg­is­kröfur enn frekar.

Flugfarþegar þurfa í sérstök viðtöl til að komast til Bandaríkjanna

Að kröfu banda­rískra flug­yf­ir­valda (TSA) eru öll flug­fé­lög skyldug til þess að fram­kvæma örygg­is­skimun á far­þegum sem fljúga til Banda­ríkj­anna áður en þeir fara um borð sem felst í stuttum við­tölum þar sem far­þegar eru meðal ann­ars spurðir út í ferða­til­högun þeirra.

Þessi skimun hófst í Flugstöð Leifs Eiríks­sonar í Keflavík í októ­ber sl. og er enn unnið að inn­leið­ingu hennar. Þetta eru kröfur sem TSA setur á öll flug­fé­lög sem fljúga til Banda­ríkj­anna. Þetta fyr­ir­komu­lag hefur verið til staðar fyrir önnur svæði í heim­inum í nokkurn tíma og hefur nú verið inn­leitt fyrir öll félög.

„Þetta er krafa á flug­fé­lögin en ekki flug­völl­inn og það eina sem við gerum er að útvega pláss og aðstöðu til handa þeim sem fram­kvæma við­tölin. Ef þörf er á aðstoðum við flug­fé­lögin með flæðið á far­þeg­unum,” segir Guðjón Helgason, upp­lýs­inga­full­trúi ISAVIA, í sam­tali við Mannlíf.

Talsmenn íslensku flug­fé­lag­anna WOW air og Icelandair stað­festu í sam­tali við Mannlíf að skimun væri hafin á far­þegum sem fljúga beint frá Íslandi og að unnið væri að því að inn­leiða slík við­töl fyrir tengiflugs­far­þega þar sem það ætti við.

Segja engum gögnum safnað um farþega

„WOW air hefur falið sviss­nesku örygg­is­fyr­ir­tæki, sem hefur ára­tug­a­reynslu af flug­ör­ygg­is­málum, yfir­um­sjón með fram­kvæmd verk­efn­is­ins bæði hér heima og á erlendum flug­völlum,“ segir Svanhvít Frið­riks­dóttir, fram­kvæmda­stjóri sam­skipta­sviðs WOW air. Hún útskýrði jafn­framt að í við­töl­unum sé beitt spurn­inga­að­ferð sem sam­þykkt hefur verið af banda­rískum yfir­völdum og tók fram að engum gögnum sé safnað um flug­far­þega félags­ins.

„WOW air hefur falið sviss­nesku örygg­is­fyr­ir­tæki, sem hefur ára­tug­a­reynslu af flug­ör­ygg­is­málum, yfir­um­sjón með fram­kvæmd verk­efn­is­ins bæði hér heima og á erlendum flug­völlum.“

Icelandair hefur einnig byrjað slíka við­tals­skimun á far­þegum sem hefja ferð sína í Keflavík. „Í nóv­em­ber mun Icelandair einnig láta taka við­töl við far­þega sem hefja ferð sína í Evrópu eða Bret­landi og skipta síðan um vél í Keflavík áfram til Norður- Ameríku. Viðtöl við þessa tengifar­þega munu að mestu vera fram­kvæmd í Evrópu og Bret­landi en þar sem það er ekki hægt verða við­tölin fram­kvæmd í Keflavík. Viðtöl við far­þega sem hefja ferð sína í Keflavík fara fram í inn­rit­un­ar­sal fyrir þá sem eru með inn­rit­un­ar­far­angur en við örygg­is­leit fyrir þá sem ekki eru með inn­rit­un­ar­far­angur. Viðtöl við tengifar­þega í Keflavík munu ann­að­hvort fara fram fyrir aftan landa­mæri eða við hlið,“ segir Lea Gests­dóttir Gayet, almanna­teng­ill hjá Icelandair, og bætir við að félagið kaupi þá þjón­ustu sem felist í að þessar örygg­is­kröfur séu upp­fylltar. Þessi við­bót hafi því ekki áhrif á starfs­manna­veltu félags­ins.

Unnið að því að fyrirbyggja tafir

TSA krefst sér­stakrar þjálf­unar starfs­fólks sem fram­kvæmir við­tölin svo þau geti náð mark­miðum þess­ara örygg­is­krafna. Að sögn Leu hefur slík þjálfun þegar farið fram hjá þeim sem sinna þessum störfum fyrir hönd Icelandair.

„Ákveðinn kostn­aður fylgir hverju verk­efni en öll flug­fé­lög sem fljúga til Banda­ríkj­anna verða að fylgja þessu eftir,“ segir Lea og bætir við: „Þessi við­töl tryggja enn frekar öryggi far­þega um borð.“

Þá leggur Lea áherslu á að í sam­starfi ISAVIA hafi flug­fé­lagið unnið að því að koma í veg fyrir að far­þegar til ann­arra svæða en Banda­ríkj­anna verði ekki fyrir töfum vegna við­tal­anna og almennar tafir á brott­förum. Jafn­framt sé reynt að tryggja að flæði innan vall­ar­ins sé ekki truflað.

Þegar flug­fé­lög í Evrópu og Asíu inn­leiddu þessar sömu breyt­ingar beindu þau þeim til­mælum til far­þega að mæta tím­an­lega á flug­völl­inn til að fyr­ir­byggja tafir, allt frá 90 mín­útum upp í þrjár klukku­stundir fyrir brott­för. Nú þegar er mik­ill erill á álags­tímum í Leifs­stöð og á næstu vikum mun koma í ljós hvort og þá hvaða áhrif þessar nýju reglur hafa á brott­far­ar­tíma frá Keflavík.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina