Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Segja „stórundarlegt költ“ stjórna hamingjuísbúð

Tveir fyrrum starfs­menn kaffi­hús­ins og ísbúð­ar­innar Joylato við Njáls­götu 1, báðir erlendir rík­is­borg­arar, segja farir sínar ekki sléttar í sam­tali við blaða­mann Mannlífs. Þeir segj­ast ekki hafa fengið laun sam­kvæmt kjara­samn­ingum og annar þeirra fékk aðeins stöku vasa­pen­inga úr sjóðs­vél versl­un­ar­innar. Þá hafi rekstr­ar­að­ilar þrýst á starfs­menn­ina um að stunda hug­leiðslu og skír­lífi.

Segja „stórundarlegt költ“ stjórna hamingjuísbúð
|
Versl­unin teng­ist Sri Chinmoy-hreyf­ing­unni á Íslandi en hún var stofnuð í jan­úar 1974 og byggir á heim­speki and­lega leið­tog­ans Sri Chinmoy. Hann setti m.a. á fót heims­ein­ing­ar­frið­ar­hlaupið árið 1987. Á vegum mið­stöðv­ar­innar er stunduð hug­leiðsla og starf­rækt Sri Chinmoy-mara­þonið sem árlega stendur fyrir 5 km hlaupi. Myndir / Unnur Magna

Starfs­menn­irnir segja jafn­framt að flest starfs­fólk fyr­ir­tæk­is­ins komi víðs vegar að úr heim­inum og til­heyri alþjóða­hreyf­ingu Sri Chinmoy og fái aðeins greidda vasa­pen­inga. „Þetta er eins og eitt­hvað stór­und­ar­legt költ, og fólkið kallar sig læri­sveina Sri Chinmoy,“ segir annar tveggja við­mæl­enda Mannlífs, kona á þrí­tugs­aldri.

Konan sem starf­aði hjá fyr­ir­tæk­inu árið 2016 seg­ist hafa fengið vinn­una fyrir til­viljun. Hún var ekki með íslenska kenni­tölu og þar af leið­andi ekki banka­reikn­ing heldur. Hún segir yfir­mann sinn hafa lofað að aðstoða hana við að leysa úr því „Ég fékk starfs­þjálfun hjá einum læri­svein­inum en eftir aðeins tvær vikur í starfi þurfti eig­and­inn að fara til útlanda og fól mér að bera ábyrgð á rekstr­inum á meðan. Ég sá um að panta vörur, sjá um upp­gjör og manna­ráðn­ingar. Eig­and­inn var nán­ast aldrei við,“ segir hún.

Konan seg­ist hafa samið um 1500 kr. í tíma­kaup en það hafi síðan hækkað upp í 1750 kr. þegar ábyrgð hennar jókst. Hún hafi hins vegar lítið fengið af þessum launum, og aldrei launa­seðla. „Það stóðst ekk­ert, ég fékk aldrei kenni­tölu og það var aldrei gert upp við mig. Ég fékk stöku sinnum vasa­pen­inga úr kass­anum, kannski 10 þús­und krónur á viku.“

Segja skír­lífi skil­yrði
Þegar þarna var komið sögu var konan á hrak­hólum með hús­næði og hafði ekki efni á húsa­leigu. Hún var þá nýbúin að ráða landa sinn og kunn­ingja, karl­mann á þrí­tugs­aldri. Hann leigði litla íbúð og skaut skjóls­húsi yfir kon­una. Maðurinn hefur svip­aða sögu að segja. „Læri­svein­arnir þurftu að vakna fyrir klukkan sex, hlaupa dag­lega, hug­leiða í hug­leiðslu­stöð­inni og einu sinni á dag þurfti fólkið að biðja eða hug­leiða við mynd af Sri Chinmoy. Kynlíf og náin sam­bönd voru bönnuð og ég mátti t.d. ekki vera einn í eld­hús­inu með konu,“ segir hann og bætir við að þau hafi heldur ekki mátt hlusta á aðra tón­list en frá Sri Chinmoy.

„Það stóðst ekk­ert, ég fékk aldrei kenni­tölu og það var aldrei gert upp við mig. Ég fékk stöku sinnum vasa­pen­inga úr kass­anum, kannski 10 þús­und krónur á viku.“

„Skatt­inum hafði aldrei verið skilað“
Starfs­menn­irnir fyrr­ver­andi segj­ast hafa fundið fyrir miklum þrýst­ingi að ganga til liðs við hreyf­ing­una. „Kona úr költ­inu tal­aði yfir hausa­mót­unum á okkur í tvo tíma á dag um hversu frá­bært lífið væri innan hreyf­ing­ar­innar og eilíf ham­ingja. Hún hélt því meira að segja fram að alnæmi væri ekki til,“ útskýrir mað­ur­inn, sem er sam­kyn­hneigður og seg­ist hafa orðið fyrir stöð­ugu aðkasti vegna þess. Hann seg­ist einnig eiga inni laun hjá fyr­ir­tæk­inu. „Ég fékk seint og illa borgað, engin yfir­vinna var greidd þrátt fyrir að hafa unnið allt að 12-14 tíma á dag. Það mesta sem ég fékk greitt fyrir einn mánuð voru 176 þús­und. Ég gerði ráð fyrir því að afgang­ur­inn færi í skatt en þegar ég fyllti út skatta­skýrsl­una mína tók ég eftir því að skatt­inum hafði aldrei verið skilað.“

Fólkið leit­aði á skrif­stofu Eflingar stétt­ar­fé­lags ásamt þriðja aðila á sínum tíma en þá var ekk­ert hægt að gera fyrir þau þar sem þau voru hvorki með launa­seðla né ráðn­inga­samn­inga.
Mannlíf skoð­aði árs­reikn­inga þriggja félaga sem tengj­ast rekstri eig­anda ísbúð­ar­innar, Rúnari Páli Gígja, en fjórða félagið var stofnað í ágúst á þessu ári og því liggja fjár­hags­upp­lýs­ingar þess ekki fyrir. Félagið Segðu minna gerðu meira ehf., sem annar við­mæl­andi seg­ist hafa fengið greidd laun frá, skil­aði tekjum upp á 20 millj­ónir króna árið 2016 og var hagn­aður þess ein og hálf milljón. Launa­gjöld þess námu 4,5 millj­ónum króna sem sam­svara árs­launum eins starfs­manns. Það félag sem ber sama nafn og ísbúðin, Joylato ehf., tap­aði 12 millj­ónum króna árið 2016 og var eigið fé þess nei­kvætt um 15 millj­ónir. Þar kemur fram að útgjöld vegna launa námu 3 millj­ónum. Þriðja félagið heitir svo Fast­eigna­fé­lag MVB, áður Mamma veit best, en sam­kvæmt árs­reikn­ingi fer engin starf­semi þar fram.

Ekki náð­ist í Rúnar Pál við vinnslu frétt­ar­innar en Tara Jens­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Mamma veit best, vísar ásök­unum starfs­mann­anna fyrr­ver­andi á bug. Sagði hún að allir starfs­menn væru á launa­skrá og að svo hefði alltaf verið. Aðspurð út í ofan­greinda árs­reikn­inga þar sem launa­kostn­aður er hverf­andi sagði hún að um allt annan rekstur væri að ræða en í dag og að þessi félög væru hætt rekstri.

Efling mætti á stað­inn
María Lóa Frið­jóns­dóttir, sér­fræð­ingur ASÍ í vinnu­staða­eft­ir­liti, stað­festir í sam­tali við Mannlíf að ábend­ingar hafi borist varð­andi ísbúð­ina Joylato og heilsu­vöru­versl­un­ina Mamma veit best og að farið hafi verið í eft­ir­lit í fyr­ir­tækin.

„Ábend­ing­arnar snú­ast aðal­lega um að þarna sé reglu­lega ráðið inn fólk erlendis frá, fólk sem ætti í raun að sækja um atvinnu- og dval­ar­leyfi en það komi á ferða­mannapassa og í einu til­felli kom starfs­maður á náms­mannapassa. Málið er til skoð­unar hjá Eflingu,“ útskýrir María Lóa.

Hjá Eflingu feng­ust þau svör að full­trúar á þeirra vegum hafi farið í eft­ir­lit í umrædd fyr­ir­tæki fyrir um mán­uði síðan. „Ég var með í fyrsta eft­ir­lit­inu sem þarna fór fram og það var slá­andi að starfs­fólkið virt­ist ekk­ert með­vitað um sín rétt­indi,“ segir María Lóa og bætir við að stétt­ar­fé­lögin séu háð því að fólk leiti til þeirra eftir leið­rétt­ingu. „Stétt­ar­fé­lagið hefur ekki heim­ild til að fara af stað með slík mál að eigin frum­kvæði.“

Starfs­fólk fékk upp­fræðslu og bæk­linga um sín rétt­indi og kjör þegar eft­ir­lits­að­ilar létu sjá sig og var fólkið hvatt til þess að leita til stétt­ar­fé­lags­ins til að fá leið­rétt­ingu ef það teldi á sér brotið.
María Lóa nefnir sér­stak­lega eitt atriði sem henni þykir alvar­legt: „Við fengum ábend­ingu um a.m.k. eina mann­eskju sem kom til lands­ins til að vinna hjá þessum aðilum, vænt­an­lega á ferða­mannapassa; vann í ákveð­inn tíma og fór svo aftur til baka. Hún ætti vit­an­lega að fá íslenska kenni­tölu og borga skatta og gjöld hér á landi,“ segir hún og bætir við að það sé orðin vinnu­regla í svona til­vikum að skatta­yf­ir­völdum og Vinnu­mála­stofnun sé gert við­vart.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina