Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Á engan hátt einfalt að segja frá

Bryn­hildur Yrsa Valkyrja Guð­munds­dóttir hefur orðið fyrir kyn­ferð­is­legu ofbeldi nokkrum sinnum yfir ævina. Hún segir að það hafi aldrei komið til greina að segja strax frá.

„Þetta eru fleiri sögur en ég kæri mig að hugsa um. Það er erfitt að rifa þetta upp. Það á samt við um allar mínar sögur að ekki í eitt ein­asta skipti kom til greina að ræða þetta við ein­hvern alveg í blá­byrjun. Ég treysti mér ekki til að ræða þetta við mitt nán­asta fólk, hvað þá að fara með þetta eitt­hvað annað,“ segir Bryn­hildur sem varð meðal ann­ars fyrir hópnauðgun á Þjóð­há­tíð í Eyjum þegar hún var tví­tug, árið 1997. „Það var bara þungt skammar­ský yfir mér í langan tíma eftir á. Á meðan ég var að reyna að fóta mig eftir þetta og átta mig á hvað hafði gerst þá var ég engan veg­inn til­búin til að fara til lög­reglu eða upp á bráða­mót­töku. Ég var bara ungur kjáni á þessum tíma og þar var ekk­ert í umræð­unni hvað maður ætti að gera ef svona kæmi fyrir. Þannig að það var bara ekki inni í mynd­inni.“

„Ég treysti mér ekki til að ræða þetta við mitt nán­asta fólk, hvað þá að fara með þetta eitt­hvað annað.“

Eftir því sem umræðan um kyn­ferð­is­legt ofbeldi jókst í sam­fé­lag­inu með árunum fór Bryn­hildur að átta sig á hvar hún gæti leitað sér hjálpar. „Ég fór smátt og smátt að sjá hvert ég gæti leitað. En innri til­finn­ingin breyt­ist ekki. Maður var svo tættur.“

Bryn­hildur segir sögu sína í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Það tók Bryn­hildi mörg ár að finna styrk innra með sér til að segja frá því ofbeldi sem hún varð fyrir. „Ég þurfti að vinna mikið í mínum málum áður en ég þorði að segja frá. Ég þurfti fyrst að finna út hverjum ég gæti treyst og hvar ég gæti fengið stuðn­ing. Maður er ekki til­bú­inn að segja hverjum sem er frá.“

Bryn­hildur segir að þungu fargi hafi verið af henni létt þegar hún loks­ins opn­aði sig um kyn­ferð­is­lega ofbeldið sem hún hefur orðið fyrir. „Það breytti lífi mínu að segja frá. Ég var komin í and­legt þrot og fann að það var eitt­hvað meiri­háttar mikið að trufla mig. Og ég vissi undir niðri að það voru þessi kyn­ferð­is­brot sem voru rótin að vand­anum. Ég þurfti bara að gera eitt­hvað eða halda áfram í þessu dap­ur­leg lífi sem ég lifði.“

Bryn­hildur segir það ekki hafa verið auð­velt að takast á við vanda­málið. Hún fór í Stígamót. „Í upp­hafi treysti ég fólki bara fyrir litlu broti af minni sögu. Það var ekk­ert auð­velt að fara upp á Stígamót og tala við ein­hvern sem ég þekkti ekki. En smám saman gat ég sagt meira og meira.“

Mundi ekkert í heila viku

Bryn­hildur tekur fram að hún hafi verið hrædd við að segja frá ofbeld­inu sem hún lenti í en hún kveðst einnig hafa verið í afneitum og náð að loka á vondar minn­ingar. „Í langan tíma barði ég sjálfa mig niður fyrir að hafa lent í kyn­ferð­is­legu ofbeldi og oftar en einu sinni. Ég spurði sjálfa mig af hverju ég gæti nú ekki komið mér út þessum aðstæðum, af hverju ég fraus alltaf. Mér leið eins og ég væri aum­ingi sem ekki gæti staðið sem sjálfri mér. Ég ýtti þessu frá mér og fannst ég mislukkuð,“ útskýrir Bryn­hildur.

„Í langan tíma barði ég sjálfa mig niður fyrir að hafa lent í kyn­ferð­is­legu ofbeldi og oftar en einu sinni.“

Hún bætir við að hún hafi upp­lifað hversu öfl­ugur manns­heil­inn geti verið þegar mikið bjátar á. „Eftir eitt áfallið þá mundi ég ekk­ert hvað gerð­ist í heila viku eftir á. Ég rank­aði hrein­lega við mér viku síðar og man ekk­ert hvað gerð­ist í milli­tíð­inni, frá því að árásin átti sér stað og þar til ég rank­aði við mér nokkrum dögum síðar, undir stýri í umferð­inni.“ Hún líkir því ástandi við autopilot-still­ingu á far­ar­tæki. „Í þessu til­felli þá gat and­lega hliðin greini­lega ekki tek­ist á við þetta. Það var bara skellt í lás.“

Ekki hægt að kenna brotaþolum að bregðast rétt við

Bryn­hildur við­ur­kennir að hún reið­ist þegar hún verður vör við að fólk sé að undra sig á af hverju brota­þolar geti ekki til­kynnt kyn­ferð­is­legt ofbeldi strax. „Það er bara á engan hátt ein­falt að segja frá. Ég verð alveg vör við háværar raddir sem segi að nú þurfi bara að kenna fólki að bregð­ast við. Það er þessi umræða í sam­fé­lag­inu þar sem karl­menn eru nú aldeilis búnir að finna lausn­ina, það þarf bara að kenna ungum stúlkum að láta í sér heyra og standa með sjálfum sér. En þetta virkar ekk­ert svona. Það er ekki hægt að þjálfa fólk í svona lagað.“

Bryn­hildur bendir svo á að í lang­flestum til­fellum er árásin gerð af ein­hverjum sem brota­þoli þekkir. „Og þá eru fyrstu við­brögð ekk­ert að rjúka af stað og segja frá. Maður er bara í mik­illi flækju.“

Erfitt en mikilvægt að taka slaginn

Eftir að Bryn­hildur fór að opna sig um ofbeldið sem hún hefur orðið fyrir á lífs­leið­inni hefur hún reynt að tala opin­skátt um reynslu sína í von um að hjálpa öðrum. „Ég er þannig and­lega stemmd núna að mér líður eins og ég skuldi sjálfri mér að taka þátt í þess­ari bar­áttu, eftir að hafa unnið með þessi áföll í fjölda­mörg ár. Ef ég get hjálpað ein­hverjum, þó það sé ekki nema ein mann­eskja, í að finna sinn vilja til að takast á við það sem við­kom­andi hefur lent í, þá er ég til­búin til að taka slag­inn. Ég hefði nefni­lega vilja hafa svona umræðu í gangi þegar ég var ung. Maður las alveg eitt og eitt við­tal á sínum tíma við fólk sem hafði orðið fyrir nauðgun en það var alltaf undir nafn­leynd. Og maður drakk þetta alveg í sig. En það sem vant­aði í þær frá­sagnir voru svörin; hvað gerði við­kom­andi og hvernig vann þessi ein­stak­lingur sig út úr áfall­inu. Í dag er fók­userað á úrræðin og það er frá­bær breyt­ing.“

„Ég hefði nefni­lega vilja hafa svona umræðu í gangi þegar ég var ung. Maður las alveg eitt og eitt við­tal á sínum tíma við fólk sem hafði orðið fyrir nauðgun en það var alltaf undir nafn­leynd. “

Bryn­hildur við­ur­kennir að það geti verið krefj­andi að tjá sig opin­skátt um ofbeldið sem hún hefur orðið fyrir en að það sé mik­il­vægt að berj­ast fyrir mál­stað­inn. „Þegar efa­semd­arraddir heyr­ast, þar sem fólk dregur frá­sagnir brota­þola í efa og gefur í skyn að það sé ekk­ert mál að segja frá, þá er mik­il­vægt að taka slag­inn og hjálp­ast að. Þetta er svo­lítið eins og boð­hlaup, við verðum að hjálp­ast að. Stundum líður mér eins og ég sé bara að öskra út í vind­inn en á sama tíma vill maður ekki að bar­átt­unni sé tapað.“

Hún von­ast til að hjálpa öðrum með sínu fram­lagi til umræð­unnar um kyn­ferð­is­legt ofbeldi og áhrif þess þó að það séu ekki allir til­búnir að hlusta. „Ég tek alveg eftir að fólk er ekki alltaf til­búið að heyra mig tala um þetta. Ég hef alveg verið beðin um að hætta að tala um þessa hluti. Fólk er bara mistil­búið. En eitt það versta sem fólk getur gert þegar brota­þoli opnar sig um kyn­ferð­is­legt ofbeldi er að reyna að eyða umræð­unni og snúa sam­tal­inu í aðra átt. Það er auð­vitað ekki hægt að stjórna því hvernig fólk bregst við en það er ágætt að hafa þetta í huga.“

Að lokum seg­ist Bryn­hildur vera bjart­sýn og ánægð með hvernig umræðan um kyn­ferð­is­legt ofbeldi hefur þró­ast á und­an­förnum árum. „Umræðan er að opn­ast en við eigum enn þá langt í land. Mér finnst eins og við séum í lyftu á leið á efstu hæð. Nú erum við erum komin á aðra hæð en bygg­ingin er tólf hæðir. Við erum komin af stað en það er hell­ingur eftir.“

Mynd / Hákon Davíð

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

InnlentMetoo

Tomasz þver­tekur fyrir ásak­anir um lík­am­legt og kyn­ferð­is­legt ofbeldi

Tomasz Þór Veruson seg­ist aldrei hafa beitt fyrr­ver­andi kærustur sínar lík­am­legu eða kyn­ferð­is­legu ofbeldi, í aðsendri grein sem hann skrifar á Vísi. Í byrjun árs komu fram ásak­anir tveggja fyrr­ver­andi kærasta á hendur honum. Önnur þeirra var Vilborg Arna Giss­ur­ar­dóttir, pólfari. Ásakanir á hendur Tomaszi komu fyrst fram í hópi áhuga­kvenna um fjalla­mennsku og úti­vist. Í hópnum, sem ber heitið...
InnlentMetoo

The victim must be consulted with: „Very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility“

„There are very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility. In the instances that I can recall, in the current MeToo-movem­ent, it has usu­ally been done quite clumsily. For example, it has not been done in consultation with the victims and people have not taken full responsi­bility,“ says Gabríela Bryndís Ernu­dóttir, psychologist and chairwoman for the activist organization Líf án...
InnlentMetoo

Gylfi Þór hættur hjá Everton

Samn­ingur knatt­spyrnu­manns­ins Gylfa Þórs Sig­urðs­sonar við enska knatt­spyrnu­fé­lagið Everton er runn­inn út. Samn­ing­ur­inn verður ekki end­ur­nýj­aður. Gylfi Þór hefur þó ekki spilað fyrir liðið síðan hann var hand­tek­inn af breskum yfir­völdum síð­asta sumar, vegna gruns um að hafa brotið gegn ólög­ráða ein­stak­lingi. Þetta kemur fram hjá Vísi. Frá því Gylfi Þór var hand­tek­inn hefur lög­regla rann­sakað mál hans. Hann hefur...
InnlentMetoo

Skjáskot af kæru á hendur Ingólfi vegna lík­ams­árásar: „Hafi Ingólfur þá kýlt hana í and­litið“

Skjáskot af bréfi frá Lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem stað­fest er kæra á hendur Ingólfi Þór­ar­ins­syni, hefur verið birt á sam­fé­lags­miðlum. Um er að ræða kæru vegna lík­ams­árásar á hendur konu. Skjá­skotið, sem var upp­haf­lega birt á Twitter, sýnir bréf frá lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, dag­sett þann 4. maí síð­ast­lið­inn. Í því er svar emb­ætt­is­ins við fyr­ir­spurn frá 3. maí þar...

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi