Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Tomasz þvertekur fyrir ásakanir um líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi

Tomasz þvertekur fyrir ásakanir um líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi
Tomasz Þór Veruson

Tomasz Þór Veruson seg­ist aldrei hafa beitt fyrr­ver­andi kærustur sínar lík­am­legu eða kyn­ferð­is­legu ofbeldi, í aðsendri grein sem hann skrifar á Vísi. Í byrjun árs komu fram ásak­anir tveggja fyrr­ver­andi kærasta á hendur honum. Önnur þeirra var Vilborg Arna Giss­ur­ar­dóttir, pólfari.

Ásakanir á hendur Tomaszi komu fyrst fram í hópi áhuga­kvenna um fjalla­mennsku og úti­vist. Í hópnum, sem ber heitið Fjallastelpur – umræðu­hópur um úti­vist á Íslandi fyrir konur, steig fyrr­ver­andi kærasta hans fram í pistli og greindi þar frá ofbeldi sem hún sagð­ist hafa orðið fyrir af hálfu Tomazsar. Eftir það sagð­ist Vilborg Arna í færslu á Facebook að hún hafi verið í sömu sporum og konan, en þau Vilborg og Tomasz voru í ást­ar­sam­bandi um tíma.

„Þyngsti bak­pok­inn og hæsta fjallið að klífa. Heim­il­is­of­beldi og hvers kyns ofbeldi í öllum sínum birt­ing­ar­myndum er þungt farg að bera fyrir þolendur slíkra mála, fjöl­skyldur og alla þá sem tengj­ast á einn eða annan hátt,“ skrif­aði Vilborg í færslu sem hún birti um málið.

„Af hverju að skrifa núna?“ „Til hvers að segja frá og leið­rétta?“ „Nú þegar rykið er sest og umræðan fallin í gleymsku.“ 

Þetta sagði ég þegar ég var hvattur til að stíga fram og nota rödd­ina sem við öll höfum. Svarið er þó ekki flókið. Á meðan árasir, ofbeldi, sögu­sagnir og lygar grass­era í minn garð fæ ég ekki rými til að halda áfram með líf mitt. Og hingað erum við komin,“ segir Tomasz í upp­hafi pistils­ins á Vísi.

Gekkst við ásökunum

Eftir að ásak­an­irnar komu fram hætti hvert fyr­ir­tækið á fætur öðru sam­starfi sínu við Tomasz og fyr­ir­tæki hans. Hann gekkst við ásök­un­unum fljót­lega eftir að Vilborg Arna steig fram.

„Und­an­farna daga hefur verið fjallað um mig og fyrri sam­bönd mín á sam­fé­lags- og frétta­miðlum vegna and­legs ofbeldis og óvið­eig­andi fram­komu af minni hálfu í garð ást­vina. Ég gengst við þeim og á mér þar engar máls­bætur,“ segir í þeirri færslu Tomaszar.

Í þeirri grein sem hann ritar á Vísi í dag þver­tekur hann hins vegar fyrir að hafa beitt kon­urnar lík­am­legu ofbeldi. Hann seg­ist hafa beðist afsök­unar á and­legu ofbeldi en öðru ekki.

„Ég skil­greindi fram­hjá­hald og óheið­ar­lega fram­komu mína í garð ást­vina sem and­legt ofbeldi og gerð­ist sekur um það í báðum sam­böndum. Ég baðst afsök­unar á því. Ég baðst ekki afsök­unar á lík­am­legu ofbeldi, kyn­ferð­is­of­beldi eða kúg­un­ar­til­burðum enda er ég ekki sekur um neitt slíkt.“

Tomasz seg­ist telja nauð­syn­legt að hann útskýri mál sitt betur, þar sem bæði blaða­menn og almenn­ingur hafi ber­sýni­lega skilið játn­ingu hans á þann veg að hann væri þar með að gang­ast við öllum þeim ásök­unum sem bornar hefðu verið fram.

Lýsir framhjáhöldum og rifrildum

Tomasz lýsir sam­bönd­unum við kon­urnar tvær í löngu máli í pistli sínum. Hann lýsir sam­band­inu við Vilborgu þannig að skipst hafi á skin og skúrir. Hann segir að eftir fram­hjá­hald af hans hálfu og tíð rifr­ildi hafi þau slitið sam­bandi sínu og sam­búð árið 2017. Eftir það seg­ist hann hafa starfað hjá ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki Vil­borgar, en þá hafi allt verið gott þeirra á milli og vin­átta ríkj­andi. Sam­starfið hafi gengið vel allt þar til undir lokin, í lok árs 2020, þegar sam­skipti voru orðin stirð og rifr­ildi um fjár­mál tíð. Tomasz seg­ist hafa geng­ist í sjálf­skuld­ar­á­byrgð fyrir fyr­ir­tækið til þess að tryggja fjár­hags­legt öryggi þess. Hann segir það hafa tekið langan tíma að losna undan því eftir að sam­starf­inu lauk og lýsir því einnig að illa hafi gengið að inn­heimta ógreidd laun.

Tomasz lýsir sam­band­inu við hina kon­una, sem hófst eftir að sam­band­inu við Vilborgu lauk, þannig að þau hafi þegar öllu var á botn­inn hvolft ekki átt sam­leið. Sam­bandið hafi byrjað afar vel en fljót­lega hafi tekið að halla undan fæti. Um afar óheil­brigt sam­band hafi verið að ræða.

Ásakanir um ofbeldi

Í færsl­unni sem konan skrif­aði á Facebook í byrjun árs sakar hún Tomasz um and­legt ofbeldi og á tímum bæði lík­am­legt og kyn­ferð­is­legt. Hún segir hann sífellt hafa sakað sig um fram­hjá­hald, hann hafi fylgst með henni á sam­fé­lags­miðlum og ekki viljað að hún færi í vinnu­ferðir. Hún segir hann reglu­lega hafa hótað sjálfs­vígi ef hann var óánægður með eitt­hvað. Hún lýsir því að hafa ekki mátt birta myndir af Tomaszi á sam­fé­lags­miðlum, en hún hafi seinna kom­ist að því að það hafi verið vegna þess að hann átti í sam­böndum við aðrar konur sem þau þekktu bæði úr fjalla­sam­fé­lag­inu. Hún seg­ist hafa passað að gera allt rétt og eftir hans höfði til þess að halda honum góðum.

Tomasz segir kon­una sífellt hafa sakað hann og Vilborgu um að eiga í leyni­legu ást­ar­sam­bandi, þar sem þau störf­uðu enn saman. Hann segir þau hafa verið ótrú hvort öðru sem leitt hafi til van­trausts á báða bóga. Sambandi þeirra hafi síðan lokið árið 2019.

„Frá þeim tíma og allt til dags­ins í dag hef ég aldrei hitt hana og aðeins einu sinni talað við hana í síma, þegar hún hringdi í mig um miðja nótt um haustið sama ár,“ segir hann í pistl­inum.

„Sögurnar um þetta fyrra sam­band mitt dreifð­ust hratt og voru í umferð allt til jan­úar á þessu ári. Eyrún sá um að segja frá og ég sá um að stað­festa. Hef ég ávallt geng­ist við þeim. Á þeim tíma hefur þó aldrei verið minnst á það ofbeldi sem ég á að hafa beitt og er lýst með jafn ítar­legum hætti og raun ber vitni í umræddri Facebook færslu hennar í jan­úar á þessu ári.“

Segir færsluna afbökun á sannleikanum

Um færsl­una á Facebook segir hann eft­ir­far­andi:

„Sagan er að nokkru leyti afbökun á sann­leik­anum og að sumu leyti hrein og klár lygi. Lögmaður minn hefur gefið höf­undi frá­sagn­ar­innar tæki­færi til þess að leið­rétta hana en hún hefur ekki brugð­ist við. Ég hef íhugað að fara í meið­yrða­mál en þar sem dóms­mál eru tíma­frek hef ég ákveðið að byrja á því að koma sjálfur á fram­færi leið­rétt­ingu.“

Tomasz þver­tekur fyrir að hann hafi hrökkl­ast úr starfi leið­sögu­manns hjá tveimur fyr­ir­tækjum, líkt og kom fram í færslu kon­unnar.

„Ég starf­aði út tím­ann minn hjá Ferða­fé­lag­inu og lét af störfum eftir að verk­efni mínu lauk. Einnig hefur fram­kvæmda­stjóri félags­ins stað­fest það, að mér hafi ekki verið sagt upp störfum né að kvart­anir hafi nokkurn tím­ann borist honum eða félag­inu í minn garð.“

Segist aldrei hafa beitt líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi

Hvað varðar ásak­anir um ofbeldi segir Tomasz:

„Að lokum, ofbeldið. Ég er sak­aður um að hafa beitt and­legu-, lík­am­legu-, og kyn­ferð­is­legu ofbeldi. Eins og áður sagði þá hef ég skil­greint fram­hjá­hald mitt og óheið­ar­lega og meið­andi fram­komu mína í tengslum við það sem and­legt ofbeldi. Ég hef og mun ávallt gang­ast við því. Ég hef hins vegar aldrei beitt lík­am­legu ofbeldi eins og haldið er fram og þá hef ég heldur ekki beitt kyn­ferð­is­legu ofbeldi eða neytt við­kom­andi til að gera kyn­ferð­is­lega hluti með mér eins og haldið er fram. Þessar ásak­anir höfðu aldrei komið fram fyrr en í umræddri Facebook færslu.“

Lýsir miklu fjárhagslegu tjóni

Tomasz segir ásak­an­irnar hafa valdið sér og fyr­ir­tæki sínu miklu tjóni, enda hafi meiri­hluti þeirra sem skráðir hafi verið í verk­efni á árinu 2022 óskað eftir end­ur­greiðslu innan 48 klukku­stunda eftir að frá­sögnin var birt.

„Frá­sögnin sem birt var í fjöl­mennum hópi kvenna á Facebook til­einkuðum úti­vist end­aði á ósk um að snið­ganga mig sem og fyr­ir­tækið mitt fyrir fullt og allt. Hjá fyr­ir­tæk­inu störf­uðu fimm leið­sögu­menn, þrjár konur og tveir karl­menn sem átti nú að snið­ganga líka fyrir störf þeirra fyrir fyr­ir­tækið og tengsl þeirra við mig. Fagfólk sem hefur starfað af krafti og mik­illi hug­sjón við að byggja upp áhuga á úti­visti og fjalla­mennsku meðal Íslend­inga.“

Hann segir því fólki, ásamt við­skipta­vinum fyr­ir­tæk­is­ins hafa verið gefnir afar­kostir.

„Ég þurfti að leita aðstoðar fag­að­ila við að vinna úr fyrstu dög­unum eftir að færslan birt­ist þar sem ég vissi að ég gæti ekki gert það af sjálfs­dáðum. Gott fólk í heil­brigð­is­kerf­inu hjálp­aði mér gíf­ur­lega mikið og er ég því mjög þakk­látur,“ segir Tomasz.

Getur ekki gengist við ásökunum eða sögusögnum

„Ég hef sann­ar­lega mis­stigið mig í nánum sam­böndum og mun ég aldrei gera lítið úr því. Ég hef geng­ist við hegðun minni og trún­að­ar­bresti í garð ást­vina minna á þessum tíma og end­ur­tekið beðist afsök­unar og leitað mér aðstoðar fag­fólks. Ég get hins vegar ekki geng­ist við þeim ásök­unum eða sögu­sögnum sem nú ganga í skjóli #MeToo bylt­ing­ar­innar og ekki eru sannar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

InnlentMetoo

The victim must be consulted with: „Very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility“

„There are very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility. In the instances that I can recall, in the current MeToo-movem­ent, it has usu­ally been done quite clumsily. For example, it has not been done in consultation with the victims and people have not taken full responsi­bility,“ says Gabríela Bryndís Ernu­dóttir, psychologist and chairwoman for the activist organization Líf án...
InnlentMetoo

Gylfi Þór hættur hjá Everton

Samn­ingur knatt­spyrnu­manns­ins Gylfa Þórs Sig­urðs­sonar við enska knatt­spyrnu­fé­lagið Everton er runn­inn út. Samn­ing­ur­inn verður ekki end­ur­nýj­aður. Gylfi Þór hefur þó ekki spilað fyrir liðið síðan hann var hand­tek­inn af breskum yfir­völdum síð­asta sumar, vegna gruns um að hafa brotið gegn ólög­ráða ein­stak­lingi. Þetta kemur fram hjá Vísi. Frá því Gylfi Þór var hand­tek­inn hefur lög­regla rann­sakað mál hans. Hann hefur...
InnlentMetoo

Skjáskot af kæru á hendur Ingólfi vegna lík­ams­árásar: „Hafi Ingólfur þá kýlt hana í and­litið“

Skjáskot af bréfi frá Lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem stað­fest er kæra á hendur Ingólfi Þór­ar­ins­syni, hefur verið birt á sam­fé­lags­miðlum. Um er að ræða kæru vegna lík­ams­árásar á hendur konu. Skjá­skotið, sem var upp­haf­lega birt á Twitter, sýnir bréf frá lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, dag­sett þann 4. maí síð­ast­lið­inn. Í því er svar emb­ætt­is­ins við fyr­ir­spurn frá 3. maí þar...
InnlentMetoo

Þögg­un­ar­samn­ingar voru á borð­inu í máli Vítalíu og auð­jöfr­anna – Ari á bein­skiptum bíl

Þögg­un­ar­samn­ingar voru á borð­inu í máli Vítalíu Lazarevu og þeirra Þórðar Más Jóhann­es­sonar, Ara Edwald og Hregg­viðs Jóns­sonar. Stundin greinir frá þessu. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar var Vítalíu boð­inn samn­ingur þar sem hún átti að fá greidda ákveðna upp­hæð mán­að­ar­lega yfir nokk­urra ára tíma­bil. Viðræður um samn­ing­inn eru sagðar hafa farið fram milli lög­manns Vítalíu og lög­manns mann­anna þriggja, en Vítalía...

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina