Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Með tvær háskólagráður í ísbúð

Sante Feaster er með háskóla­gráður í bæði alþjóða­fræðum og mann­fræði frá SUNY Cortland-háskóla í New York en á Íslandi stendur hún vakt­ina í ísbúð við Rauð­ar­ár­stíg. Ekki beint það sem hún hafði í huga þegar hún ákvað að fara í háskóla­nám þrátt fyrir þröngan fjár­hag en ástin spyr ekki um áður gerð plön og eftir að hafa kynnst íslenskum manni sem hún varð ást­fangin af tók Sante sig upp, flutti til Íslands, gift­ist ást­inni sinni og reynir að gera það besta úr stöð­unni í atvinnu­leit­inni, sem hefur verið henni væg­ast sagt tor­sótt.

Með tvær háskólagráður í ísbúð
|

„Ég flutti hingað fyrir einu og hálfu ári til að búa með mann­inum mínum,“ segir Sante og brosir allan hring­inn. „Við giftum okkur í maí í fyrra og síðan hef ég verið að reyna að kom­ast inn á íslenska vinnu­mark­að­inn. Það er ekki beint auð­velt og ég hef fengið alveg ótrú­lega dóna­legt við­mót í sumum atvinnu­við­töl­unum sem ég hef farið í. Ég hef nátt­úr­lega þrennt á móti mér; ég er svört, ég er kona og ég er Amer­ík­ani, það virð­ist ekki vera vin­sælt hér,“ bætir hún við og hlær aftur.

Störfin eingöngu fyrir Íslendinga

Beðin að útskýra menntun sína og hvað það er sem hún sæk­ist eftir að vinna við útskýrir Sante að hún sé svo sem opin fyrir alls konar störfum en hún myndi gjarnan vilja að menntun hennar væri metin hér.

„Ég var í háskóla í fjögur ár og hef tvær háskóla­gráður, í mann­fræði og alþjóða­fræðum þar sem ég lagði áherslu á mál­efni lat­nesku Ameríku. Ég hef reynt að fá vinnu hér á mínu sér­sviði en það virð­ist vera mjög tak­markað fram­boð af störfum sem tengj­ast því. Og þau störf sem eru í boði eru ein­göngu ætluð Íslend­ingum.“

„Ég hef reynt að fá vinnu hér á mínu sér­sviði en það virð­ist vera mjög tak­markað fram­boð af störfum sem tengj­ast því.“

Sante hefur þó fundið leið til að nýta menntun sína með því að vinna með kvenna­hópi sem skoðar ras­isma og kynja­hyggju á Íslandi og hún segir engan vafa á því að hvort tveggja sé tals­vert útbreitt hér. Hvort það eigi þátt í því hversu erfitt henni reyn­ist að fá vinnu við sitt hæfi þori hún þó ekki að full­yrða.

„Ég kenndi um tíma ensku í tungu­mála­skóla en það var bara hluta­starf og ég þurfti að fá fulla vinnu svo ég hætti því. Ég hef unnið á tveimur veit­inga­húsum, bæði í Reykja­vík og Kópavogi, og nú vinn ég í ísbúð. Það er ekk­ert hræði­legt en ekki beint það sem mig langar til að vinna við.“

Sante hefur ekki lagt stund á skipu­legt nám í íslensku en hún seg­ist þó geta talað dálítið og hún skilji mun meira en fólk geri ráð fyrir sem sé stundum vand­ræða­legt þegar fólk sé að tala um hana að henni við­staddri og gangi út frá því að hún skilji ekki neitt. Það sé oft óþægi­legt bæði fyrir hana og þá sem eru að baktala hana.

Tala eins og svart fólk í bíómynd

Spurð hvað hún hafi hugsað sér að gera til að kom­ast í starf sem hæfi henni og hennar menntun, seg­ist Sante ekki vita almenni­lega hvað sé hægt að gera.

„Ég þarf bara að byrja á botn­inum og vinna mig upp,“ segir hún. „Það er eina leiðin fyrir inn­flytj­endur og ég mun halda því áfram þangað til ég fæ ein­hverja vinnu sem ég hef áhuga á. Það er ótrú­lega erfitt að fá góða vinnu hérna og ég skil ekki alveg hvers vegna. Ég hef víð­tæka starfs­reynslu á mörgum sviðum, auk mennt­un­ar­innar, ég vann bæði með mennta­skóla­nám­inu og háskóla­nám­inu til þess að hafa efni á því að mennta mig og ég skil ekki hvaða þrösk­uldar það eru sem íslenskir vinnu­veit­endur vilja ekki hleypa mér yfir.“

„Það er ótrú­lega erfitt að fá góða vinnu hérna og ég skil ekki alveg hvers vegna.“

Sante segir húð­lit sinn kannski eiga þátt í því hversu erfitt henni reyn­ist að fá góða vinnu. Stundum hafi hún á til­finn­ing­unni að þeir vinnu­veit­endur sem kalli hana í við­tal hafi aldrei talað við svarta mann­eskju fyrr.

„Það er ekki beint opin­skár ras­ismi í gangi hér en það eru alls konar smá­at­riði sem ég sé í fram­komu fólks sem eru hreinn og klár ras­ismi. Fólk fer allt í einu að tala eins og svart fólk gerir í amer­ískum bíó­myndum og ég kem alveg af fjöllum, hví í ósköp­unum talar fólk öðru­vísi við mig en aðra ensku­mæl­andi umsækj­endur í atvinnu­við­tali? Sumir hafa sagt fárán­lega hluti um húð­ina á mér og einn vinnu­veit­and­inn sagði hreint út að ég væri of feit, hvort ég væri viss um að ég gæti unnið starfið sem ég var að sækja um. Ég varð svo hissa að ég gat varla svarað. Mér hafði aldrei dottið í hug að þyngd mín yrði gerð að umræðu­efni í atvinnu­við­tali, enda hefur hún aldrei komið í veg fyrir að ég gerði það sem ég ætl­aði mér. Ég pass­aði mig samt að sýna ekki hvað ég varð reið því ég vil ekki stað­festa ster­íótýpuna af reiðu svörtu kon­unni í hugum fólks. Ég er mjög með­vituð um það að í augum sumra er ég full­trúi allra svarta kvenna, svo ég passa mig alltaf á hvað ég segi.“

„Sumir hafa sagt fárán­lega hluti um húð­ina á mér og einn vinnu­veit­and­inn sagði hreint út að ég væri of feit, hvort ég væri viss um að ég gæti unnið starfið sem ég var að sækja um. Ég varð svo hissa að ég gat varla svarað.“

Sante er bjart­sýn á að henni tak­ist með tím­anum að fá vinnu í sínu fagi en þangað til ætlar hún að halda áfram að reyna að klifra upp stig­ann, eins og hún kallar það. Hún segir þó mik­il­vægt að inn­flytj­endur láti ekki bjóða sér hvað sem er á vinnu­mark­aðnum og hvetur fólk til að tala við sitt stétt­ar­fé­lag og kynna sér rétt­indi sín, það sé allt of algengt að reynt sé að borga erlendu fólki minna en samn­ingar kveða á um og láta það ekki fá lög­bund­inn frí­tíma.

„Við verðum að standa með sjálfum okkur og láta ekki svindla á okkur,“ segir hún ákveðin. „Það er óásætt­an­legt að erlendir laun­þegar njóti ekki sömu rétt­inda og þeir íslensku og við verðum að stoppa það sjálf. Það gerir það eng­inn fyrir okkur.“

Myndir / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina